Fréttatíminn - 19.07.2013, Blaðsíða 17
ELLILÍFEYRISÞEGAR
Frítekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega hækkar úr 480.000 kr. í 1.315.200 kr. á ársgrundvelli, eða í sem svarar 109.600 kr. á mánuði frá 1. júlí 2013.
ELLI-, ÖRORKU- OG ENDURHÆFINGARLÍFEYRISÞEGAR
Lífeyrissjóðstekjur munu ekki lengur hafa áhrif á grunnlífeyri almannatrygginga. Breytingarnar geta leitt til hækkunar lífeyrisgreiðslna hjá um 15% lífeyrisþega.
Þeir sem eru 67 ára og eldri og hafa ekki þegar sótt um ellilífeyri eru hvattir til að skoða rétt sinn til greiðslna.
Við útreikning réttinda er árstekjum almennt dreift á 12 mánuði. Lífeyrisþegar sem eru með misdreifðar tekjur á árinu 2013 geta þó óskað eftir að fá tekjum sínum skipt niður á tímabil fyrir og eftir 1. júlí 2013. Hagstæðari leiðin verður síðan valin fyrir alla við endurreikning og uppgjör ársins 2013 sem fram fer um mitt ár 2014.
Breytingar á lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 samþykktar á Alþingi 4. júlí 2013.
Breytingarnar gilda frá 1. júlí 2013.
Leiðrétting vegna júlímánaðar verður greidd út 1. ágúst.
Upplýsingar um greiðslur lífeyris verða aðgengilegar á Mínum síðum á tr.is þann 24. júlí 2013.
Reiknivél lífeyris á tr.is hefur verið uppfærð miðað við nýjar forsendur.
NÁNARI UPPLÝSINGAR - ÞJÓNUSTULEIÐIR:
Vefur: tr.is Laugavegur 114 og umboð um allt land Netsamtal Sími 560-4460
Tölvupóstur: tr@tr.is
PO
RT
ön
nu
n
Breytingar á lífeyrisgreiðslum
almannatrygginga 2013
Laugardal en ef það er mjög gott
veður æfi ég á götunum heima
í Reykjanesbæ. Maður getur
æft sig víða,“ segir Arnar sem
stefnir að því að ná betri árangri
í lengri vegalengdum í fram-
tíðinni þó hann einbeiti sér að
sprettum núna og fer stundum
hálft maraþon, 21,1 kílómetra,
heima í Reykjanesbæ. Arnar
æfir með landsliðshópi fatlaðra
undir stjórn Kára Jónssonar.
Arnar segir lykillinn að góð-
um árangri undanfarna mánuði
því að þakka að hann hafi lagt
flest allt annað til hliðar og ein-
beiti sér að íþróttinni. „Ég vann
við bókhald áður en er hættur
því núna. Ég einbeiti mér bara
að þessu og lít á íþróttina sem
vinnuna mína núna. Flest allt
sem ég geri snýst bara um þetta.
Það er lykillinn að þessum ár-
angri sem ég er að ná núna. Það
er ekki hægt að koma meiru að
þegar maður á fjölskyldu,“ segir
Arnar. Æfingarnar í Laugardal
og Kaplakrika taka fjóra tíma
með akstri, lyftingaæfingin
tekur einn og hálfan til tvo tíma
og morgunæfingin einn klukku-
tíma svo æfingarnar taka sex til
átta tíma hvern dag.
Arnar er nú að undirbúa að
sækja um styrki til fyrirtækja til
stunda sína íþrótt. „Ég fæ vörur
frá Herbalife í hverjum mán-
uði en hef varla haft tíma til að
sækja um styrki, það hefur verið
svo svakalega mikið að gera. Á
næsta ári fer ég sennilega tíu
ferðir til útlanda að keppa til að
vera samkeppnishæfur. Ég verð
að mæta á mót og sjá hvað hinir
eru að gera. Maður verður að
vera í eldlínunni til að geta drifið
sig áfram. Hérna heima hef ég
enga samkeppni en get reyndar
keppt við hlaupara en það er ekki
eins. Venjulegur hlaupari stingur
mig af í startinu en svo þegar
lengra liður á hlaupið þá ætti ég
að draga á hann. Ég fer hægar
upp brekkur en hraðar niður
þær. Þannig að það er margt sem
er ólíkt þó þetta sé flokkað sem
hlaupagrein hjá fötluðum.“
Slysið og föðurhlutverkið
breyttu viðhorfi til lífsins
Arnar lenti í mótorhjólaslysi á
Helguvíkurvegi árið 2002 og
segir viðhorf sitt til lífsins hafa
breyst mikið eftir það þó hann
sjálfur hafi ekki tekið eftir því
fyrst eftir slysið. ,,Ég væri ekki
samkvæmur sjálfum mér ef ég
segði að ég hefði ekki breyst
neitt og væri alltaf eins. Þegar
Þegar frændi minn lenti í mótorhjólaslysi og lamaðist nokkrum árum fyrr
en ég, hélt ég að ef þetta myndi koma fyrir mig myndi ég bara vilja deyja.
Maður veit aldrei hver viðbrögðin verða fyrr en maður lendir sjálfur í ein-
hverju svona. Í dag lifi ég frábæru lífi og myndi auðvitað aldrei vilja deyja.
Arnar Helgi keppir í 100
og 200 metra hjólastóla-
kappakstri á HM fatlaðra.
Mynd/Birgir Ísleifur
Arnar hefur aðeins æft hjólastóla-
kappakstur í sjö mánuði en náð góðum
árangri. Mynd/Birgir Ísleifur
Framhald á næstu opnu
Framhald á næstu opnu
viðtal 17 Helgin 19.-21. júlí 2013