Vísbending


Vísbending - 21.12.2009, Page 27

Vísbending - 21.12.2009, Page 27
Ein spurning sem Drucker hefur senn" lagt fyrir allm forstjóra var: • ' V' A hvaða sviði starfar fyri Þessi spurnff kröfu um að s greind eins og hun er, en ekki eins og stjórnin heldur að hún sé, eða vill að hun se er: „Á hvaða sviði ætti fyrirtækið að vera?“ Þetta er hin klassíska stefnumótunarspuming sem ýtir undir framtíðarsýn, markmið og áætlunargerð. Snýst um að gera réttu hlutina. Þessara þriggja spuminga þurfa íslendingar að spyrja sig núna, bæði einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir og þjóðfélagið allt. Vandamál okkar íslendinga er hvað við emm fljótfærir og viljum helst leysa vandamálin, áður en við skiljum hver þau eru. Við viljum grípa tækifærið áður en við vitum hvað felst í því. Það er með ólíkindum hvað er búið að gera takmarkaða greiningu á stöðu íslensks atvinnulífs cn það er enginn skortur á „lausnum“, sem eru oft lítið annað en skoðanir fólks sem býr yfir afar takmarkaðri þekkingu og reynslu. Þegar rætt er um það sem við „gætum“ gert minnir það meira á pólitík en kerfisbundna leit að tækifæmm. Án þess að fara gegnum fyrstu tvær spumingar Dmckers er næstum því öruggt, að menn taka rangar ákvarðanir um það sem þeir „ættu“ að gera. Þetta eru lykilspurningar til þess að skapa farveg til framtíðar. Þær kalla á agaða vinnu en ekki fordóma. Aö lœra að lœra Fyrir ári síðan var greinarhöfundur beðinn að taka þátt í pallborðsumræðum í Háskóla íslands um hvernig hægt væri að byggja ísland aftur upp eftir hmnið. Eg lagði áherslu á að lykilþátturinn væri lærdómurinn. íslendingar hafa farið ógnarhratt inn í nútímann. Islenski hlutabréfamarkaðurinn er gott dæmi. Það eru minna en tuttugu ár síðan hann var settur á laggimar og í raun einungis rétt rúmlega tíu ár síðan eitthvað líf komst í hann. Um miðjan þennan áratug var hann að mörgu leyti samanburðarhæfur við hlutabréfamarkaði annars staðar á Norðurlöndunum. Nú er hann svipur hjá sjón. Stjómendur og þjóðfélagið í heild hafa farið í gegnum ótrúlega snarpa lærdómskúrfu á stuttum tíma og ættu þess vegna að geta nýtt lærdóminn til að bregðast við aðstæðum. Ef þjóðin væri fljót að læra væri hún fljót að finna fjölina aftur. Ári síðar efast ég um þetta. Þjóðin virðist lítið hafa lært annað en að kenna öllum öðrum um ófarir sínar frekar en að taka sjálf ábyrgð. Kannski er þörf fyrir eitt merkilegasta heilræði Dmckei-s sem var að allir vetði að leggja miklu meiri áherslu á að læra en áður. Hann hélt því hins vegar ffam að flestir kynnu ekki að læra og yrðu að læra að læra. Þá fyrst geta menn séð heildarmyndina og vonandi gert réttu hlutina. Framtíö sem vert er að sœkjast eftir Ég byrjaði að lesa bækumar eftir Dmcker fyrir tuttugu ámm. Eftir á að hyggja hefur sá lestur haft mikil áhrif á að ég tók upp á því að læra viðskiptafræði. Ég hef lært hana nær stanslaust síðan, fyrst sem nemandi, síðan höfundur, svo ráðgjafi og loks kennari. Ég hef notað mikið efni frá Drucker í ræðu og riti og búið til kúrsa við erlenda háskóla sem eru innblásnir af hugmyndum hans. Ég hitti hann aldrei, en á þrjá góða vini sem unnu með honum um margra ára skeið. Ég er f litlum vafa um að hægt væri að nýta mörg heilræði hans til þess að skapa eftirsóknarveröa framtíð á íslandi. Til hamingju með afmælið meistari! Ri VÍSBENDING I 27

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.