Prentarinn - 01.03.2004, Blaðsíða 27

Prentarinn - 01.03.2004, Blaðsíða 27
Kristmundur Guðmundsson áriö 1959 í Gutenberg. rekendur (eins og Hallbjörn kall- aði þá). Þetta var því nauðvöm prentara til þess að rétta við kjör sín. Þetta var reyndar raunveruleg bylting. Hinar prentsmiðjurnar í bænum urðu að sjá af starfsmönn- um sínum. Þær tæmdust bókstaf- lega. Bjöm i ísafold, sem rak stærstu prentsmiðjuna, og fleiri prentsmiðjueigendur vissu ekki sitt rjúkandi ráð. Þeir vom búnir að standa alltof lengi á móti sann- gjömum kröfúm prentara og stóðu nú frammi fyrir alvöru lífsins. Nú vom góð ráð dýr og Bjöm leitaði að íslenskum prenturum í Danmörku, en þeir höfðu margir farið þangað vegna lítillar vinnu hér á landi. Sveinn Bjömsson, seinna forseti Islands, var jafnvel fenginn til þess að hafa milligöngu. Hingað var sendur maður ffá danska prent- arafélaginu, til þess að miðla mál- um, en allt kom fyrir ekki. Islenskir prentarar stóðu fast á sínu, stofnuðu sína eigin prentsmiðju og byggðu fallegt hús undir hana í Þingholts- strætinu, sem stendur enn. Þetta er líklega einn af merkustu atburðum sem skeðu á síðustu öld. Einokun Isafoldarvaldsins var brotin á bak aftur og hnekkt með órofa sam- stöðu prentarastéttarinnar. Eg hef einhvers staðar lesið, að það hafi verið ósanngjamt af prent- urum að leita effir láni til húsbygg- ingarinnar hjá Islandsbanka, þar sem Tryggvi Gunnarsson var bankastjóri. Það hafi verið auðsótt vegna tengsla hans við Hannes Hafstein, en Tryggvi var móður- bróðir hans og með þessu gætu þeir Heimastjómarmennimir náð sér niðri á Bimi Jónssyni og Valtýing- um. Það má vel vera að pólitikin hafi verið prenturum hliðholl að þessu sinni, en láir þeim það nokk- ur þó þeir reyndu að nýta sér að- stæður í þjóðfélaginu eins og á stóð þegar þeir vom búnir að reyna allt sem þeir gátu í 6-7 ár? I bókinni góðu eru öll fjármál rakin vegna undirbúnings að stofnun prentsmiðjunnar. Prentar- Prentsmiðjan Gutenberg, nýbyggð. Fimm af stofnendum HIP (tekin í mars 1937). Fremrif.v.: Aðalbjörn Stefánsson ogJón Arnason. Aftarif.v.: Guðjón Einarsson, Friðfinnur L. Guðjónsson og Einar Kristinn Auðunsson. ar söfhuðu peningum á allan mögulegan hátt m.a. með tomból- um og skemmtunum og áttu þó nokkurt fé í sjóðum þegar til stofnunar Gutenbergs kom. Með þessu móti stofnuðu þeir m.a. fyrsta sjúkrasjóð landsins sem seinna varð fyrirmynd sjúkrasam- laga og trygginga landsmanna. I bókinni „Bókagerðarmenn 1530-1973“, útg. 1976, stendur á blsi 165 um Gutenberg: „Hluta- félagið sem að henni stóð var stofhað 12. ágúst 1904 og vinna hófst þar 2. janúar 1905.“ Það mun vera öllu nær sanni að menn hafi byrjað að vinna 2. janúar en ekki á nýársdag eins og sums staðar stendur í heimildum. j þessari sömu bók stendur þetta: „Góð bending um skyldleika HÍP og stofnunar Gutenbergs er, að sömu mennirnir mynduðu fyrstu stjórn prentarafélagsins og voru í fyrstu stjórn Gutenbergs og sat hún að völdum meðan Gutenberg var hlutafélag.“ Það er til 1930, þegar prentsmiðjan var gerð að ríkisfyrirtæki. Gutenberg náði mjög fljótlega forystu um góð vinnubrögð í íslenskum prentsmiðjum. Stofh- endur höfðu unnið skipulega að undirbúningi. Þeir keyptu Prent- smiðju Reykjavíkur sem Þorvarð- ur Þorvarðarson átti. (Hann var tengdafaðir Einars Olgeirssonar.) Þorvarður var síðan fenginn til þess að vera framkvæmdastjóri prentsmiðjunnar og var hann strax sendur út fyrir landsteinana til að afla tækja og véla. Þeir náðu til sín prentun á Alþingis- tíðindum og fleiru frá stjórnar- stofnunum og héldu því um langt skeið eða allt fram á okkar daga. Á 2. eða 3. síðu í fúndargerða- bók Gutenbergs er tekið fyrir bréf frá prentnemanum Hallbirni Hall- dórssyni úr Félagsprentsmiðjunni, sem óskaði eftir því við prent- smiðjustjórn Gutenbergs að fá að flytjast þangað sem nemi. Þetta varö úr og hinn landsþekkti prent- ari, Hallbjöm, varð seinna verk- stjóri Gutenbergs um nokkurt skeið og yfirverkstjóri á þriðja áratug. Það er ekki vafi, að fyrir hans tilstilli hafa öll vinnubrögð og verklag í Gutenberg verið til hinnar mestu fyrirmyndar á næstu áramgum, því Hallbjöm var fjöl- menntaður prentari og víðlesinn. Það er fróðlegt að heyra hér að síðustu hvemig viðhorf yfirverk- stjóra Gutenbergs var til vinnunnar hér áður fyrr eða fyrir rétt rúmlega fimmtíu ámm. Hann segir svo: „Hver verkamaður, hvort heldur er karl eða kona, í hverri grein sem er, á að vita, hvað hvert handtak og hver klukkustund kostar hann í eflingu og viðhaldi starfsorku sinnar og þola engan afslátt á verði á dýmstu eign, sem hann á, vinn- unni, því að hún er jafhffamt dýr- mætasta eign samfélagsins. Vinnu- stéttin er því raunvemleg hefðar- stétt, sem ekki má láta traðka á rétti sínum, en göfgi skyldar, og hún á því að fara vel með valdi sínu og ekki að kúga sér til handa óréttmæt forréttindi eins og hin þjóðfélagsstéttin hefir gert.“ Þegar þessi orð vom rituð 1953 var ég nýútskrifaður bókbands- sveinn og þekkti höfund þeirra aldrei nema í sjón. Hann var af aldamótakynslóðinni, kynslóð þeirra manna sem áttu sér hug- sjónir sem þeir létu rætast og mér finnst fúll ástæða til að minna á orð hans hér og nú, því þau em vel mælt og eiga ekki síður við í dag en þegar þau voru rituð fyrir um fimmtíu ámm. PRENTARINN ■ 27

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.