Fréttatíminn - 13.09.2013, Side 34
É g var fimm ára þegar ég hélt mína fyrstu listasýningu,“ segir Svava Bjarnadóttir. „Ég
bjó í Árbænum og dvaldi tímunum
saman við að mála og teikna. Einn
daginn fannst mér tími til kominn
til að sýna heiminum hæfileikana
og lagði mikla vinnu í að hengja
upp myndir í herberginu mínu. Í
einlægri barnatrú var ég sannfærð
um að öllum fyndist myndirnar jafn
fallegar og mér. Ég fór því einfald-
lega út í glugga á þriðju hæð og
hrópaði: Myndlistarsýning! Mynd-
listarsýning! Ég beið þolinmóð og
skildi ekki af hverju enginn kom.“
Svava er viðskiptafræðimenntuð,
starfaði í tólf ár sem fjármálastjóri
verkfræðistofunnar Mannvits
við góðan orstír en í fyrra sagði
hún þar upp og hélt út í óvissuna.
Síðan þá hefur hún menntað sig
sem markþjálfi og er útskrifuð úr
New York Institute of Photography
sem atvinnuljósmyndari. Það er
því kannski ekki að undra að vinir
hennar viti oft ekki hvernig þeir
eigi að kynna hana. „Ég er núna
farin að hugsa um mig sem lista-
konu, því ég lít á ljósmyndun sem
list. Ég er markþjálfi, rekstrarráð-
gjafi og listakona,“ segir Svava.
Fékk sér „alvöru“ vinnu
Hana dreymdi um að tileinka líf
sitt listinni en valdi snemma aðra
leið. „Mamma segir að ég hafi alltaf
verið að mála og teikna. Það sagði
enginn við mig að ég gæti ekki
orðið listakona en það sagði heldur
engin að ég gæti það. Ég kem úr
fjölskyldu þar sem fólk hefur þurft
að hafa fyrir sínu og ég náði ekki
að tengja mig við að vera listakona.
Mér fannst ég þurfa að fá mér það
sem kallað er „alvöru“ vinnu.“
Um þrítugt hóf Svava nám við Há-
skóla Íslands í viðskiptafræði. „Ég
var búin að vinna í fjármálum og
rekstri frá því um tvítugt. Ég starf-
aði lengi hjá drykkfelldum endur-
skoðanda, tók á mig mikla ábyrgð
í því starfi og hugsaði með mér að
fyrst hann gæti gert þetta þá hlyti
ég að geta það líka. Það kom mér
á óvart hvað viðskiptafræðin var
á breiðari línu en ég hafði reiknað
með og það kom sér vel í náminu
að hafa starfað í þessum geira
áður.“ Hún útskrifaðist af fjármála-
sviði árið 1999 með aðaláherslu á
rekstur fyrirtækja. „Ég var þarna
orðin harðákveðin í að verða fjár-
málastjóri. Sumir hlógu að mér en
ég gekk beint inn í stöðu fjármála-
stjóra hjá Ísafoldarprentsmiðju.
Staðan þar var mjög slæm og tím-
inn þar var mikill skóli en ég sagði
að lokum upp, leitaði að traustu fyr-
irtæki með heiðarleikann að leiðar-
ljósi og byrjaði hjá lítilli verkfræði-
stofu. Árin mín hjá Mannviti urðu
tólf, fyrirtækið óx og dafnaði og þar
störfuðu um 400 manns þegar ég
hætti.“ Svava tók þátt í mikilli upp-
byggingu hjá Mannviti, fyrirtækið
gekk á þessum tíma í gegnum tvo
samruna og vann að fjölda stórra
verkefna á borð við Kárahnjúka-
virkjun, Hörpu, Hellisheiðarvirkjun
og Hverahlíðarvirkjun. „Í lok árs
2011 var þörf fyrir breytingar farin
að gera vart við sig. Ég var orðin
bak veik og fannst ég hafa skilað
mínu hjá Mannviti enda árið 2011
það besta í sögu fyrirtækisins og
því góður tími fyrir fjármálastjóra
að kveðja. Ég tók þá eina erfiðustu
en jafnframt bestu ákvörðun lífs
míns og sagði upp góðu starfi án
þess að hafa kortlagt framhaldið.“
Besta útgáfan af sjálfum sér
Um tíu ár eru síðan Svava fór að
taka ljósmyndir og í álaginu sem
skapaðist í bankahruninu fannst
henni það hrein hvíld að taka
myndir og vinna þær. Spurð hvað
Ég tók þá eina erf-
iðustu en jafnframt
bestu ákvörðun lífs
míns.
