Fréttatíminn - 19.07.2013, Síða 33
Bragagata, Laugavegur og Suðurlandsbraut / 562 3838 / eldsmidjan.is
Nei takk!
Pöntum bara pizzu
jónas sigurðsson um ferðalagið
Ótrúleg upplifun
j ónas Sigurðsson tónlistarmaður er einn hljómsveitarmeðlima á Húna II sem hefur ferðast í kringum landið og
haldið tónleika til styrktar björgunarsveitum á hverjum stað.
„Þetta er búið að vera ótrúlegt. Maður er uppiskroppa með
lýsingarorð. Fyrst þegar við lögðum af stað stóðum við upp á
dekki og sögðum „vá“ og „þetta er ótrúlegt“ og þar fram eftir
götunum en svo kláruðum við bara orðin,“ segir Jónas. „Það
hefur verið magnað að fá að sigla hringinn í kringum landið
á skipi og upplifa þetta allt saman, bæði siglinguna sem tón
leikana á hverjum stað, allt fólkið sem hefur komið til að sjá
okkur,“ segir hann.
Aðspurður segir hann hugmyndina að túrnum hafa kvikn
að á tónleikaferð sinni og Ómars Guðjónssonar um landið í
fyrra sem þeir fóru ásamt Jóni Þór Þorleifssyni sem er fram
kvæmdastjóri tónleikaferðarinnar. „Jón Þór er svona maður
sem lætur hlutina gerast. Við hittum Mugison á túrnum og
viðruðum við hann hugmyndina um að fara á skipi hringinn í
kringum landið. Svo fór bara boltinn að rúlla. Allir sem hafa
komið að þessu hafa gert það af fullum krafti, Hollvinir Húna
tóku strax mjög vel í hugmyndina, sem og RÚV og Lands
björg,“ segir Jónas.
Spurður hvað hafi verið eftirminnilegast við túrinn segir
hann ekki hægt að taka neitt eitt út. „Það sem stendur upp
úr er þessi ótrúlegi hópur. Um borð er hljómsveitin,
sex manna áhöfn úr Hollvinum Húna, kvikmynda
tökulið frá RÚV og fjölskyldur og börn, alls
um 50 manns. Öllum var troðið um borð í þetta
skip og það hefur verið endalaust hlegið. Við
fórum til að mynda öll saman og fengum
okkur tattú því við urðum að eiga
eitthvað varanlegt til minningar
um ferðina,“ segir Jónas. Hann
segir ólýsanlegt að standa uppi
á dekki eftir tónleika og horfa
á bæinn, sem þau hafi heim
sótt þann daginn, fjarlægjast og
sólina setjast. „Þetta er Ísland. Hver þarf
heimsreisu?“
Jónas Sigurðsson tónlistarmaður sem siglt hefur
með Húna II umhverfis landið.
Iðnaðarsafn-
ið á Akureyri
hefur stuðlað
að því að
varðveislu
Húna II og
þar með
varðveislu
sögu tré-
skipaútgerð-
ar á Íslandi.
á land og láta þau grotna
niður eins og því miður er
svo algengt,“ segir Víðir.
Í dag er Húni II notaður
við ýmis tækifæri og siglt
er út með vinnustaðahópa,
veislur eru haldnar í honum
en Hollvinafélag Húna II
er ekki í skipulögðum við
skiptum með siglingar.„Við
erum að sigla á Húna II til
þess að varðveita hann,“
segir Víðir.
Undanfarnar vikur hefur
áhöfn Húna II verið að safna
ágóðanum af tónleikunum
til styrktar björgunarsveit
unum í landinu öllu. Loka
tónleikarnir verða haldnir
á Akureyri á morgun,
laugardag. Þá verða niður
stöðutölur úr söfnuninni til
kynntar í beinni útsendingu
á RÚV. „Það er mikil ánægja
hjá björgunarsveitum um
allt land og mikið þakklæti
til allra í áhöfn, hljómsveit
og allra sem að þessu koma.
Það er svo mikil hugsjón í
þessu verkefni sem er al
gjörlega í anda þeirra gilda
sem félagið okkar stendur
fyrir,“ segir Jón Svanberg
Hjartarson, framkvæmda
stjóri Landsbjargar.
Spilandi áhöfn Húna II er
skipuð tónlistarmönnunum
Jónasi Sig, Láru Rúnarsdótt
ur, Mugison, Ómari Guð
jónssyni, Guðna Finnssyni
og Arnari Gíslasyni.
María Elísabet Pallé
maria@frettatiminn.is
viðtal 33 Helgin 19.-21. júlí 2013