Heimilisritið - 01.08.1943, Page 17
að auki brosti hún .... en ekki
raýkti það skap hans.
Honum var það ljóst, að þetta
myndi vera nýja hjúkrunarkonan,
sem tekið hafði við af Crockett.
,,Hafio þér ekki augu í höfð-'
inu?“ spurði hann önugur. „Eða
.... eruð þér vanar að gana
svona á fólk?“
„En það voruð þér sem rákust
á mig“, svaraði hún brosandi.
„Vitið þér við hvern þér eruð
að tala?“ spurði hann reiður.
„Já, já“, svaraði hún og lét
sér hvergi bregða. „Ég hef heyrt
Hislop lælcni svo vel lýst, að þér
getið enginn annar verið en
hann“.
Hann varð bálreiður.
„Ég verð að vekja athygli yð-
ar á því, að þér eruð hjúkrunar-
kona — ég læknir .... ég er
sem sagt yfirboðari yðar!“
Hún roðnaði ofurlítið, en hafði
vit á því að halda reiði sinni í
skef jum — í stað þess brosti hún
aftur og sagði:
„Ég skal steinþegja, næst þeg-
ar þér rekist á mig!“
„Nei, nú er nóg komið“, sagði
hann hamslaus af vonzku. „Hvem
íg vogið þér yður að tala svona
við mig?“
1J SAMA vetfangi kom yfir-
hjúkrunarkonan aðvífandi.
„Nú, þið eruð þegar orðnir góð-
ir vinir“, sagði hún, án þess að
hafa hugmynd um orðasennu
þeiira. „Það gleður mig mikið.
Ég ætlaði einmitt að fara að
kynna fröken Angus fyrir yður
doktor Hislop. Hún er ein a£
þeim hamingjusömu, sem vilja
hjúkra af mannkærleika og ást
á starfinu“.
„Hvað eigið þér við?“ spurði
liann til þess að segja eitthvað.
„Peggy Angus er dóttir ......
já þér hljótið að hafa heyrt get-
ið um Angusfjölskylduna frá
Dunhill“.
Já hann hafði vissulega heyrt
þeirrar fjölskyldu getið. John
gamli Angus átti að sögn ekki
allfáar milljónir .... að minnsta-
kosti hafði hann gefið þessum
spítala eina milljón. — Og það
hafði ekki vakið litla athygli,
þegar einkadóttir hans hafði feng
ið vilja sínum framgengt: að
læra hjúkrun.
„Þér skiljið þess vegna, dr.
Hislop", hélt hjúkrunarkonan á-
fram, „að við erum hreint og
beint hreykin af því að hafa frök-
en Angus hérna á spítalanum.
Við verðúm að gera allt sem við
getum, til þess að hún kunni vel
við sig“.
„Svo-o-o já“, svaraði hann.
„Mér stendur nákvæmlega á
sama, hvort faðir hjúkrunarkonu
er skóburstari eða milljónamær-
ingur. Ég virði hana ef-tir verk-
unum — án tililts til þess hver
hún er“.
ETTTA var óheppilegt upp-
haf!
En verra varð framhaldið ....
Það kom brátt í ljós, að Hislop
HEIMILISRITIÐ
15