Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.09.2013, Page 32

Fréttatíminn - 13.09.2013, Page 32
Niðurstað- an er að kerfi með alhliða greind í umhverfi sem er erfitt að sjá hljóta að hafa hvata til að vera forvitin. Æ tli áhugi á gervigreind og vélmennum hafi ekki komið fyrir alvöru þegar ég var 12 ára,“ segir Kristinn R. Þórisson, dósent í tölvunar- fræði við Háskólann í Reykjavík, stofnandi og stjórnandi Vitvélastofnunar Íslands og einn fremsti fræðimaður Ís- lendinga á sviði gervigreindar. „Þá var ég reyndar sann- færður um að það yrði búið að leysa öll þessi mál þegar ég yrði fullorðinn og ég myndi missa af því skemmtilega verkefni að finna út úr því hvernig maður býr til greinda vél. Saga gervigreindar er athyglisverð að því leyti að því hefur reglulega verið spáð á tíu ára fresti að innan tíu ára verðum við komin með vélar sem eru greindari en menn á einhverju sviði. Sem táningur var ég búinn að undirbúa mig fyrir að þurfa að finna mér eitthvað annað að gera, þó mér fyndist þetta ótrúlega spennandi.“ Hugsun, heili, sjálfvirkni Það heillar Kristin bæði hvað gervigreindarrannsóknir hafa marga nýtingarmöguleika og tengsl þeira við grundvallarþátt í tilveru okkar – hugsun. Þrátt fyrir að afar langt sé í land þar til hægt verður að búa til greind kerfi með greind sem jafnast á við mannfólk og æðri dýrategundir hafa hugmyndir vísindamanna á þessu Forvitnar vélar Kristinn R. Þórisson, stofnandi Vitvélastofunar Íslands, fékk annað árið í röð hin alþjóðlegu Kurzweil-verðlaun fyrir rannsóknir á gervigreind. Niðurstöður hópsins sem hann starfar með ganga þvert á flestar forsendur sem menn hafa gefið sér um gervigreind og eru þeir því á góðri leið með að bylta mörgum grunnhugmyndum um hvernig fólk skilur og forritar greind kerfi. sviði þegar nýst okkur á ótal sviðum. „Sem táningur sá ég fyrir mér að tölvur yrðu lykilþáttur í framtíð þjóð- félagsins og að hér yrði allt fullt af vélmennum að gera þarfa hluti. Það hefur enn ekki orðið raunin, en þetta er svo áhugavert út frá bæði hagkvæmnissjónarmiðum og fræðilega hlutanum. Fræðilegi hlutinn hefur reynst mun fyrirferðarmeiri en ég átti von á og viðfangsefnin teygja sig langt inn í hversdagsleg fyrirbæri en eru þó ansi snúin þegar betur er að gáð, svo sem hvað það er að vera einstaklingur og hvað það er að taka upplýstar ákvarðanir. Þetta snýst um grundvallarhugtök sem við notum á hverjum degi en við skiljum ekki að fullu hvað það er sem skilgreinir okkur sem menn fyr en við skiljum hvernig hægt er að smíða kerfi búin þessum eiginleikum. Hugsun, heili og sjálfvirkni tengist allt á djúpstæðan hátt og mig langar bara að fletta hulunni ofan af þessu, vonandi öllum til góðs,“ segir hann. „Um leið erum við að framleiða þekkingu sem nýtist á fjölmargan hátt því gervigreind er í sjálfur sér bara full- komnari sjálfvirkni.“ Kristinn fékk hin alþjóðlegu Kurzweil-verðlaun fyrr á þessu ári, ásamt Eric Nivel, sérfræðingi við Gervi- greindarsetur Háskólans í Reykjavík, og samstarfs- mönnum þeirra við gervigreindarrannsóknarstofuna Idsia í Sviss. Verðlaunin eru veitt árlega fyrir vísinda- grein sem þykir skara fram úr á sviði alhliða gervi- greindar. Þar með er ekki öll sagan sögð því Kristinn og Eric fengu Kurzweil-verðlaunin einnig á síðasta ári, í félagi við dr. Helga Pál Helgason, á Gervigreindar- setri HR sem Kristinn leiðbeindi í doktorsnámi. Kristinn segir það vissulega heiður að hafa fengið verðlaunin tvö ár í röð. „Þetta kom okkur svolítið á óvart. Það er heiður að fá verðlaunin einu sinni en annað skipti þýðir að það fyrsta var að öllum líkindum ekki bara heppni.“ Forvitni byggð í grunneðli greindra kerfa Hópurinn sem Kristinn starfar með hefur verið að skoða hugmyndina um alhliða greind, og þá sérstak- lega bera saman hvernig sviðið skilgreinir greind og svo hvernig greind birtist í náttúrunni. „Við eigum mjög langt í land með að framkalla greind eins og hún birtist hjá mönnum. Hugsun hefur fært mannfólki þjóðfélagið, fjölþátta samskiptamáta, og ferðamáta nútímans. Ef maður spyr sig hversu langt er þangað til gervigreint kerfi getur framkallað eitthvað af þessu, jafnvel þó það væri skuggann af þessu, þá er ekki einu sinni ljóst hvort við getum framkallað skugga á vegg- inn. Þeir vísindamenn sem við höfum mest unnið með eru sammála um að til að skilja og hugsanlega endur- skapa í vél, til dæmis með það hugmyndaflug sem skapandi einstaklingur er fær um, á borð við góðan arkitekt, verkfræðing eða vísindamann, þá þurfum við að beita öðrum aðferðum en þeim sem almennt er beitt í tölvunarfræði í dag.