Fréttatíminn - 19.07.2013, Síða 10
www.kia.com
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3-
20
34
Kia Rio 1,1 dísil, sex gíra, eyðir frá 3,6 lítrum á hundraðið í blönduðum akstri.
Magn CO2 í útblæstri er mjög lítið eða aðeins 94 g/km og fær hann því frítt í
stæði í Reykjavík í 90 mínútur í senn. Einnig fáanlegur sjálfskiptur með bensínvél.
Eigum bíla til afgreiðslu strax! Komdu og reynsluaktu.
Alveg magnaður Rio með sjö ára ábyrgð
7 ára ábyrgð á öllum
nýjum Kia bílum.
*M.v. 1.500.000 kr. útborgun eða uppítökubíl að sambærilegu verðmæti og bílasamning ERGO
í 84 mánuði. 9,4% óverðtryggðir vextir. Árleg hlutfallstala kostnaðar 11,57%.
Verð frá 2.570.777 kr. Rio 1,1 dísil
Aðeins 18.390 kr. á mánuði í 84 mánuði*
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg
Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@
frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
S
Sumarfrí standa sem hæst um þessar mundir enda
er júlí veðurblíðasti mánuður ársins, að öllu for-
fallalausu. Nauðsynlegt er hverjum vinnandi manni
að taka sér frí og safna orku til hausts og vetrar – og
njóta fjölskyldusamvista. Frítíminn er því mikilvæg-
ur þegar daglegt amstur er brotið upp með hléi frá
vinnu. Sameiginlegt frí styrkir fjölskyldubönd.
Augljóst má þó vera að ekki komast allir í frí á sama
tíma. Þótt hægi á víða í samfélaginu yfir hásumarið
verða öll hjól að snúast, hvort heldur er hjá stofn-
unum eða fyrirtækjum. Sumarfríum
verður því að dreifa á fleiri mánuði en
júlí einan enda eru þau skipulögð hjá
flestum á tímabilinu frá júníbyrjun til
ágústloka þótt sumum henti að taka frí
annað hvort að vori eða hausti.
Í mörgum fyrirtækjum og stofnunum
getur verið vandi að láta sumarfría-
kapalinn ganga upp. Þar er einn helsti
áhrifavaldurinn júlílokun leikskóla en
flestir leikskólar Reykjavíkur, Kópa-
vogs og Hafnafjarðar loka þá í fjórar
vikur eða lengur. Fríaþörf foreldra með
börn á leikskólaaldri beinist því öll að þessum tíma.
Fyrirtæki og stofnanir reyna að mæta þessu álagi en
víða reynist það erfitt eða jafnvel óframkvæmanlegt.
Sumarlokun leikskólanna er óheppileg og sætir furðu
að til hennar þurfi að koma. Hún leiðir jafnvel til þess
að fjölskyldur leikskólabarna komast ekki saman í
frí. Aðstæður á vinnustöðum eru þannig að dreifa
verður fríum. Því verða foreldrar leikskólabarna
oftar en ekki að fara í frí í sitt hvoru lagi á lokunar-
tímanum. Þeir gætu hins vegar eytt sumarfríi sínu
saman á öðrum tíma þar sem saman færu hagsmunir
fjölskyldu og vinnustaðar. Öll leikskólabörn eiga að
taka fjögurra vikna samfellt frí árlega úr leikskólum
en hugsunin á bak við þá sjálfsögðu reglu hlýtur að
vera sú að á þeim tíma sé fjölskyldan saman í fríi í
stað þess að vera með öðru foreldrinu í tvær vikur og
hinu í tvær.
Um þennan vanda var fjallað í frétt í Fréttatímanum
síðastliðinn föstudag. Þar kom fram að nær allir leik-
skólar í Reykjavík loka í fjórar vikur og hefst tímabilið
með fáum undantekningum í júlí. Frístundaheimili í
Reykjavík loka einnig flest seinni hluta júlí. Í fréttinni
kom fram að algengt væri að foreldrar yrðu að kaupa
sér barnagæslu á þessu lokunartímabili leikskólanna
vegna þess að þeir hefðu ekki tök á því að fara í frí
þá. Í Hafnarfirði stendur sumarlokun leikskóla yfir
í fimm vikur en fjórar í Kópavogi, líkt og í Reykja-
vík. Fram kom hjá formanni foreldraráðs leikskóla
Hafnarfjarðar að öll foreldraráð í bænum væru ósátt
við fimm vikna lokun. Bent var á að starfsfólk sumra
fyrirtækja hefði ekki val um tíma sumarfrís og ætti
það meðal annars við um álverið, hinn stóra vinnu-
veitanda í Hafnarfirði. Fólk hefði því orðið að taka
sér launalaust frí eða að fjölskyldur hefðu ekki getað
tekið sér sumarfrí saman vegna þessa. Formaður
foreldraráðanna tók fram að sumar barnafjölskyldur
hefðu hreinlega séð eftir því að setjast að í bænum
vegna þessa.
