Vísbending


Vísbending - 21.12.2009, Page 29

Vísbending - 21.12.2009, Page 29
Litríkur vestwhlutinn við K'ilain. Er þetta óhœtt? Mánuðina á undan hafði verið órói í Austur-Evr- ópu. Leiðtogar Vesturveldanna höiðu miklar áhyggjur af ástandinu. í september, tveimur mánuðum áður en múrinn féll, grátbað Margrét Thatcher, þáverandi forsætisráðherra Stóra-Bret- lands, Gorbatosjov um að gera allt, sem í hans valdi stæði til þess að koma í veg fyrir að múr- inn félli. Hún hafði miklar áhyggjur af sameinuðu Þýskalandi. Orðrétt: „We do not want a united Germany. This would lead to a cliange to postwar borders, and we cannot allow that, because such a development would undermine the stability of the whole intemationai situation and could endanger our securityEn það var ekki bara jámffúin sem hafði áhyggjur, Mitterand Frakklandsforseti, lýsti því yfir, að sameinað Þýskaland gæti orðið stærra en þúsund ára ríki Hitlers. Og öll Evrópa þyrfti að fást við afleiðingamar. En fólkið vann, Þýskaland sameinaðist 3. nóv- ember 1990, rétt tæpu ári eftir að múrinn féll. Skömmu eftir fall múrsins kom ég til Berl- ínar, vildi verða vitni að heimsviðburði. Það sem strax vakti athygli mína var hin stóíska ró. Austan- fólkið, hrifið, undrandi, eins og í draumi. Var þetta raunveruleiki? Og minjagripimir áður en haldið var heim aftur til að sofa voru bananar og appelsínur. Forboðnir ávextir, ávextir sem þau þekktu bara af myndum. Appelsínur, eins og björt sól, tákn nýs tíma. Næstu dagar: Endalaus röð af Trabantbílum í vesturhlutanum, og á kvöldin hlátrarsköll, fyllerí og taumlaus gleði yfir að heimurinn væri að breytast. Hratt. Þetta var allt svo óraunverulegt. Hafði komm- únisminn beðið skipbrot? í Kína nokkmm mán- uðum fyrr hafði flokkurinn barið niður beiðni um breytingar á Torgi hins himneska friðar. En í Evrópu var andrúmið allt annað. Flauelsbyltingin sem var að hefjast í Tékkóslóvakíu endaði með því að Havel tók við forsetaembættinu þar tveimur dögum áður en árið var úti. Otrúlegt. Minjagripir. Úreltir búningar austan at). VÍSBENDING I 29

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.