Prentarinn - 01.03.2004, Page 24
Johann Gensfleisch
zur Laden zum Gutenberg
Johann Gensfleisch zur
Laden zum Gutenberg eða
Johann Gutenberg, eins
og hann er oftast nefndur,
fæddist nálægt
aldamótunum 1400 af
virtum borgaralegum
foreldrum. Fátt er vitað um
líf hans. Hann mun hafa
lært til málmskurðar eða
gullsmíði en var einnig
kallaður demantsslípari. Ég
reyndi að afla mér sem
mestra upplýsinga um
Gutenberg en til eru heilu
bækurnar um hann.
Ester Þorsteinsdóttir
24 ■ PRENTARINN
Kínverjar byrja
Blokkprentun hafði lengi verið
beitt í Kína, t.d. við prentun pen-
ingaseðla. Þá voru heilar síður
skornar í tré og prentað eftir mót-
inu. Kínverjar gerðu einnig til-
raunir með lausa stafi en það var
ekki jafnhagkvæmt því það krafð-
ist mjög margra og stórra letur-
kassa svo unnt væri að halda reiðu
á hinum fjölmörgu táknum. Kín-
verjar notuðu brenndan leir og síð-
ar var letrið líklega skorið út í kop-
ar. Enn síðar var notað tin en það
gafst illa þar sem letrið vildi aflag-
ast og blekið tolldi illa á því. Svo á
13. öld eru heimildir um að brons
hafi verið notað og gafst það best.
En eftir sem áður stóðu hin mörgu
tákn, sem ritfærir Kínveijar þurfa
að hafa á takteinum, prentuninni
fyrir þrifúm en fyrir venjulega bók
þarf 4000-5000 mismunandi tákn.
Ein elsta prentaða bók heimsins er
kínversk, prentuð árið 868 og er
vel varðveitt.
Meistarinn fæðist
I kringum aldamótin 1400 fæddi
Else Wyrich son og nefndi hann
Johann Gutenberg. Faðir hans hét
Friele Gensfleisch zur Laden zum
Gutenberg. Hann átti eldri bróður
sem hét Friele eins og faðir hans
og líka systur sem hét Else eins
og móðirin. Þar sem ekki er alveg
vitað um fæðingardag Guten-
bergs hefur verið reiknað út frá
Iífi systkina hans og því talið að
hann hafi fæðst í kringum alda-
mótin 1400.
Ekki er vitað mikið um skóla-
göngu hans eða hvort hann lauk
einhverju námi en talið er að
hann hafi sótt svæðisskóla og
e.t.v. klausturskóla í St. Victor í
Mainz. Þar þurfti hann að læra
grundvallaratriði latínu í styttri
útgáfu af fornu rómversku mál-
fræðiriti sem var þekktast undir
titlinum „Donatus". Ef marka má
skjalabrot sem bjargast hafa eru
góðar líkur á að Donatus hafi
verið fyrsti textinn sem var prent-
aður með lausaletri. Gutenberg
notaði Donatusinn til að æfa og
fúllkomna tæknina sem notuð var
við prentun Biblíunnar.
Gutenberg og málaferlin
Fyrstu staðreyndir um Gutenberg
eru dagsettar 1420 og 1430 en
hann er tvisvar nefndur í samn-
ingi vegna fjárfestinga. I janúar
1430 lítur út fyrir að Gutenberg
hafi ekki verið lengur í Mainz.
Ríkinu er sett ný stjómarskrá og
þá eru teknir saman allir þegnar
sem hafði verið úthýst vegna
skjalafals eða skulda. Olíklegt er
að hann hafi farið aftur til Mainz
næstu nítján árin. Hann ákvað að
halda sig i Strassborg. Þar var
Gutenberg kærður fyrir að hafa
aflýst trúlofun sinni við Ennelin
zu der Yserin Thure. En hún virð-
ist hafa tapað því máli því Guten-
berg var ókvæntur til dánardags.
Gutenberg og maður að nafni
Andreas Dritzehn vom meðeig-
endur í gullsmíðastofú. Þeir voru
að kenna listina að fægja dem-
anta. Þrem til fjórum ámm síðar
voru þeir beðnir um að gera litla
handspegla fyrir pílagrímana í
Aachen. Seinna meir kröfðu
samstarfsmenn Gutenbergs hann
um að kenna sér allt sem hann
vissi og hafði uppgötvað. Um
jólin 1438 lést Dritzehn. Bræður
hans heimtuðu að Gutenberg
hleypti þeim inn í fýrirtækið í
stað Dritzehns. En þar sem
Dritzehn hafði ekki borgað sinn
skerf höfðu þeir skrifað það í
samninginn að sá sem eftir lifði
héldi öllu. Rétturinn stóð með
Gutenberg í þessu máli.
Árið 1448 fór Gutenberg aftur
til Mainz til að fá peninga hjá
ættingjum sínum og í kringum
1450 báru tilraunir hans einhvern
árangur og fór hann þá til mikils
fjármálamanns að nafni Johann
Fust. Gutenberg fékk hann til að