Vísbending


Vísbending - 21.12.2009, Síða 28

Vísbending - 21.12.2009, Síða 28
INNMÚRAÐ OG INNVÍGT TUTTUGU ÁR FRÁ FALLI BERLÍNARMÚRSINS TEXTI OG MYNDIR PÁLL STEFÁNSSON Held ég hafi orðið vitni að fyrstu sprungunni sem kom í Berlínarmúrinn. Það var reyndar þremur árum fyrr á Haga- torgi. Eftir misheppnaðan leiðtogafund í Borgartúninu hélt Ronald Reagan, sigurreifúr, ræðu í herstöðinni á Kefla- víkurflugvelli. Á sama tíma hélt Gorbatosjov tilfinningaþmngna ræðu um frið í Háskólabíói, svo tilfinningaþrungna að ég sá Matthías, ritstjóra Morgunblaðsins, komast við, fella tár. Á þessu augnabliki höíðu Ráðstjómarríkin tapað kalda stríðinu. Þeir gátu ekki varist Star wars áætlun Bandaríkjanna, hötðu hvorki aura eða tæknilega þekkingu til að svara stjömustríðsáætlun ríkisstjómar Reagans. Þarna flísaðist fyrst úr Berlínarmúrnum. Þremur ámm seinna, í byrjun nóvember, hrópuðu mótmælendur í Leiplzig ákall til Gorbatosjovs; Gorbi, Gorbi, Gorbi. Ráðstjómarríkið hatði fengið mennska ásjónu. Tími til breytinga. Frá stofnun Þýska alþýðulýðveldisins, DDR, árið 1949, fram til 13. ágúst 1961 þegar múrinn var reistur hötðu þrjár og hálf milljón Austur-Þjóðverja farið vestur, hátt í fjórðungur íbúa. Hlutfall fólks á vinnumarkaði haíði fallið niður í 61%, það var orðinn tilfinnanlegur skortur á menntuðu fólki, þeir sem kláruðu skóla sáu betri tækifæri fyrir vestan. Eflir að múrinn var reistur tókst einungis fimm þúsund manns að flýja. Milli eitt og tvöhundmð létust á flótta yfir í sæluna. Það er til upptaka af símtali, sem Nikita Krústjov á við Walter Ulbricht, aðalritara austur-þýska kommúnistaflokksins, 1. ágúst 1961, þar sem Sovétleiðtoginn leggur til að reistur verði andfasísk vamargirðing umhverfis Vestur-Berlín. Og þrettán dögum síðar reistu þeir 156 kílómetra langa gaddavírsgirðingu, girtu af vesturhluta Berlínarborgar. Þar af eru 43 kílómetrar í byggð. Múrinn var örlítið inn í austurhlulanum, svo ekki skapaðist hætta á núningi við Veslurveldin. Frá 1965 og næstu tíu ár var síðan gaddavírinn tekinn niður og múrinn steyptur, Stiitzwandelement UL 12.11 kallaðist hann upp á austurþýsku. Þetta er múrinn, Berlínarmúrinn, sem við þekkjum svo vel, 3,6 metra hár, úr sérstyrktri steypu. Kostnaður 3,6 milljónir dollara. Og þann 9. nóvember 1989 bmstu allar flóðgáttir, fólkið hafði sigrað, múrinn féll. 28 | VÍSBENDING

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.