Prentarinn - 01.03.2004, Side 2
Einar Einarsson, fæddur 3. ágúst 1919. Varð félagi 15.
desember 1940. Einar hóf nám í Gutenberg 1936 og tók
sveinspróf í setningu 3. nóvember 1940. Einar starfaði í
Gutenberg til 1943, síðan í POB til 1947. Var prent-
smiðjustjóri í prentverki Akraness til 1965 er hann
stofnaði eigin prentsmiðju, Akraprent, og rak hana til
ársins 1967.
Hóf þá störf í Alþýðuprentsmiðjunni og starfaði þar m.a. sem prentsmiðju-
stjóri, síðan í Alprent þartil hann lét af störfum sökum aldurs 1987. Einar lést
þann 24. desember 2003.
Jóhann Freyr Ásgeirsson, fæddur 24. maí 1944. Varð
félagi 17. febrúar 1965. Jóhann hóf nám í offsetprentun
1961 og tók sveinspróf 1965. Starfaði í Offsetprentun,
Kassagerðinni, Prentsmiðjunni Eddu, Odda og Viðey.
Jóhann tók alla tíð virkan þátt í félagsmálum og þá ekki
síður í menntunarmálum prentara. Hann starfaði sem
leiðbeinandi hjá Prenttæknistofnun frá 1992 og var
formaður prófnefndar í prentun frá 1984. Haustið 2001 hóf hann kennslu við
Iðnskólann i Reykjavík sem kennari við prentdeildina. Sumarið 2001 var hann
umsjónarmaður með orlofssvæði félagsins í Miðdal. Hann var formaður
Offsetprentarafélagsins 1971-1973, formaður Grafíska sveinafélagsins 1973-
1975 og gjaldkeri 1977-1979. Jóhann lést þann 25. janúar 2004.
Ólöf Álfsdóttir, fædd 7. febrúar 1922. Varð félagi 4. júlí
1942. Ólöf vann allan sinn starfsferil aðstoðarstörf í
bókbandi hjá Nýja bókbandinu. Ólöf lést þann 26.
janúar 2004.
Halldór Helgason, fæddur 16. júlí 1927. Varð félagi 16.
júlí 1947. Halldórtók sveinspróf í bókbandi 1947. Hann
starfaði við iðn sína m.a. í Hólum og Sveinabók-
bandinu. Hann var einnig við nám og störf í Danmörku
og Bandaríkjunum. Halldór vann síðustu árin í Kassa-
gerðinni þar til hann lét af störfum sökum aldurs.
Halldór lést þann 27. febrúar 2004.
Hallmar Óskarsson, fæddur 12. desember 1979.
Hallmar vann aðstoðarstörf í prentun í Vörumerkingu.
Hallmar lést þann 12. janúar 2004.
Hrefna Stefánsdóttir María H. Kristinsd. Sigurður Valgeirsson
Georg Páll Skúlason Pétur Ágústsson
Framboðsfrestur til stjórnarkjörs
2004 rann út þann 20. febrúar.
Uppástungur bárust um 5
félagsmenn til setu í aðalstjórn
og 5 til varastjómar á tveimur
listum. í framboði til aðalstjórnar
voru: Georg Páll Skúlason, Páll
Reynir Pálsson, Pétur Ágústsson,
Reynir Sigurbjörn Hreinsson og
Þór Agnarsson. Til varastjórnar:
Garðar Jónsson, Hrefna
Stefánsdóttir, María H.
Kristinsdóttir, Oskar Jakobsson
og Sigurður Valgeirsson.
Framboðsfrestur rann út þann 20.
febrúar. Kjörnefnd annaðist
umsjá kosninga og atkvæði voru
talin þann 17. mars, niðurstaða
kosninga varð eftirfarandi.
Páll R. Pálsson
Aðalstjórn
Georg Páll Skúlason
Pétur Ágústsson
Páll Reynir Pálsson
Reynir Sigurbjörn Hreinsson
Þór Agnarsson
Varastjórn
Hrefna Stefánsdóttir
María H. Kristinsdóttir
Sigurður Valgeirsson
Garðar Jónsson
Oskar R. Jakobsson
Á kjörskrá voru:
Alls kusu:
Auðir og ógildir
Fjöldi atkvæða %
384 79,8%
319 66,3%
296 61,5%
210 43,7%
128 26,6%
Fjöldi atkvæða %
337 70,1%
286 59,5%
231 48,0%
230 47,8%
217 45,1%
1165
481 41,3%
10 2,1%
Fopmannskosning
Framboðsfrestur í kjöri til
formanns FBM kjörtímabilið
2004-2006 rann út þann 16.
janúar. Tvö framboð bámst,
um þá Sæmund Árnason og
Þór Agnarsson. Kjörnefnd er
annaðist kjörið skilaði kosn-
ingaúrslitum þann 11. febrúar.
Á kjörskrá voru 1214 og
greiddu 563 atkvæði, eða
46,4% kosningaþátttaka.
Sæmundur hlaut 382 atkvæði
eða 68% og Þór hlaut 146
atkvæði eða 26%, auðir og
ógildir voru 35 eða 6%.
Sæmundur Árnason telst því
réttkjörinn formaður FBM til
næstu tveggja ára.
2 ■ PRENTARINN