Vísbending


Vísbending - 21.12.2009, Side 25

Vísbending - 21.12.2009, Side 25
EYÞÓR ÍVAR JÓNSSON VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR HEILRÆÐI DRUCKERS TIL FRAMFARA PETER DRUCKER í HEILA ÖLD (19. NÓVEMBER 1909 - 11. NÓVEMBER 2005) Stjórnunargúrúinn Peter Drucker hefði orðið 100 ára í ár. Hann samdi nokkrar af bestu viðskiptabókum sem skrifaðar hafa verið. Dmcker hefur aldrei verið í hávegum hafður í akademíunni en hann náði athygli og aðdáun stjórnenda fyrirtækja. Hann var kannski ekki heldurþekkturfyrirmjög vísindaleg vinnubrögð, en snilld hans fólst í hagnýtum ráðleggingum sem einbeittu sér að kjama málsins - að gera réttu hlutina frekar en að gera hlutina rétt. Hann var einstakur rithöfundur. Hugmyndafræði hans mótaðist að miklu leyti á kreppuámnum eftir 1929. Það er þess vegna áhugavert að rifja upp nokkur atriði sem Drucker lagði áherslu á sem ráðgjafi. Aö gera rét+u hlutina frekar en hlutina rétt Drucker er ekki fyrstur til þess að benda á mikilvægi þess að horfa á heildarmyndina frekar en einstaka efnisþætti. Útskýring hans á skilvirkni (efficiency) og árangri (effectiveness) sem muninum á að gera hlutina rétt og gera réttu hlutina er fyrir löngu orðin klassísk. Sennilega er fátt mikilvægara hvort sem er í rekstri fyrirtækja, stofnana eða þjóðfélags en að reyna að skilja hvort verið sé að gera réttu hlutina jafnvel þó að verið sé að gera hlutina rétt. Þessi spuming ætti að vera efst á blaði á tímum sem þessum, þegar verið er að reyna að byggja upp íslenskt atvinnulíf á ný. Dæmi um þetta em ákvarðanir sem em teknar um að endurlífga fyrirtæki sem náðu sterkri stöðu á markaðinum með allt of mikilli skuldsetningu, með því að afskrifa skuldirnar og gefa þeim nýtt líf í krafti hins opinbera. í mörgum tilvikum drepa slíkar ákvarðanir þau fáu fyrirtæki sem áttu möguleika á að sigla út úr ástandinu. Afleiðingin er allsherjar banka- og ríkisvæðing viðskiptalífsins. Kannski finnst bankamönnum |x‘ir vera gera hlutina rétt, en þeir ern ömgglega ekki að gera réttu hlutina. Peter Drucker. Að spyrja spurninga Það verður aldrei sagt of oft hversu mikilvægt það er að setja frant spurningar. Drucker lagði mikla áherslu á að stjórnendur ættu að spyrja spuminga um stöðu og stefnu fyrirtækisins, framtíðarsýn og markmið. Hann hélt því ekki fram að hægt væri að tryggja að fyrirtæki næði árangri með mikilvægum spumingum, heldur hitt, að það væri næstum þvf ömggt að menn myndu taka rangar ákvarðanir ef þeir spyrðu ekki. Dænti um þetta er Icesave-sagan. Það er með ólíkindum, að stjórnendur og stjórn Landsbankans skuli ekki hafa spurt neinna spuminga um hættur og áhrif af ákvörðunum sínum. Það er með ólíkindum að íslensk stjómvöld virðast hafa ætlað að samþykkja Icesave-samninginn við Breta og Hollendinga án jress að spyija nokkuira spurninga um hvað væri í raun verið að semja um. VÍSBENDING I 25

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.