Fréttatíminn - 19.07.2013, Síða 36
36 heilsa Helgin 19.-21. júlí 2013
Heilsa Handbók með Hugmyndum að fjölbreyttri Hreyfingu fyrir börn
Á dögunum sendi Sabína Steinunn Halldórsdóttir íþróttafræðingur frá
sér handbókina Færni til fram-
tíðar sem byggð er á lokaverkefni
hennar í meistaranámi í íþrótta- og
heilsufræði. Bókin er ætluð for-
eldrum og öllum þeim sem starfa
með börnum og fjallar um hvernig
samtvinna megi útiveru barna
í skóla eða gönguferð fjölskyld-
unnar og örva hreyfifærni á sama
tíma.
Þó mikið hafi rignt sunnanlands
í sumar telur Sabína ekki ástæðu
til innveru í sumarfríinu. „Mögu-
leikarnir úti í rigningunni eru
óendanlegir. Börnum finnst fátt
skemmtilegra en að hoppa í poll-
um. Svo við tölum nú ekki um að
hoppa lengi í polli þannig að hann
hverfi. Það er fátt sem fær hjartað
til að slá hraðar og jafnast á við að
hlaupa dágóða vegalengd.“
Árið 2003 flutti Sabína til Íslands
eftir íþróttafræðinám í Noregi
þar sem mikil áhersla var lögð á
útiveru. Hún hóf störf sem kenn-
ari í skóla sem enn var í byggingu
svo ekki var neitt íþróttahús og öll
hreyfing barnanna fór fram utan-
dyra. „Börnin tóku hreyfifærnipróf
í byrjun skólaársins og þau sem
komu ekki nógu vel út fengu auka
hreyfingu yfir veturinn. Svo þegar
ég tók aftur próf á þeim í lok skóla-
árs höfðu öll bætt sig verulega.
Aðrir þættir hafa þó alveg örugg-
lega haft áhrif líka, eins og hærri
aldur og þroski en hreyfingin
utandyra gerði þeim mjög gott.“
Þegar Sabína skilaði meistararit-
gerð sinni svo árið 2010 átti hún
niðurstöður úr hreyfifærnipróf-
unum og nýtti þær í rannsókn sína
og gat því sýnt fram á það með
tölulegum upplýsingum að aukin
hreyfing utandyra skilar sér í
meiri hreyfifærni.
„Hvort sem við erum í 101
Reykjavík eða úti á landi þá er um
að gera að njóta þess að vera úti
og sjá tækifærin í kringum okkur
því þau eru alls staðar. Lyktin af
gróðrinum, vindurinn, hólarnir,
hæðirnar, blauta drullan, stóru
steinarnir, birtan og veðrið. Allt
eru þetta þættir sem verka á ólík
skynfæri barnanna og örva þroska
þeirra og færni. Góð hreyfifærni
er færni til framtíðar. Hún gefur
börnum tækifæri til að skilja og
upplifa auk þeirrar tilfinningar að
geta og kunna,“ segir Sabína.
Handbókin Færni til framtíðar
fæst í verslunum Eymundsson.
Nánari upplýsingar má nálgast á
Facebook-síðunni Færni til fram-
tíðar.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Í rigningunni eru tækifæri
Sabína Steinunn Halldórsdóttir sendi nýlega frá sér handbókina Færni til framtíðar sem ætluð er
foreldrum og þeim sem starfa með börnum. Sabína telur rigninguna uppsprettu skemmtilegra
tækifæra til leikja úti við. Allt sem þurfi sé jákvæðni og regnheld föt.
Gaman er að hoppa í polli þangað til
hann tæmist. Líka er hægt að fara í
handahlaup yfir poll eða hoppa eins og
froskur eða kengúra í og úr polli. Myndir/
Þórhildur Jónsdóttir
fjölskyldutjöldin færðu hjá okkur
og allan útilegubúnað
Nevada MP
Sérstaklega létt og meðfærilegt 5 manna tjald.
Tvö svefnrými og stofa.
• Regnvörn: 4000 mm(Hydrostatic Head).
• Outtex® 4000.
• Eldtregur dúkur.
• Sérstakt vindþol.
• Súlur: Duratec fibreglass-súlur.
• Dúkur við jörð: Áfastur tvíhúðaður.
• Stærð (tjaldað): breidd 360 x lengd 485 x
hæð 200 cm.
Glendale 5
Tjald fyrir fjölskyldur sem vilja hafa rúmt í
kringum sig í útilegunni.
• Regnvörn: 4000 mm (Hydrostatic Head).
• Outtex® 4000 með regnvörðum.
• Eldtregur dúkur.
• Sérstakt vindþol.
• Súlur: Stálsúlur og Duratec fibreglass-súlur.
• Dúkur við jörð: Áfastur tvíhúðaður.
• Stærð (tjaldað): breidd 350 x lengd 700 x
hæð 220 cm.
Verð: 165.000kr
“Rolls Royce”-inn frá Outwell úr Premium
línunni. Tvö svefnrými, stofa og lítil forstofa.
Mikið rými!
• Regnvörn: 5000 mm (Hydrostatic Head).
• Outtex® 5000 með regnvörðum saumum.
• Eldtregur dúkur.
• Sérstakt vindþol.
• Súlur: Stálsúlur og álsúlur.
• Dúkur við jörð: Áfastur tvíhúðaður
• Stærð (tjaldað): breidd 415 x lengd 590 x
hæð 215 cm.
Montana 6P
Verð: 189.000kr
Oakland XL
Eitt vinsælasta tjaldið frá Outwell á Íslandi,
5 manna tjald. Tvö svefnrými og stofa.
• Regnvörn: 4000 mm(Hydrostatic Head).
• Outtex® 4000.
• Eldtregur dúkur.
• Súlur: Stálsúlur og Duratec fibreglass-súlur.
• Dúkur við jörð: Áfastur tvíhúðaður.
• Stærð (tjaldað): breidd 350 x lengd 535 x
hæð 225 cm.
Verð: 129.800kr Verð: 99.800kr
Korputorg l 112 Reykjavík
Sími 551 5600 l utilegumadurinn.is
Opnunartími: mán-fös kl: 10-18 - lau-sun kl: 12-16
Eftir nám í Noregi kenndi Sabína í skóla á Íslandi sem var enn í byggingu og því
ekkert íþróttahús og fór öll hreyfing barnanna fram úti við. Mynd Teitur.
Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t
KjúKlingamáltíð fyrir 4
Grillaður kjúklingur – heill
Franskar kartöflur – 500 g
Kjúklingasósa – heit, 150 g
Coke – 2 lítrar*
*Coca-Cola, Coke Light
eða Coke Zero
1990,-
Verð aðeins
+ 1 flaska af
2 L
Fæst í apótekum, heilsubúðum
og stórmörkuðum
PREN
TU
N
.IS / w
w
w
.g
en
g
u
rvel.is
Inniheldur hinn öfluga
DDS1 ASÍDÓFÍLUS!
2 hylki á morgnana geta gert
kraftaverk fyrir meltinguna