Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.09.2013, Qupperneq 4

Fréttatíminn - 13.09.2013, Qupperneq 4
Nýr framkvæmdastjóri Geðhjálpar veður Föstudagur laugardagur sunnudagur SV-átt oG Skúrir SuNNaN oG VeStaNtil. Birtir Na-til. HöfuðBorGarSVæðið: Skýjað að meStu og Skúraleiðingar. úrkomulítið oG fremur SValt. Víða BláStur. HöfuðBorGarSVæðið: Þurrt að meStu, en rigning Seint um kvöldið. VaxaNd N-átt oG riGNiNG eða Slydda N- oG a-laNdS SíðdeGiS. HöfuðBorGarSVæðið: rigning fyrSt, en rofar Síðan til. Hret á sunnudag Það er ofsögum sagt að segja að orðið sé heldur haustlegt, en ofan á úrkomu- og vindatíðina bætist nú við að veður fer greinilega kólnandi. aðgerðarlítið í dag og á morgun laugardag, en þá dýpkar lægð hér suðurundan sem lætur til sín taka á sunnudag. Þá er spáð er n- átt, hvassri og með slyddu en snjókomu til fjalla um kvöldið og nóttina n- og a-lands. ferðalangar þar fylgist með því færð getur spillst. 8 8 10 10 8 7 5 8 8 7 8 4 2 4 7 einar Sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is P O K A H O R N Kæru landsmenn! Til hamingju með Dag íslenskrar náttúru mánudaginn 16. september. Megi dagurinn verða okkur öllum ánægjulegur og góður til að fagna og njóta fegurðar og gjafa íslenskrar náttúru. Upplýsingar um dagskrá er að finna á www.umhverfisraduneyti.is DAGUR ÍSLENSKRAR NÁTTÚRU  skólamál nemendur í Fá mega ekki Fara undir 80 prósent skólasókn Harðar tekið á fjarvistum nemenda í framhaldsskólum Mæting nemenda hefur verið áhyggjuefni í mörgum framhaldsskólum undanfarin ár. Skólayfir- völd í fjölbrautaskólanum við Ármúla skerptu á reglunum í haust og nú geta nemendur misst skólavist ef þeir fara undir 80 prósent skólasókn. nemendur fá alltaf skráða á sig fjarvist fyrstu tvo dagana sem þeir missa úr skóla. Þ að er stór hópur nemenda sem þarf á auknu aðhaldi að halda og við vonum að þetta ýti við þeim,“ segir Steinn Jóhannsson, skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla. Harðar er nú tekið á fjarvistum í mörgum framhaldsskólum landsins, enda hefur mæting nemenda verið áhyggjuefni í mörgum þeirra. Var nemendum í FÁ tilkynnt í upphafi haustannar að færi mæting þeirra undir 80 prósent eigi þeir á hættu að verða vísað úr skólanum, bæti þeir ekki ráð sitt. „Við vorum ekki að herða reglurnar, við vorum að skerpa á þeim,“ segir Steinn. Hann segir að skóla- yfirvöld hafi farið vel yfir mæt- inguna á síðasta skólaári. „Og þar vakti athygli okkar þessi tíðu tilfelli þar sem nemendur voru fjarverandi í einn dag eða voru að sækja um leyfi í einum og einum tíma. Þessu fylgdu endalaus vottorð og í stórum skóla eins og okkar var fullt starf bara að halda utan um þetta.“ Nú eru reglurnar í FÁ þannig að fyrstu tveir dagarnir sem nemendur missa úr skóla eru alltaf skráðir sem fjarvist. Til að mynda ef nemandi er veikur í heila viku og skilar inn vottorði, þá gildir vottorðið bara fyrir þrjá seinustu dagana. „Það er kveðið á um 80 prósent mætingu þannig að nemendur hafa nokkra daga upp á að hlaupa. Þú getur verið fjarverandi rúmar tvær vikur á kennslu- tíma og það er meira en gengur og gerist á almennum vinnumarkaði. Okkur finnst eðli- legt að það sé meiri samsvörun þar á milli en verið hefur,“ segir Steinn. Hann tekur skýrt fram að enn sé tekið tillit til sérstakra tilfella. „Við höfum verið með ákveðinn sveigjanleika og hann verður vissulega við lýði áfram. Við tökum tillit til nemenda sem eru með börn á framfæri og nemenda sem glíma við langvar- andi veikindi svo dæmi sé tekið.