Heimilisritið - 01.12.1945, Síða 13
Betty Grable
vill ekki taka að sér
alvarleg hlutverk —
Nýlega áttu blaðamenn viðtal
við Betty Grable. — Hér
eru orð hennar við það
tœkifæri
„HVAÐ? Að ég ætli að hætta
að leika í dans- og söngvamynd-
um? Hvers vegna spyrja þeir mig
ekki, þessir blaðamenn, áður en
þeir prenta slíka vitleysu?“, sagði
hún, er henni var sagt um orðróm
um, að hún vildi helzt leika í drag-
síðum kjólum og háalvarlegum
hlutverkum.
„Ég myndi deyja, af hræðslu,
ef ég ætti að fara að leika eitt-
lxvað alvarlegt“, sagði Betty, „ég
er sennilega eina dans- og söngva-
leikkonan í Hollywood, sem vill
halda áfram að vera eins og ég
er“.
„Ég hef enga löngun til að leika
neitt, nema í söngvamyndum. Ég
er engin leikkona, og ég veit það.
Ég hef náð hámarki í list minni
og ég ætla að reyna að halda því
hámarki á meðan ég get. En þeg-
ar mér fer að fara aftur hætti ég
tafarlaust. Mér hefur tekist að
leggja dálítið fyrir á undanförnum
árum og ég á mann, sem getur
séð fyrir mér betur en ég sjálf“.
Hún átti við hinn vinsæla dans-
hljómsveitarstjóra, Harry James,
mann sinn og föður dóttur hennar
Vickie, sem nú er bráðum tveggja
ára gömul. Þegar hún var spurð
um fyrrverandi mann sinn, Jackie
Coogan, sagði hún. „Æ, því þarf
að vera að minnast á hann?“
„Ég er nærri orðin 29 ára og
hef verið á leiksviðinu síðan ég fór
að geta gengið. Ég byrjaði hér í
HEIMILISRITIÐ
11