Heimilisritið - 01.12.1945, Qupperneq 64
margir að leysa ákveðið verk af
hendi. Ef mennimir hefðu verið sex
fleiri hefðu þeir ekki verið nema
einn dag að ljúka við verkið.
Hvað unnu margir menn við verk-
ið?
SMÁPENIN GABRELL A
Myndið kross úr 6 smápeningum.
Hreyfið einn þannig, að hinir myndi
tvær raðir með 4 peninga í hverri.
LEIÐIN TIL GULLKISTUNNAR.
Ali Baba ákvað að ræna auðkýfing einn,
sein geymdi gullkistu sína í Höll hinna
sjötíu herbergja. Hvert þessara herbergja,
fyrir utan þau sem lágu að útveggjum
hallarinnar, voru með fjórum dyrum, og
fimmtiu þessara hundrað tuttugu og
þriggja dyra voru alltaf aflæstar. AIi Baba
tókst með brögðum að gefa dyraverðin-
um inn svefnmeðal. Þar sem hann gat
ekki náð i betra svefnmeðal, en sem verk-
aði aðeins í fimm mínútur, varð hann að
komast inn i fjárhirzluna í gegnum opnu
dyrnar — og til baka aftur — á ekki
lengri tíma en fimm mínútum.
Hvaða leið fór hann?
Svör á bls. 64
Tímaröð myndanna
Svör við myndagátu á bls. 32 og 33
Rétt röð myndanna er:
3 2
4 1
Gefið er að Jóna hafi tæmt flöskuna og
látið hana á bekkinn. I’að er einnig tekið
fram, að enginn nema Jóna hafi komið á
myndasviðið á meðan myndirnar voru
teiknaðar. Þar af leiðir, að enginn tók
flöskuna af bekknum. Þess vegna hlýtur
hún að hafa oltið við það, að rófan á
kettinum ýtti við henni, og siðan velzt
niður sjálfkrafa.
1. Ef Jóna kom að bekknum aftur, rétt
á eftir að mynd nr. 1 var tekin, og tók
svo köttinn upp og settist, þá hlaut hún
að hafa komið frá framhliðinni. Því fyrst
hún tók köttinn upp fyrst, og settist á
eftir, þá varð hún að fara í kring um
bekkinn, ef hún fengi sér sæti ' eins og
myndin sýnir. Það er þess vegna sem
kötturinn snýr höfðinu í gagnstæða átt á
mynd nr. 2 heldur en á mynd nr. 1.
2. Það eru fimm fingur á hægri liönd
Jónu á mynd nr. 3, fyrir utan þumalfing-
urinn, sem sést ekki. En á mvnd nr. 2
sést, að Jóna hefur réttskapaðar hendur,
svo að teiknarinn hlýtur að hafa gert sig
sekan um skyssu, þegar hann teiknaði
myndina.
3. Litli kettlingurinn hefur sennilega
orðið hræddur, þegar flaskan dalt á gólf-
ið rétt við rófuna á honurn.
62
HEIMILISRITIÐ