“ Nemendur sem fara undir 80 prósenta mætingu þurfa að skrifa undir samning við skólayfirvöld þar sem þeir skuldbinda sig til að bæta mætingu sína á næstu tveimur vikum. Ef þeir bæta ekki ráð sitt missa þeir skólaplássið, að sögn Steins. „Mér finnst þetta mjög eðlilegt. Skólinn er að eyða fjár- munum í nemendur sem mæta kannski ekki í tíma. Það er eðlilegt að það komi meiri skuld- binding frá þeim.“ Rétt yfir eitt þúsund manns stunda nám í dagskólanum í FÁ. Þó aðeins séu nokkrar vikur liðnar af haustönninni eru þegar nem- endur komnir á skilorð. Steinn vill ekki gefa upp hversu margir nemendur það séu en segir að þeir skipti tugum. „Við erum mjög spennt að sjá hver útkoman verður eftir rúmar tvær vikur.“ Höskuldur daði magnússon hdm@frettatiminn.is nemendum í fjölbrautaskólanum við Ármúla var tilkynnt í haust að harðar væri tekið á fjarvistum þeirra en áður. fari þeir niður fyrir 80 prósent mætingu geta þeir átt von á að missa skólavistina. Ljósmynd/Hari Steinn jóhannsson. Þrjú útibú sameinuð í eitt á Höfðabakka nýtt útibú íslandsbanka hefur verið opnað á Höfðabakka 9. Þar sameinast útibú bankans við gullinbrú, í Hraunbæ og mosfellsbæ í eitt. í útibúinu á Höfðabakka verða 23 starfsmenn. „nýtt útibú á Höfða- bakka er liður í að efla þjónustu bankans bæði fyrir einstaklinga og fyrirtækja og þar sameinast kraftar reynslumikils starfs- fólks. flutningur í nýtt útibú og sameining þessara mikilvægu útibúa er liður í að sækja enn frekar fram, styrkja og efla okkar útibú. Þetta er sameining til sóknar en jafnframt hagræðing í útibúaneti okkar. Ég er sannfærð um að þetta er skref í átt að enn betri fjármálaþjónustu og skyn- samri hagræðingu til lengri tíma,“ segir una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri við- skiptasviðs íslandsbanka. -jh Þrjár sýningar í listasafni reykjavíkur vetrardagskráin er að fara af stað í listasafni reykjavíkur og verða opnaðar þrjár sýningar í Hafnarhúsinu á morgun, laugardaginn 14. september, klukkan 16. Þetta eru sýningarnar Brunnar eftir litháíska listamanninn Zilvinas kempinas, vera eftir tomas martišauskis sem einnig er frá litháen og sýningin íslensk vídeólist frá 1975-1990 þar sem verk sýnd verða verk eftir á annan tug listamanna. anna gunnhildur Ólafsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri geðhjálpar. anna gunn- hildur hefur nýlokið diplómanámi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla íslands. Hún er með mBa-gráðu í viðskiptum og stjórnun með áherslu á mannauðsfræði frá Háskólanum í reykjavík, Ba-gráðu í íslenskum fornbókmenntum og fjölmiðlafræði ásamt diplómanámi í uppeldis- og kennslufræði frá Hí. anna gunnhildur hefur gegnt starfi deildarstjóra á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara síðustu ár. Hún var blaðamaður á morgunblaðinu í 15 ár. eiginmaður hennar er davor Purusic, lögfræð- ingur hjá umboðsmanni skuldara, og eiga þau tvær dætur. markmið geðhjálpar er, að því er fram kemur í tilkynningu, að vinna að hagsmunamálum ein- staklinga með geðrænan vanda og aðstandenda þeirra. félagið hefur gengið að kauptilboði í húseign sína við túngötu 7 í þeim tilgangi að greiða niður skuldir félagsins og efla starfsemi þess til framtíðar. leitað er að hagkvæmu húsnæði undir starfsemina. 4 fréttir Helgin 13.-15. september 2013
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.