Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.09.2013, Side 20

Fréttatíminn - 13.09.2013, Side 20
B erglind Snorra er þrjátíu og tveggja ára gullsmiður og vöru- og húsgagnahönnuður. Faðir hennar, Jón Snorri Sigurðsson gull- smíðameistari er stjúpsonur Jens Guð- jónssonar, stofnanda Jens skartgripa, og starfaði við hlið hans frá stofnun fyrirtækisins. Með Berglindi starfa systkini hennar, þau Ingibjörg sem er viðskiptafræðingur og forstjóri fyrir- tækisins og Snorri Freyr sem er með BA gráðu í listfræði og starfar við stál- framleiðslu fyrirtækisins um þessar mundir. Berglind segir það snemma hafa komið í ljós að Ingibjörg systir hennar hefði ekki þolinmæði í gull- smíðina en frábært sé að hafa hana í forstjórastólnum. Þá hafi það alls ekki verið ósk foreldra þeirra að þau ynnu öll hjá fyrirtækinu þó það sé engu að síður gaman að þau geti starfað saman og að þær systurnar hafi fundið sinn framtíðarstað innan fyrirtækisins. Í æsku ætlaði Berglind sér alls ekki að verða gullsmiður, eins og faðir hennar, því hendur hans voru alltaf svo Það sem afi hefur smíðað dettur ekkert úr tísku, heldur þykir alltaf flott. Vonbrigði í unglingavinnunni upp- hafið að frama við skartgripahönnun Berglind Snorra, gullsmiður og hönnuður hjá Jens, fékk ekki það starf sem hún vildi í unglingavinnunni sumarið eftir 9. bekk og fór þá að vinna á gullsmíðaverkstæði fjölskyldunnar og hefur starfað þar meira og minna síðan. Hún ætlaði sér þó aldrei að verða gullsmiður en smíðar og hannar í dag fyrir Jens- og Uppsteyt skartgripi og stál í stál gjafavörulínuna. Fjölskyldan samankomin á gull- smíðaverkstæði Jens. Snorri Freyr og Berglind fyrir aftan en Ingibjörg og Snorri fyrir framan. Ljósmynd/Hari. … og öll fjölskyldan nýtur góðs af! Ebba Guðný heldur námskeið þriðjudaginn 24. sept., í Lifandi markaði, Fákafeni 11. kl.20-22 Skráning á ebba@pureebba.com Nánari upplýsingar á www.lifandimarkadur.is Verð aðeins 4000 kr. Borgartún 1 Fákafen 1 Hæðasmári www.lifandimarkadur.is Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða? óhreinar eftir vinnudaginn á gull- smíðaverkstæðinu. „Svo sumarið þegar ég var fimmtán ára fékk ég ekki það starf sem ég vildi í unglingavinnunni og þá kom pabbi með þá tillögu að ég færi að vinna hjá honum og þar með var fram- tíðin ráðin,“ segir hún. Berglind lærði svo gullsmíði í Iðnskólanum og stundaði sitt verknám í fjöl- skyldufyrirtækinu með föður sinn sem lærimeistara. Síðar fór hún til náms við Sheffield Hallam háskól- ann á Englandi og lærði vöru- og húsgagnahönnun. Berglind er einn af aðal hönnuðum Jens og hannar og smíðar ýmsar fallegar vörur, svo sem blaðastanda, húsgögn, tæki- færiskort og einnig á hún stóran þátt í hönnun gjafavörulínunnar stál í stál ásamt því að vera annar hönnuður skartgripalínunnar Uppsteyt. Berglind smíðar einnig skartgripi í klassísku skartgri- palínu Jens. Þar að auki hannar hún umbúðir utan um fyrrnefndar vörur. Berglindi leiðist aldrei í vinnunni og segir engan skort á góðum hugmyndum að hönnun. „Það er eiginlega þannig að því meira sem ég vinn, því fleiri hugmyndir fæ ég. Líkt og ein hugmynd fæði af sér aðra og þannig gengur þetta.“ Hugmyndirnar koma oft þegar hún leggst til svefns á kvöldin. „Þá slaka ég á og fæ alls konar hug- myndir. Ég er með bók á náttborð- inu og punkta hugmyndirnar niður svo ég gleymi þeim ekki. Heilinn er svo ótrúlegur. Hann er alltaf að vinna.“ Stundum þegar Berglind er að prófa sig áfram með nýjar hugmyndir mistakast þær en aðrar hugmyndir fæðast svo að í mistök- unum geta leynst tækifæri. Fyrirtækið Jens var stofnað árið 1966 af Jens Guðjónssyni og er Snorri, faðir Berglindar, stjúp- sonur Jens. „Pabbi vann alltaf með Jens og unnu þeir alltaf mjög vel saman,“ segir Berglind. Jens lést árið 2010 og segir Berglind hann hafa unnið við smíðar kominn vel á níræðisaldur. „Það er svo gaman með afa hvað gripirnir hans voru í senn nútímalegir en samt sígildir. Það sem hann hefur smíðað dettur ekkert úr tísku, heldur þykir alltaf flott,“ segir hún. Starfsfólkið hjá Jens vinnur vörur fyrirtækisins frá A-Ö en fyrirtækið er þekkt fyrir að nota íslenska steina í sína framleiðslu og fara þau öll saman og tína í fjörum landsins. „Þetta er stundum hörkupúl, sér- staklega þegar við sækjum stóra steina,“ segir Berglind. Aðspurð hvort fjölskyldan ræði ekki mikið um vinnuna þegar meðlimirnir hittast utan hennar segir Berglind svo stundum vera. „Stundum þurfum við að stoppa okkur í vinnuspjalli en það er nú margt annað að gerast hjá okkur líka. Til dæmis á ég eina dóttur sem er eins og hálfs árs og Ingi- björg systir mín tvær ungar dætur líka svo það er um ýmislegt annað en gullsmíði að hugsa hjá okkur,“ segir Berglind og brosir. Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is 20 viðtal Helgin 13.-15. september 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.