Fjármálastjóri opnar ljósmyndasýningu
Svava Bjarnadóttir gekk bókstaflega út í óvissuna þegar hún
sagði upp starfi sínu sem fjármálastjóri hjá stórri verkfræðistofu
vorið 2012. Ljósmyndun hafði lengi verið áhugamál hennar og
hún lauk í námi hjá virtum ljósmyndaskóla. Hún hefur öðlast
nýtt líf með því að þora að taka ákvarðanir og tekur á móti
gestum á sína fyrstu ljósmyndasýningu um helgina.
mikið af þessum stöðum og ber
mikla virðingu fyrir því faglega
starfi sem Þjóðminjasafnið leggur
af mörkum til að varðveita þá.“
Síðasta vetur menntaði Svava sig
sem markþjálfi hjá Evolvia og er
þar nú í framhaldsnámi. Viðskipta-
vinir hennar eru flestir stjórnendur
og felst markþjálfun í því að hjálpa
fólki að verða besta útgáfan af
sjálfu sér. „Markþjálfunin hentar
mér vel því þar get ég tvinnað
saman reynslu úr rekstri, stjórnun-
arstörfum og mannauðsmálum.“
Svövu finnst gaman að kynnast
alls konar fólki og því eru það ekki
aðeins stjórnendur sem hún mark-
þjálfar. „Ég er líka með fólk sem
er að gera það sama og ég, breyta
alveg til í lífinu.“
Fór ein til Tælands
Enn einu sinni fór Svava út fyrir
þægindarammann á skömmum
tíma þegar hún fór til Tælands í vet-
ur, alein. „Fólk varð svolítið hissa
þegar ég sagði því frá þessu og
spurði jafnvel hvað maðurinn segði
og hvort það væri ekki „allt í lagi
heima“. En mig hafði alltaf dreymt
um að gera þetta. Fyrst eyddi ég
viku í eiginlegum regnskógi. Ég fór
á fílsbak, gisti í kofa uppi í tré, synti
inn í hella og horfði á leðurblökur
fljúga út. Síðan var ég á eyju sem
ég kalla eiginlega bara jógaeyjuna
mína. Þetta var einstök upplifun
og það var ekki sama konan sem
kom aftur heim. Mig langar mikið
að gera þetta aftur seinna, kannski
fara út með fjölskyldunni og láta
þau svo skilja mig eftir á einhverri
eyju.“
Hún er sátt við lífið og hvetur
aðra til að fara út úr sínum þæg-
indaramma. „Það var fyrst erfitt
fyrir viðskiptafræðing og fjár-
málakonu að taka þessa beygju
í lífinu en ég sé ekki eftir neinu.
Ég er í rauninni núna komin út úr
skápnum sem Svava listakona, búin
að taka skref sem ég þorði ekki
þegar ég var að ákveða hvað ég
vildi verða þegar ég yrði stór. Það
eru forréttindi að geta látið drauma
sína rætast og nú ætla ég bara að
njóta.“
Svava býður gestum nú aftur á
sýningu á verkum sínum. Núna veit
hún að þeir koma.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
henni finnst skemmtilegast að
mynda stendur ekki á svörum:
„Fólk. Ég hef mikla ástríðu fyrir
fólki og fyrir að veiða augnablik-
in.“ Undanfarin fimm ár hefur
hún ferðast mikið um landið og
heimsótt ótal staði sem hafa sterka
vísun í íslenskt þjóðlíf, svo sem
Grímsstaði á Fjöllum, Núpsstað
og Kálfastaði. Laugardaginn 14.
september verður fyrsta einka-
sýning Svövu opnuð í Gerðubergi
þar sem hún sýnir afraksturinn
úr þessum ferðalögum. „Sýningin
heitir „Hrópandi þögn“ og það er
svo beint frá hjartanu því þegar ég
kom á marga af þessum stöðum
einfaldlega hrópuðu þeir á mig. Ég
er heppin að hafa síðastliðið sumar
getað ferðast mikið með góðri vin-
konu minni, Margréti Hallgríms-
dóttur þjóðminjaverði. Án hennar
hefði ég ekki kynnst öllu þessu ein-
staka fólki sem við hittum, fólk sem
býr jafnvel í mikilli einangrun. Við
vorum að sjálfsögðu mikið í kring
um torfbæi þar sem tíminn bók-
staflega stendur í stað. Ég heillaðist
Þessi mynd af Sverri Valdimarssyni
sem býr einn í Hólmi í Landbroti
verður á sýningu Svövu. Ljósmynd/
Svava Bjarnadóttir
Svava Bjarnadóttir hvetur fólk til að stíga út úr þægindarammanum og láta
drauma sína rætast. Ljósmynd/Hari
HJÁ AÐALSKOÐUN ERT ÞÚ
Í GÓÐUM HÖNDUM
Snjallt að
kíkja á okkur
á adal.is
Við erum með órar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í
Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á
þeim öllum. Hlökkum til að sjá þig!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-0
4
6
7
Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 19 ár
Reykjavík
Grjóthálsi 10
Sími 590 6940
Reykjavík
Skeifunni 5
Sími 590 6930
Hafnarfjörður
Hjallahrauni 4
(við Helluhraun)
Sími 590 6900
Kópavogur
Skemmuvegi 6
(bleik gata)
Sími 590 6935
Reykjanesbær
Holtsgötu 52
(við Njarðarbraut)
Sími 590 6970
www.adalskodun.is og www.adal.is
Við getum minnt þig á þegar þú þarft að láta skoða bílinn
á næsta ári. Skráðu þig á póstlistann hjá okkur þegar þú kemur með
bílinn í skoðun og þú gætir unnið 200 lítra eldsneytisúttekt.
Opið kl. 8-17 virka daga – sími 590 6900
34 viðtal Helgin 13.-15. september 2013