Vísbending - 21.12.2009, Blaðsíða 3
Ást er ekki til.
Fílósófía eða melankólía?
Ég var staddur í fombókabúðinni hjá Braga á spjalli við Ara skáld
og bóksala. Þetta var í miðri uppsveiflu í samfélaginu, en í búðinni
hjá þeim feðgum vom engar sveiflur. Lífið þar var fyrirsjáanlegt,
hélt ég. Gengur þá ffamhjá okkur gamall maður og Ari kinkar til
hans kolli og segir mér á honum deili. Ekki mundi hann nákvæmlega
hvað hann heitir en gat nefnt nokkur ættmenni og fyrri störf. Þetta var
góðlegur, lágvaxinn maður. Um áttrætt gæti ég trúað.
Ég rótaði hér og þar í hillum og var eiginlega búinn að fá nóg,
en sé þá öldunginn. Ari var að leita að bók fyrir einhvem, en segir
í framhjáhlaupi við þann gamla: „Sæll meistari!" (Svona er gott að
ávarpa þá sem maður man ekki hvað heita). „Má ég ekki kynna þig
fyrir Benedikt félaga mínum.“ Ari er úr sögunni en við tókumst í
hendur, meistarinn og félaginn.
„Það þyrfti að kenna ungu fólki um tilfinningar í skólunum" sagði
meistarinn.
„Heldurðu það? Er ekki ungt fólk mjög vel fært um að læra um
þær sjálft?" spurði ég, en þótti þetta óneitanlega óvenjuleg byrjun á
samtali.
M:„Það er kúnst að kunna að þykja vænt um einhvem. Ég var lengi
að læra að þykja vænt um nokkum mann.“
B: „Er það samt ekki eitthvað sem flestir ná á endanum, ef þeir em í
góðu umhverfi?“
M: „Hamingjan er varla til í heiminum. Þegar Jesús segir að allir
verði jafnir hélt ég að hann hefði rangt fyrir sér. Það var vegna þess
að ég hélt að allir yrðu jafnsælir. Svo áttaði ég mig á því að í raun
verða allir smám saman daprari og loks enda allir vansælir.“
B: „Það er ekki mikil bjartsýni í þessu, finnst mér.“
M: „Það er engin ástæða til bjartsýni. Er ekki fílósóitan bara önnur
hlið á melankólíunni?"
B: „Eitthvert fólk hlýtur nú að vera hamingjusamt?“
M: „Menn tala um ást. En ást er ekki til. Heimurinn byggir á eigingirni
og drottnunargirni."
BENEDIKT JOHANNESSON
B: „Sumir vilja santt eyða ævinni með
öðrum. Ekki er það eigingimi.“
M: „Eigingimin erhvergi meiri. Segjum að
þú elskir einhvem meira en nokkuð annað.
Þá viltu auðvitað að hann sé hamingjusamur er það ekki?“
Hann beið ekki eftir svari og hélt áfram:
„En ef hinn aðilinn verður ástfanginn af einhverjum, hvemig bregstu
við? Oskarðu honum til hamingju, gleðstu með honum? Nei, þú
verður æfur, eða miður þín. Hvers vegna? Vegna þess að þú ert
eigingjam. Og meira en það, þú vilt segja þeim, sem þú segist elska,
hvað hann á að gera.“
Mér vafðist tunga um tönn og fór að rýna í bókaskápinn fyrir framan
mig og dró út bók. Hún fjallaði um bréfaskipti Valtýs Guðmundssonar
og Bjöm Jónssonar frá því um aldamótin 1900.
M: „Þú verður að fyrirgefa mér. Ég hef aldrei haft trú á Kristin-
dómnum."
Hann leit á bókina.
M: „Það var gaman að lesa bókina um Hannes Hal'stein."
Ég vissi ekki hvort hann var að tala um bók Guðjóns Friðrikssonar
eða Kristjáns Albertssonar en tók séns á þeirri síðamefhdu:
B: „Kristján var skemmtilegur maður. Og mjög hrifinn af Hannesi.“
M: „Hann hafði aðgang að öllum þessum bréfúm. Þess vegna gat
hann sagt svona margt í bókinni. Svo skrifaði hann aðra bók.“
Kristján skrifaði nokkrar bækur svo ég vissi ekki hveija hann átti við.
M: „Já. Hún hét Loksins, loksim. Hann uppgötvaði Laxness."
B: „Var það ekki grein sem Kristján skrifaði?"
M: „Ég las þá bók aldrei. Hún kom út eftir að ég missti sjónina."
Andaifak hélt ég að það hefði slegið útí fyrir mér og ákvað að ég
þyrfti að komast út undir bert loft. Fann mér tilefhi til þess að kveðja
þennan blinda speking sem leitaði í bókabúð til þess að stytta sér
stundir. Kannski að leita sér lærisveina.
Gleðileg jól? Tja, em þau til?
EFNISYFIRLIT
Jólasálmur.................................................2
Frá ritstjóra..............................................3
Upp komast svik............................................4
- Frásögn eftir Benedikí Jóhannesson
Hvað varJón biskup að hugsa?..............................10
—Asgeir Jónsson
Okkar eigin orð...........................................14
- Fleyg orð í endurreisninni - Árið 2009 i Visbendingu
Þeirra eigin orð..........................................15
- Fleyg orð í úlrásinni - Úr bók Ola Björns Kárasonar
Stríð ogfrióur Kjartans Olafssonar........................16
— Páll Asgeir Asgeirsson rœðir við Kjartan
Heilrœði Druckers til framfara............................25
- Eyþór Ivar Jónsson
Innmúrað og innvígt - 20 ár frá falli Berlinarmúrsins.....28
— Páll Slefánsson
heimur
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Jóhannesson.
Útgefandi: Heimurhfi, Borgartúni 23,105 Reykjavík.
Síini: 512 7575. Myndsendir: 561 8646.
Netfang: visbending@heimur.is
Urnbrot og hönnun: Sigurjón Kristjánsson, sjonni@heiinur.is
Prentun: Oddi. Upplag: 5.000 eintök.
Forsíðumynd: Búðarárfoss í Seyðisfirði, Páll Stefánsson.
Öll réttindi áskilin. © Ritið rná ekki afrita án leyfís útgefanda.
VÍSBENDING I 3