Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.07.2013, Síða 34

Fréttatíminn - 19.07.2013, Síða 34
34 ferðir Helgin 19.-21. júlí 2013  kaffihús UpplifUn á ferðalaginU The Barn, Berlín Auguststrasse er ein skemmti- legasta gatan í Mitte hverfinu. Hér blómstra fjölbreyttir matsölu- staðir og sérverslanir sem laða til sín Berlínarbúa og ferðamenn frá morgni til kvölds. Einn þessara staða er The Barn, lítið kaffihús með örlitlum amerískum brag eins og nafnið gefur til kynna. Starfs- fólkið vandar sig við að útbúa kaffi og te og hér er enginn ys og þys. Gulrótakaka hússins, með hökkuð- um möndlum í kreminu, er ljúffeng og samlokurnar, sem eru smurðar á staðnum, eru mjög girnilegar. Jimmy ś Coffee, Toronto Í fjölmennustu borg Kanada eru um fimmtíu Starbucks kaffihús. Jimmy´s Coffee er að finna á tveim- ur stöðum í borginni, við hinn skemmtilega Kensington Market (191 Baldwin) og 107 Portland Street. Hér er kaffið í hávegum haft og úrvalið af sætabrauði er það gott að það er óþarfi að eyða matar- lyst í hollustumúffu hússins. Það er frítt net hjá Jimmy og svo má líka fá lánað hleðslutæki í símann. The Market, Denver Larimer Street er sennilega þekkt- asta gatan í Denver og þangað mæta þeir sem vilja fá sér gott í svanginn. The Market er eitt af flaggskipum götunnar og það leynir sér ekki að þar eru fasta- gestirnir margir. Sumir ganga inn um dyrnar, kinka kolli til þjón- ustufólksins og setjast svo á sitt borð. Stundarkorni síðar mætir svo gengilbeina með „skammtinn“. Fremsti hluti staðarins er kaffihús og þar er færðu kaffi og með því en fyrir innan er að hægt að panta heita rétti allan daginn. Peclard, Zürich Það er leit að fallegra kaffihúsi í hinum sjarmerandi gamla bæ í Zürich. Peclard er skipt upp í þrjá ólíka sali og tvö útisvæði. Gestirnir geta því sest í mjúkan sófa í rauðu rokókóstofunni á annarri hæð, á klassískt kaffihús frá fyrri hluta síðustu aldar á neðstu hæðinni eða jafnvel út í fallegan bakgarð. Pecl- ard er við Napfgasse 4 og hundrað metrum frá er eitt af útibúum Starbucks. En þrátt fyrir fínheitin á því fyrra þá kosta veitingarnar þar ekki mikið meira en hjá banda- rísku keðjunni. Brew lab, Edinborg Kaffi er dauðans alvara á þessum nýlega kaffibar, ekki svo langt frá Edinborgarkastala (6 South College Street). Hér notast menn við Slayer kaffivél en þær þykja fínasta fínt í kaffigeiranum og eiga Sex sérmerandi kaffihús sem gaman er að heimsækja Kaffið á Brot und Seina Freunde er næstum því jafn girnilegt og brauðin í efstu hillu. Mynd Kristján Peclard í Zürich er glæsi- legt kaffihús og rukkar ekki mikið meira fyrir veiting- arnar en útibú Starbucks neðar í götunni. www.utilif. is Futura 28 Frábær nettur dagpoki í styttri dagsferðir. Verð: 22.990 kr. Futura 32 Vinsælasti dagpokinn. Verð: 24.990 kr. Aircontact pro 55+15sl Frábær burðarpoki fyrir dömur í lengri göngur. Verð: 49.990 kr. Aircontact 65+10 Margverðlaunaður bakpoki sem hentar vel í lengri ferðir. Verð: 46.990 kr. Berðu þig vel Mest verðlaunuðu bakpokar heims Á R N A S Y N IR 20% afsláttur Gildir í júlí Fæst án lyfseðils. Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vandlega fyrir notkun. Útibú Starbucks eru öll keimlík og það er því lítil upp- lifun fyrir ferða- menn að setjast inn á þannig stað. Kristján Sigur- jónsson mælir með þessum kaffihúsum fyrir þá sem vilja krydda fríið með heimsókn þangað.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.