“ Kristinn segir að rann- sóknir þeirra á síðustu árum hafi leitt margt mikilvægt í ljós. „Niðurstöður okkar ganga í raun þvert á flestar af þeim forsendum sem menn hafa gefið sér í gervigreind almennt. Við erum á góðri leið með að bylta mörgum grunnhugmyndum manna um hvernig maður skilur og forritar greind kerfi.“ Að mati Kristins og samstarfsmanna hans þurfa öll kerfi með alhliða greind að vera forvitin. „Þegar verið er að hanna heilsteypta, alhliða greind þarf kerfið að geta hagað sér skynsamlega í umhverfi sem er óþekkt hönnuðinum, að hluta eða öllu leyti. Öll slík kerfi þurfa að taka tillit til rauntíma, þar sem atburðir gerast óháð öðrum, og þar með þurfa öll greind kerfi að hafa hvata til að vera skilvirk og sparneytin, til að auka líkur á að geta undirbúið sig sem best fyrir óvænta atburði. Þannig gera þau eins mikið og hægt er, með eins litlu og hægt er, til að hámarka líkur á að þau geti fram- kvæmt það sem þau ætla sér. Niðurstaðan er að kerfi með alhliða greind í umhverfi sem er erfitt að sjá hljóta að hafa hvata til að vera forvitin, því þannig komast þau að því hvort sú þekking sem þau hafa yfir að búa sé rétt og hvort einhver göt séu í henni. Að okkar mati hlýtur forvitni að vera byggð inn í grunneðli greindra kerfa. Þarna eru við auðvitað farin að teygja okkur inn í mannfræði, sálfræði og heimspeki. Þegar rannsóknar- spurningarnar leiða mann meira og minna beint að svona niðurstöðu sem er bæði óvænt og óvenjuleg þá er maður spenntur að halda áfram og grafast fyrir um hvað gæti legið að baki. “ Við getum aldrei verið viss Hann segir hugtakið gervigreind hafa verið útþynnt að ákveðnu leyti, til dæmis með því að tala um að hitaskynjarar séu með greind, bara afskaplega litla, því þeir skynja umhverfið og hækka eða lækka hita eftir því. „Ef við hugsum okkur línu frá hitastýrikerfum og yfir í manneskju þá eru nokkrar vörður á leiðinni þar sem kerfið gjörbreytist í raun, þó öll greind kerfi snúist auðvitað samt um að meta ytri aðstæður og taka ákvarðanir samkvæmt þess innri markmiðum, til dæmis að forðast dauða. Í grunninn snýst forvitni ein- faldlega um að þegar vitvera hefur aflað sér upplýsinga um eitthvað sem eykur líkur á að hún lifi af sem ein- staklingur, þá er raunheimurinn ákaflega flókið fyrir- bæri og hún getur aldrei treyst fullkomlega upplýs- ingum sem aflað er með eigin reynslu. Með reynslunni verðum við auðvitað vissari um að þekking okkar sé rétt en við getum aldrei verið fullkomlega viss. Við getum í raun aldrei verið fullkomlega viss um að sólin komi upp á morgun. Geimvísindi og stjarneðlisfræði gefa okkur vissulega sterkan grunn til að byggja á, en óútskýranlegt náttúrufyrirbrigði gæti komið í veg fyrir að sólin rísi. Það væri þá óheppilegt fyrir mann- kynið að hafa ekki þekkingu til að forðast það. Forvitni vísindamanna er einmitt gott dæmi. Í grunninn er forvitni í raun tilraun hvers greinds kerfis til að fylla í þekkingargötin, til að vera vissari og öruggari um að sú þekking sem er til staðar sé traustsins virði.“ Á döfinni hjá Kristni og rannsóknarhópi hans er ein- faldlega að halda áfram með rannsóknirnar og halda áfram að reyna svipta hulunni af því hvernig smíða má greind sem jafnast á við greind mannfólks. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Kristinn R. Þórisson, einn fremsti fræði- maður Íslendinga á sviði gervigreindar, segir að öll kerfi með alhliða greind þurfi að vera forvitin. Ljósmynd/Hari Niðurföll og rennur í baðherbergi EVIDRAIN Mikið úrval – margar stærðir COMPACT VERA 30cm 8.790,- AQUA 35cm 13.990,- Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Vestmannaeyjum PROLINE NOVA 60 cm 23.990,- 32 viðtal Helgin 13.-15. september 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.