Í Garðabæ er leikskólum ekki lokað að sumarlagi.
Afleysingarfólk er ráðið vegna sumarfría starfsfólks-
ins. Upplýsingastjóri Garðabæjar sagði, að því er fram
kom í fréttinni, að þetta fyrirkomulag hefði verið við
lýði í bænum í mörg ár til þess að bæta þjónustu við
bæjarbúa. Í Mosfellsbæ er samstarf milli leikskóla
yfir sumartímann og sameiginleg starfsstöð á einum
leikskóla til þess að bjóða fólki þjónustu sem hefur
ekki tök á því að fara í frí í júlí.
Yfirvöld í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði hljóta
að ígrunda stöðuna og horfa til fordæma smærri
bæjarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu sem ráða fólk
í sumarafleysingar á leikskólunum og halda þeim
opnum. Allsherjarlokun þeirra í fjórar til fimm vikur
samtímis er ekki viðunandi.
Júlílokun leikskóla sundrar fjölskyldum í fríi í stað þess að sameina
Óviðunandi sumarlokun
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Tónlistar- og mynd-
listarmaðurinn ástsæli
Jóhann G. Jóhannsson
lést í byrjun vikunnar.
Hann var 66 ára gamall
og hafði um árabil
barist við krabbamein.
Jóhann samdi fjölda
sígildra dægurlaga en
eitt hans allra vinsæl-
asta lag er Doń t Try
To Fool Me. Á löngum
ferli lék Jóhann meðal
annars með hljóm-
sveitunum Straumar,
Óðmenn, Musica Prima,
Óðmenn II, Tatarar,
Náttúra og Póker.
Vinir og samferðafólk
Jóhanns minntist hans
víða á Facebook.
Grétar Örvarsson
Jói var mikið ljúfmenni og
góður vinur. Fallinn er frá
einn fjölhæfasti lagahöf-
undur og listamaður Íslands.
Halldór Bragason
Jóhann G. fallinn frá,
sorgarfréttir fyrir íslenska
tónlistarmenn.
Selma Björns
Blessuð sé minning Jóhanns
G. Jóhannssonar. Ég var svo
lánsöm að fá að syngja eitt
af lögum hans á plötunni
Asking for love. Jóhann
samdi nokkur af mínum
uppáhaldslögum. Hann
var einstakur tónlistar-
maður og eðal ljúflingspiltur.
Heimurinn er fátækari í dag.
Margrét Hrafns
Blessuð sé minning þín
meistari Jóhann G. Jóhanns-
son. Vottum fjölskyldu og
vinum samúð
Bó Halldórsson
Monday
Eitt fallegasta lag Jóhanns
G Jóhannssonar „Ég tala um
þig“ sem ég var svo heppinn
að fá að frumflytja árið
1978 á plötunni „Ég syng
fyrir þig“ ...Þetta lag flyt ég
alltaf á tónleikum mínum.
Guð blessi minningu Jóa
sem skilur mikið skarð eftir
sig í tónlistarsögu okkar.
Samúðarkveðjur sendum við
fjölskyldu og vinum
Orri Harðarson
Í æsku minni var Jóhann G.
eins og útlensk stjarna; ein
þeirra sem maður mændi
andaktugur á, þegar að
Gufan opnaði manni glufu
til að gægjast upp í himin-
hvolfin. Stjarna nýgildrar
tónlistar. Don‘t Try To Fool
Me og Yesterday voru
ólýsanlegur galdur í eyrum
mér. Melódísk undur. Og
lengi vel hélt ég að Paul
hefði samið þau bæði. Minn-
ingin lifir.
Vikan Sem Var
10 viðhorf Helgin 19.-21. júlí 2013