Fréttatíminn - 19.07.2013, Síða 15
Arnhildur Anna
Árnadóttir
21 árs
Bekkpressa: 90 kíló.
Hnébeygja: 165 kíló.
Réttstöðulyfta: 160 kíló.
Fanney Hauksdóttir
20 ára
Bekkpressa: 115 kíló.
Hnébeygja: 110 kíló.
Réttstöðulyfta: 115 kíló.
VERÐLAUNUÐ LEIÐ
TIL BJARTRAR FRAMTÍÐAR
Frjálsi lífeyrissjóðurinn
Á síðustu árum hefur Frjálsi lífeyrissjóðurinn þrisvar unnið hin alþjóðlegu verðlaun
Investment Pension Europe sem besti lífeyrissjóður á Íslandi. Þessar viðurkenningar
endurspegla sterka stöðu sjóðsins og árangur hans undanfarin ár.
Ef þú hefur frjálst val um hvar þú ávaxtar skyldulífeyrissparnaðinn þinn og vilt faglega
stýringu þá er Frjálsi lífeyrissjóðurinn góður kostur. Jafnframt stendur öllum til boða
að ávaxta viðbótarlífeyrissparnað sinn hjá Frjálsa lífeyrissjóðnum.
Þú færð ítarlegar upplýsingar um sjóðinn í næsta útibúi Arion banka, á www.frjalsilif.is,
með því að senda fyrirspurn á lifeyristhjonusta@arionbanki.is eða í síma 444 7000.
5%
10%
15%
Frjálsi 1 Frjálsi ÁhættaFrjálsi 2 Frjálsi 3
12,1%
7,2%
Nafnávöxtun 30.06.2012 – 30.06.2013
5 ára meðalnafnávöxtun tímabilið 30.06.2008 – 30.06.2013
8,1%
8,3% 8,0%
10,5%
6,4%
9,9%
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3-
19
67
ÁVÖXTUN
FRJÁLSA LÍFEYRISSJÓÐSINS
Ávöxtun í fortíð gefur ekki vísbendingu um ávöxtun í framtíð. Fimm ára
ávöxtunartölurnar sýna meðalnafnávöxtun frá 30.06.2008 – 30.06.2013
en ávöxtunin er mismunandi á milli ára. Frekari upplýsingar um ávöxtun
hvers árs má nálgast á frjalsilif.is.
Æfa í þrjá tíma á dag
Arnhildur byrjaði í kraftlyft-
ingum fyrir einu og hálfu
ári. Mamma hennar var einn
stofnenda kraftlyftingadeildar
Gróttu og smitaði hana af
áhuganum. „Svo var Fanney
byrjuð og hafði eflaust einhver
smitandi áhrif líka,“ segir
hún.
Árangurinn hefur ekki látið
á sér standa því Arnhildur
á Íslandsmetið í hnébeygju
unglinga og stóð sig vel á
Evrópumóti unglinga í vor.
Þær stöllur leggja líka hart að
sér til að ná árangri. „Ég æfi
svona fjórum til fimm sinnum
í viku og hver æfing tekur
svona þrjá klukkutíma. Dag-
skráin er mjög þétt og maður
þarf að skipuleggja daginn
svolítið út frá æfingunni,“ seg-
ir Arnhildur sem hefur nám í
sálfræði í HÍ í haust.
Arnhildur segist ekki vita
hvað framtíðin ber í skauti
sér og hversu lengi hún muni
stunda lyftingar. „Ég stefni nú
ekki að því að eldast í þessu
en mig langar að halda aðeins
áfram og ná mínum markmið-
um. Aðalatriðið er þó að hafa
gaman af þessu.“
Ertu ekki orðin miklu sterk-
ari en mamma þín?
„Úff, ég má ekki svara þess-
ari spurningu. Jú... ég tók
aðeins fram úr henni.“
Kærastinn fer bara í
spinning
Þær stöllur segja að fólk taki
því misjafnlega þegar það
fréttir hvernig þær verja frí-
tíma sínum. Arnhildur deilir
vitanlega þessu áhugamáli
með móður sinni, Borghildi
Erlingsdóttur forstjóra Einka-
leyfastofunnar. Pabbi hennar,
Árni Hauksson fjárfestir, og
kona hans Inga Lind Karls-
dóttir, segja sportið grjóthart
og skondið, enda auðvelt að
slá þessu upp í grín. „Pabbi er
nú líka stoltur af mér og mont-
inn, svei mér þá. Hann varar
vini sína við í matarboðum að
ég geti lyft þeim og sé alltaf
klár í sjómann. Vinirnir fussa
eiginlega bara þegar þetta
berst í tal, þeir eru alla vega
ekki mikið að tala um hvað
þeir lyfta.“
Fanney segir pabba sinn
aðal hjálparhelluna. „Pabbi
mætir með mér á öll mót og
vill meina að það séu ekki
margir feður með sama vanda-
mál og hann, að dóttirin taki
meira í bekk!“
Arnhildur segir að það geti
vel farið saman að lyfta 165
kílóum í hnébeygju og spóka
sig í gellufötum á djamminu.
„Maður verður að halda kven-
leikanum líka. Ég ætla ekki að
verða einhver Gyða Sól,“ segir
hún og hlær.
Fanney segir að það geti
stundum verið pirrandi að
fara út að skemmta sér þegar
fólk vill ræða um bekkpressu
við hana. „Sumum finnst þetta
fáránlegt en öðrum finnst
þetta geðveikt kúl. Fólk vill
oft djóka eitthvað með þetta
en við erum ekki mikið að
pæla í því.“
Er þetta ekki skrítin tilfinn-
ing, að vera sterkari en strák-
arnir?
„Nei, nei. Það var hins
vegar erfiðara fyrir kærastann
minn. Hann hætti eiginlega að
lyfta þegar ég byrjaði. Nú fer
hann bara í spinning,“ segir
Fanney.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Fanney lyftir 115
kílóum í bekkpressu.
Hún er 162 sentímetr-
ar á hæð og 58 kíló.
viðtal 15 Helgin 19.-21. júlí 2013