Aðventfréttir - 01.01.2003, Blaðsíða 24

Aðventfréttir - 01.01.2003, Blaðsíða 24
Bréf frá Newbold 21. febrúar 2003 Kæri vinur Þar sem ég sit í skrifstofunni minni horfi ég yfir til Salisbury Hall og bóka- safnsins. Enda þótt vetrarsvalinn ráði enn ríkjum skín blessuð sólin í dag. Nemendur eru á leið í tíma og bráðlega munu þeir fara yfir í matsalinn til að fá sér að borða. Fyrir nokkrum dögum var útsýnið allt annað. Þá var snjór og nem- endurnir flýttu sér út til að búa til snjó- karla og koma öðrum nemendum og starfsfólki á óvart með snjóboltaskot- hríð. En í björtu sólskini dagsins í dag hafa fjórir nemendur komið sér fyrir á bekk framan við bókasafnið. Þeir beils- ast með vinalegu handabandi og einn þeirra segir frá einhverju sem vekur mik- inn hlátur. Nokkru fjær mætast tvær stúlkur á stígnum, faðmast og óska hvor annarri velfarnaðar við að aðlagast skób anum og enskum háttum. Það er upp- örvandi að sjá þessa hópa ungs fólks frá hinum ýmsu löndum búa saman í sátt og samlyndi. Það er ekki svo algengt að fólk frá 60 ólíkum þjóðum finni friðsæld á sameiginlegu heimili. Það er einnig ánægjulegt að ganga um skólann. Ég sé og finn áhuga nem- enda á náminu. I nokkrum skólastofum sitja nemendur við lítil borð og hlæja saman meðan þeir gera sitt besta til að læra ensku. I öðrum stofum eru nemend- ur uppteknir við nám í sögu, markaðs- fræðum eða grísku. I einum bekknum er nemandi að prédika fyrir hinum guð- fræðinemunum eins og þeir væru nýir meðlimir safnaðarins. Ég finn hve sterk áhrif nemendurnir hafa hver á annan og sé jákvæð áhrif starfsfólks skólans. Nemendurnir sýna hver öðrum sam- úð og stuðning í hinum margvíslegu kringumstæðum sem skapast geta. Þegar ein stúlkan missti móður sína tóku margir nemendur sig til og söfnuðu pen- ingum svo hún kæmist aftur í skólann eftir jarðarförina. Samþykkt var einróma innan skólans að sleppa kvöldmat þris- var sinnum og láta þann kostnað sem við það sparaðist fara til munaðarleys' ingjahælis í Rúmeníu. I öðru tilfelli söfnuðumst við öll saman til að biðja fyrir fjölskyldu eins nemendans, sem orðið hafði fyrir þeirri sorg að missa barn í fæðingu. Þegar ég geng um skólasvæðið á hvíldardeginum sé ég ýmislegt sem eyk- ur bjartsýni mína á framtíðina. Unga fólkið sem mun taka við leiðtogahlut- verkum innan kirkjunnar. A meðan hvíldardagsskólinn stendur yfir lít ég inn til unga fólksins þar sem eitt þeirra hef- ur tekið að sér að leiða umræðuna, og er þannig gott fordæmi öðrum lítt yngri. Ég mæti á nokkrar guðsþjónustur, sumar í Newbold kirkjunni, aðrar í Salisbury Hall. Nemendur Newbold sækja þessar guðsþjónustur og stjórna mörgum þeirra. Á föstudagS' og laugardagskvöldum taka nemendur þátt í ýmsu því sem boðið er uppá á svæðinu. Ég finn eldmóð nem- endanna þar sem þeir og fjölskyldur þeirra sameinast í söng. Ég heyri und- urfagra tónlist og orð á króatísku, rúss- nesku, kóresku, igbo og swahili. Auðvitað er ekki allt fullkomið á Newbold. Sumir nemendur eiga í erfið- leikum með námið, aðrir þurfa að sækja um fjárhagsstuðning og ég bið með þeim um leiðsögn og visku þeim til handa. Hluti starfsfólksins hefur átt við veikindi að stríða og við finnum til með þeim í þjáningum þeirra. Sumir hinna ungu kjósa að endurnýja ekki heit sín við Krist. Það hryggir okkur en dregur ekki úr okkur kjarkinn. Minningarnar frá Newbold munu fylgja þeim það sem eft- ir er ævinnar. Ég hef oft talað við fyrr- verandi nemendur. Þeir fara lofsamleg- um orðum um skólann. Ég skynja vænt- umþykjuna í röddum þeirra þegar þeir minnast skólasystkina sinna, starfsfólks- ins og jafnvel matarins! Vera þeirra á Newbold og það sem þeir upplifðu þar hefur haft þýðingarmikil áhrif á líf þeir- ra. Þökk fyrir að ganga með mér um Newbold og fyrir áframhaldandi stuðn- ing þinn við skólann. David S. Penner, skólastjóri.

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.