Prentarinn - 01.03.2004, Blaðsíða 28

Prentarinn - 01.03.2004, Blaðsíða 28
Það eru ekki mörg fyrirtæki á íslandi sem hafa náð því að verða hundrað ára gömul, hvað þá 127 ára eins og ísafoldarprent- smiðja er í dag og með góðum vilja má jafnvel rekja söguna enn lengra aftur. ísafoldarprentsmiðja var stofnuð 1877 af Birni Jónssyni ritstjóra og síðar ráðherra. í maímánuði 1886 keypti Björn prent- smiðju Einars Þórðarsonar. Áður hafði Einar þessi keypt Landsprentsmiðjuna, en sú prentsmiðja var arftaki Hólaprentsmiðju. (Þrent eflir mennt bls. 65-66.) Ég brá mér suður í Garðabæ þar sem ísafoldarprentsmiðja er til húsa og ræddi við þá Kristþór Gunnarsson framkvæmdastjóra og Kjartan Kjartansson prent- smiðjustjóra um hvernig lífið og tilveran í prentbransanum komi þeim fyrir sjónir, en hjá fyrirtæk- inu hafa skipst á skin og skúrir eins og gengur. En gefum þeim félögum orðið. - Hvenœr takið þið núverandi eigendur við? Við keyptum prentsmiðjuna í júní 2002, en hún hafði þá nýlega farið í gjaldþrot. Eitt af skilyrð- unum sem við settum fyrir kaup- unum var að rekstur hennar stöðvaðist ekki. Við tókum því við fyrirtæki sem var í fullum rekstri. Það var aldrei spurning í okkar huga að halda Isafoldar- prentsmiðju-nafninu. Fyrirtækið á sér langa og merka sögu og margir mætir einstaklingar hafa komið að rekstri hennar. Stjórnar- formaður prentsmiðjunnar, þegar henni var fyrst breytt í hlutafélag, var Sveinn Bjömsson, fyrsti for- seti íslands, en hann var sonur Björns Jónssonar og bróðir Olafs Bjömssonar sem þá var fram- kvæmdastjóri. Margir ómetan- legir dýrgripir em í eigu prent- smiðjunnar, svo sem fundar- gerðabók sem Sveinn ritar í eigin hendi og einnig fyrsta eintakið af Ísafold sem prentað var í prent- smiðjunni þann 16. júní 1877. Sá dagur er talinn stofndagur prent- smiðjunnar. Prentsmiðjan verður því 127 ára gömul í sumar. Við vorum mjög ánægðir með hvað viðskiptavinir prentsmiðj- unnar héldu tryggð við hana þrátt Kjartan Kjartansson prentsmiðju- stjóri. fyrir þá erfiðleika sem hún gekk í gegnum. Meginástæðuna teljum við ekki síst vera það hæfa starfs- fólk sem vinnur hjá ísafold. - Hverskonar prentsmiðja er Isafold? Það má segja að ísafoldar- prentsmiðja standi á þremur fót- um. Þ.e. blaðaprentun, rúlluprent- un (tímarit og ýmiskonar dreifi- póstur) og arkaprentun. Engin önnur prentsmiðja getur státað af öllum þessum þáttum innan dyra hjá sér. - Nú prentið þið bœði Frétta- blaðið og DV? Fljótlega eftir að við tókum við félaginu tóku nýir eigendur við Fréttablaðinu og þá fór allt á skrið. Prentsmiðjan hafði fram að þeim tíma prentað Fréttablaðið á gamla Goss blaðaprentvél, sem gat prentað 24 síður í einni prent- un. Blaðið var þá prentað í 65 þúsund eintökum. Bæði við og Kristþór Gunnarsson fram- kvœmdastjóri. nýir eigendur Fréttablaðsins sætt- um okkur ekki við gæði prentun- arinnar úr þeirri vél og var ákveðið að gera bragarbót á því. í ágúst 2002 var tekin sú ákvörðun að fara út í kaup á nýrri vél og settu menn sér þau mörk að fyrsti hluti vélarinnar yrði kominn upp eigi síðar en 15. nóvember það sama ár. Þetta voru mjög þröng tímamörk, en hugsunin var að ná jólavertíðinni. Þetta hafðist. Síðan þá hefur Fréttablaðið vaxið í yfir 100 þúsund eintök og allt upp í 96 síður. Við höfum auðvit- að þurft að fylgja þessari þróun eftir með stækkunum á vélinni og núna erum við að ljúka við að setja upp þriðja turninn. Það þýð- ir að hægt er að keyra 48 síður í fjórum litum í einni prentun. Við höfum einnig sett upp sjálfvirkt innstungu- og pökkunarkerfi sem gerir okkur kleift að stækka blöð- in og stinga inn í þau ýmiss kon- 28 PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.