Heimilisritið - 01.12.1945, Síða 43

Heimilisritið - 01.12.1945, Síða 43
varið mikilvægustu meginbraut- ina til höfuðborgarinnar með fallbyssum frá heimsstyrjaldar- árunum! Kynja var þótt kerald- ið læki! Enn er mér óráðin gáta, hvemig Hitler hefur sigrað svo auðveldlega í þesari herferð. Það skal játað, að Frakkar hafa varizt í borgunum. En ekki gat mikill hluti af milljónaher þeirra barizt þar. Það var of þröngt um hann. En hann barð- ist ekki úti á víðavangi eins og vant hefur verið í öllum öðrum styrjöldum. í tuttugu metra fjarlægð frá veginum er kornið á ökrunum ótroðið. Þar hafa engar fylkingar fótliða stigið niður, og ekki sést þar hjólfar eftir þær tugþúsundir vélknúinna hemaðartækja, sem ruddust fram. Ég segi ekki, að Frakkar hafi ekki sums staðar varizt hraustlega. Það hafa þeir eflaust gert. En hvergi hefur verið skipulögð og vel undirbú- in vöm, eins og í síðustu styrj- öld. Mér sýnist á öllu, að Frakk- ar hafi látið Þjóðverja ráða fyr- ir sig um nýja hernaðaraðferð. Barizt var nær því eingöngu fram með helztu akbrautum, sjaldan sótt fram í langri víg- línu á breiðu svæði. Og 'á veg- unum höfðu Þjóðverjar alla yf- irburði, þeir réðu yfir marg- földu ofurefli skriðdreka og flugvéla, en það eru megintæk- in í orustum á vegum. Austurrískur hermaður sagði mér í gærkvöldi, að þetta hefði verið ótrúlega einfalt. Þeir sendu skriðdrekasveitir á und- an eftir veginum og stórskota- lið á eftir til stuðnings. Þær mættu sjaldan verulegri mót- spyrnu. Skotgrafasveitir skutu á þær hér og hvar. Venjulega skeyttu hinar harðbrynjuðu skriðdrekasveitir þessu engu og héldu leiðar sinnar. Fótliðar komu akandi á eftir í flutninga- bilum og höfðu með sér léttar fallbyssur. Þeir hreinsuðu til í vélbysuhreiðrum og byrgjum Frakka. Ef svo bar til, að þeir mættu snarpri mótstöðu, sím- uðu þeir eða sendu loftskeyti eða merkjaboð eftir stórskota- liðinu. Ef stóru fallbyssunum tókst ekki að þagga niður í ó- vinunum, voru steypiflugvélar sendar á þá, og þær brugðust ekki. Þannig gekk þetta dag eftir dag, sagði hann. í NÆSTA HEFTI: Frakkar skriía undir vopnahlésskilmálana í sama járnbrautar- vagni og á sama staS sem ÞjóSverjar sömdu um uppgjöf 1918. HEIMILISRITIÐ 41

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.