Prentarinn - 01.10.2003, Qupperneq 12

Prentarinn - 01.10.2003, Qupperneq 12
„flllan þessar kröfur halda okkur á tánum" w Jakob Vibar Gubmundsson Arið 2000fékkprentsmiðjan hjá GuðjónO leyfi til að merkja vörur sínar með umhverfismerk- inu Svaninum. Þau hjá GuðjónÓ eru fyrsta og eina prentsmiðjan hér á landi sem fær slíkt leyji. En það er meira en að segja það að fá slíkt leyfi og til að forvitn- ast um þettaferli allt saman átti ég spjall við Ólaf Stolzenwald en hann hefur haft yfirumsjón með þessu verkefni hjá Jyrirtækinu. Svo ræddum við lítillega um músík en Óli spilar djass I frístundum - Hvað er langt síðan þió hyrj- uðuð með þessa umhverfisstefnu og hvernig hefur reynslan verið? Um 1990 gerðum við fyrstu til- raunirnar með jurtahreinsiefni, en um 1998 ákváðum við að ganga lengra og sækja um Svaninn og fengum leyfið árið 2000 eins og áður segir. Reynsla okkar er góð. - Geturþú sagt okkur hvað þarf að gera til að geta svans- merkt prentverk? Stærstu þættimir eru að nota viðurkenndan pappír af Svaninum, bætt hreinsiefnanotkun og nákvæm flokkun til eyðingar og endurvinnslu. - Var einhver sérstök ástœða fyrirþví að þið tókuó þessu á- kvöróun? 1 rauninni þróaðist þetta og varð að áhugamáli ef svo má að orði komast. Það var prentari hjá okkur sem fann grein í sænsku blaði um jurtaoliur, síðan kom hér Þjóðverji á vegum Iðntæknistofnunar sem kynnti okkur reynslu þeirra í Þýskalandi. Síðar varð okkur ljóst hvað þetta myndi þýða í bættu starfsumhverfi og bættri nýtingu á hráefni. - Kostaðiþettaykkur mikið? Já, það gerði það, en við ákváð- um að taka það aldrei saman því hugurinn var svo sterkur að fá Svaninn og geta boðið upp á um- hverfismerkta vöm. - Kallaðiþetta á einhvern hátt á hreyttar starfsvenjur starfs- Jólks? Þetta voru heilmiklar breyting- ar og töluverð tilraunastarfsemi í fyrstu. Einna helst varðandi jurta- olíuna til hreinsunar og að minnka Isapropanol í prentun. Síðan að finna nákvæmt flokkunarferli á úrgangi og eyðingu spilliefna sem allar deildir prentsmiðjunnar þurfa að standa klárar að. - Og hvernig tóku starfsmenn því? Starfsmenn okkar tóku og taka vel í þessar breytingar, enda er hreint loft í prentsmiðjunni og prentarar okkar gætu starfað í hvítum skyrtum ef þeir bæðu um það! - Hvernig taka viðskiptavinir þessu, sýna þeirþessu einhvern áhuga? Þeir viðskiptavinir okkar sem láta sig umhverfismál einhverju skipta tóku því fagnandi að geta umhverfísmerkt sína vöru. Síðan hafa fjölmargir nýir viðskiptavinir bæst í hópinn. - Nú er ekkert gefió að þið fáið að lialda Svansmerkinu. Er það ekki rétt li já mér að þið séuð und- ir einhverskonar eftirliti? Umhverfisstofhun fylgist með ferlinu og við þurfum að gefa þeim skýrslu á 3ja mánaða fresti varðandi hreinsiefnanotkun, Isa- propanol, pappírsmagn og silfúr- magn í vatni. Síðan þurfúm við að fá samþykki Umhverfisstofnunar ef breyta þarf um efni, t.d. hreinsiefiii, lím, farfa o.s.frv. Starfsmenn okkar tóku og taka vel í pessan breytingar, enda er hreint lott í prent- smiöjunni og prentarar okkar gætu starfaú í hvítum skyrtum et peir bæðu um pað! - Og þió eruó nýbúnir að fá Svaninn aftur. Voru kröfurnar á ykkur auknar eitthvað? Já, núna erum við að starfa eftir Versjón 3 og við þurftum að bæta nokkra hluti og sýna fram á betri pappírsnýtingu í svansmerktri vöru. Urkast má ekki vera meira en 20%, sem er auðvelt í DIN staðli en erfiðara í sértækum 12 ■ PRENTARINN

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.