Heimilisritið - 01.08.1943, Side 31

Heimilisritið - 01.08.1943, Side 31
SAGA í jáum orðum um ást og hejnd, ejtir L. K. FRANK Svo för um sjóferð þá ^AÐUR í brúnum fötum stóð við 1 1 barborðið, þegar dyrnar opnuð- ust. Kaldur gustur lék um salinn og snjórinn feyktist langt inn á gólf. Maður í gráum yfirfrakka gekk inn. hristi af sér snjóinn og kallaði: „Einn Manhattan, Jack!“ Þegar hann hafði fengið sér væn- an sopa af víninu snéri hann sér að brúnklædda manninum og sagði: „Þetta er auma tíðin!“ „Já hún er slæm“, svaraði' hinn. ,,£>að var í vona blindbyl, sem einn af beztu vinum mínum fékk slæma útreið hérna á fjöllunum fyrir of- an“. „Það er ekki rétt að leggja á fjöll- in um þetta leyti árs“, sagði maður- inn í, gráa frakkanum, fékk sér ann- an sopa, settist við bSrð og bauð hin- um sæti hjá sér. „Hvernig fór fynr vini yðar. Varð hann úti?“ Maðurinn í brúnu fötunum sett- ist, fékk sér gúlsopa og hóf mál sitt KTEI, JOE fraus ekki í hel. Hann 1 ’ hafði miðstöð í bílnum og ást- arhita í barmi, svo að maður tali hátíðlega. „Nokkrum mánuðum áður hafði hann kynnst stúlku, sem hann varð HEIMILISRITIÐ mjög ástfanginn af. Hún virtist vera gædd öllum þeim kostum, sem hanu hafði óskað að eiginkonu sína prýddi Hún var björt yfirlitum, glaðvær, hafði mjög líkan smekk og hann. og áhugamál. í stuttu máli hæfðu þau hvort öðru á öllum sviðum, að öðru leyti en því, að Joe geðjaðist ekki eins vel að útiíþróttum og henni Þó að Joe væri til í ferðalög og úti- leiki öðru hverju, þá kunni hann betur við þægilegan stól og Bakkus- arfómir í ró og spekt. Hann hitti hana á golfvellinum, en þangað hafði hann farið með nokkrum kunningjum sírium, þeim til samlætis. Meðan á leiknum stóð kom regnskúr og af tilviljun leituðu þau skjóls undir sama tré. Þau tóku tal saman — og fyrr en varði sá hann ekki sólina fyrir henni. „Hún var þá að leika golf með eldra fólki og virtist skemmta sér ágætlega. Þegar aftur hafði stytt upp og kallað var á þau í leikinn, mælti hann sér mót við hana í golf- skálanum. Það sem eftir var sum- ars undu þau saman öllum stund- um. Þau syntu, léku golf og tennis og fóru í ferðalög, alltaf tvö saman. Og þegar haustaði horfðu þau á veð- 29

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.