Fréttatíminn - 19.07.2013, Side 20
Flótti til sólar-
landa er ekki
svarið þótt
sýna megi þeim
örvæntingar-
fyllstu vissan
skilning þegar
þeir eltast við
sólina á milli
landshorna
eða fljúga á vit
hennar.
KEVIN
BACON
STJÖRNUM PRÝDDUR MATSEÐILL
«78
VELDU AF OSTGÆFNI
«80
«82
«93
GAGGALA—GÓMSÆTUR
Eftirlitsmyndavél fyrir sumarbústaði og heimili
· Tekur venjulegt GSM SIM kort
· Hægt að panta mynd eða hlusta svæði.
· SMS og MMS viðvörun í síma og netf.
· Lætur vita ef rafmagn fer af og hiti breytist.
· Hægt er að tengja allt að 15 auka skynjara.
· Vöktun á heitum potti, raka, þrýstingi o..
S. 699-6869 · rafeindir@internet.is · www.rafeindir.is
Í
slendingar eru alltaf með veðrið
á heilanum og geta endalaust
velt því fyrir sér, rýnt í skýin
og talað um rigningu, slyddu,
snjó, rok, sól og millibör fram og
aftur. Sjálfsagt á þessi sjúklegi
veðuráhugi rætur að rekja til fyrri alda
þegar afkoma, líf og dauði réðust fyrst og
fremst af veðrinu. Í raun eru samt undur
og stórmerki að þjóð sem hefur í gegnum
alla sögu sína verið veðurbarin og van-
ist illu í þessum efnum láti geðslag sitt
enn stjórnast af hæðum og lægðum yfir
landinu. Samkvæmt kenningum Darwins
hljóta þeir sem njóta lífsins á öld hinna
algeru þæginda að vera afkomendur
þeirra hörðustu og í raun ætti ónæmi
fyrir veðrabrigðum að vera rótgróið í
erfðamegi Íslendingsins. En kannski er
D-vítamínskortur sólarleysisins svona
svakalegur að taugakerfin hrynja unn-
vörpum.
Málshættir, orðtök, klisjur og innan-
tómir frasar eru sígild haldreipi okkar
sem byggjum þetta miskunnarlausa
land en „enginn er verri þó hann vökni“,
„þetta er gott fyrir gróðurinn“ og annað
álíka heldur ekki lengur vatni. Sunnan-
lands heldur einfaldlega ekkert vatni og
er gegnsósa. Blessaður gróðurinn hlýtur
að fara að drukkna og á tali fólks og til-
finningatjáningu þess á Facebook blasir
við að margur versnar við að vökna. Dag
eftir dag eftir dag.
Ekki dugir þó að láta bugast og rétt
að hafa í huga að flest sem hægt er að
gera sér til dægrastyttingar í góðu veðri
er einnig mögulegt í rigningu. Fyrst og
fremst snýst þetta um hugarfar og að
laga sig að aðstæðum. Rétt er að hafa
ávallt í huga að það er ekki rigningin sjálf
sem kemur okkur úr stuði og í vont skap,
heldur viðhorf okkar til hennar.
DV greindi frá því í vikunni að veðrið
sé í sumum greinum farið að hafa nei-
kvæð efnahagsleg áhrif. Mun minna er
víst að gera á kaffihúsum miðborgar-
innar en í fyrra og einhverjir íssalar bera
sig illa. Samt sem áður berast reglulega
fréttir af því að biðröðin í ísbúðina Valdísi
sé margra metra löng. Ís er semsagt líka
góður í leiðinlegu veðri. Og kaffibollinn
veður rigningarsumarið 2013
Er rigningin góð,
la-la-la-la-la, o-ó?
Rigningarsumarið mikla 2013 hvílir þyngra á mörgum landsmanninum en
snjóhengjur, gjaldeyrishöft, staða Íbúðarlánasjóðs og hugmyndir um hertar
kröfur um námsframvindu hjá LÍN. Vætutíðin sunnanlands virðist endalaus
og enn er dökkt yfir kortunum. Sá síkáti og ofurjákvæði veðurspámaður Siggi
stormur telur að í fyrsta lagi rofi til þegar komið er vel inn í ágúst. Samfélags-
miðillinn Facebook er ágætis mælikvarði á geðsveiflur þjóðarinnar og þar er
ljóst að langlundargeðið er þrotið. En fátt er til ráða enda víst ekki hægt að
berja í búsáhöld eða senda forsetanum mótmæli með undirskriftalistum.
20 úttekt Helgin 19.-21. júlí 2013