Fréttatíminn - 13.09.2013, Síða 38
38 heimili Helgin 13.-15. september 2013
Hönnun Fröken Fix Skapar HeimiliSStíl
S esselja Thorberg hefur ekki síst verið einstaklingum til ráðgjafar um stílfærslur og almenn huggu-legheit innan veggja heimila þeirra.
Hún hefur látið að sér kveða í sjónvarps-
þáttunum Innlit/útlit og í eigin þáttum á
sjónvarpi mbl.is. Hún fikrar sig nú inn á
nýjar brautir með bókinni Skapaðu þinn
heimilisstíl sem hún stefnir að því að verði
sú fyrsta í flokki hönnunarbóka.
„Þetta er í það minnsta hugsað þannig,
sem bókaflokkurinn Trix og mix frá fröken
Fix. Í raun og veru voru hugmyndirnar svo
margar þannig að það var bara ákveðið að
fara í bókaröð.“
Í Skapaðu þinn heimilisstíl opnar Sesselja
hugmyndabankann og kemur með ýmis ráð
og lausnir sem hún segir að ættu að henta
öllu, sama hvort fólk sé að koma sér fyrir í
nýrri íbúð eða vilji lífga upp á þá gömlu.
Sesselja missti vinnu sína á arkitekta-
stofu í kjölfar hrunsins og lét þá gamlan
draum rætast og sinnir nú helst einstak-
lingum sem hún býður persónulega þjón-
ustu við innanhússhönnun. „Ég er alltaf
að hanna og gerði meira að segja bókina
meðfram fullri vinnu. Ég er aðallega í því
að hanna fyrir einstaklinga en hef unnið
líka fyrir fyrirtæki. Hef verið í einhverjum
bönkum og er núna að fara að undirbúa mig
fyrir að hanna höfuðstöðvar 66°Norður.
Það verður næsta stóra verkefnið og ég
hlakka alveg gríðarlega til að takast á við
það. Svo er ég alltaf í þessum svokölluðu
„kvikk fixum“ sem hugmyndin af þessari
bók sprettur upp úr. Þá fer ég heim til fólks
í stutta ráðgjafartíma.“
Sesselja segist hafa átt von á því að þetta
færi hægt af stað hjá henni í kreppunni en
hún hefur haft meira en nóg að gera og
verkefnin halda áfram að hlaðast upp. „Það
varð bara sprenging strax og viðskiptavina-
hópur minn hefur verið í stöðugum vexti
síðan. Ég hef ekki upplifað neinn verkefna-
skort. Ég held að það ráðist af því að ég veiti
svo persónulega þjónustu og ég held bara
að það sé það sem fólk vill og þykir vænt
um. Ég er ekki í neinni fjöldaframleiðslu.“
Sesselja hefur alla tíð haft mikinn áhuga
á hönnun og ætlaði sér alla tíð að leggja
þetta fyrir sig. Hún var á barnsaldri þegar
hún byrjaði að færa til húsgögn og breyta
í herberginu sínu. „Þaðan kemur fröken
Fix en pabbi kallaði mig þetta alltaf þegar
ég fór af stað enda lenti oftast á honum,
greyinu, að bora upp, negla og færa til
hillur. Ætli ég feli mig ekki svolítið á bak
við fröken Fix. Hún er einhvers konar hlið-
arsjálf en ég er miklu feimnari. Fröken Fix
er rosalega skemmtilegur hönnuður og er
með sniðug ráð.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Sesselja kemur með alls konar tillögur í bókinni og hugar meðal
annars að litavali og samsetningu.
Opnar hugmynda-
bankann í nýrri bók
Vöru- og
innanhúss-
hönnuðurinn
Sesselja
Thorberg er
ekki síður
þekkt sem
fröken Fix og
undir því nafni
miðlar hún af
þekkingu sinni
og reynslu
í nýrri bók,
Skapaðu þinn
heimilisstíl, en
hún stefnir að
því að bókin
verði sú fyrsta
af mörgum i
bókaflokknum
Trix&mix frá
fröken Fix.
Ég er alltaf að hanna og
gerði meira að segja bókina
meðfram fullri vinnu.
Sesselja notar heimili sitt sem tilraunastofu þannig að það er nokkuð um breytingar og málningarvinnu á heimilinu enda alltaf
eitthvað sem þarf að prófa og máta. Ljósmynd/Hari
Ný námskeið
að byrja.
Náðu 5 stjörnu formi
Breyttu línunum og tónaðu
líkamann í sitt fegursta form.
Hefst
16. sept.
Fix Töframassinn
Hreinsar, fægir og verndar samtímis
Húsasmiðjan - Byko - Fjarðarkaup - Tengi - Melabúðin - Verkfæralagerinn - Eyjatölvur
Miðstöðin Vestmannaeyjum - Pottar og prik Akureyri - Rafsjá Sauðárkróki - Áfangar Keflavík
Skipavík Stykkishólmi - Nesbakki Neskaupsstað - Vélaleiga Húsavíkur - Verslanir Rönning
Litabúðin Ólafsvík - Tengi - Byggt og búið - SR byggingavörur Siglufirði - Núpur Ísafirði
Hentar vel til þrifa á blöndunartækjum, vöskum, ryðfríu stáli, áli, kopar,
messing, gleri, plasti, lökkuðum flötum, kristal, keramiki, postulíni o.fl.
Svampur
fylgir með
- Fitu- og kýsilleysandi
- Húðvænt
- Náttúrulegt
- Mjög drjúgt
Óskaþrif Hólmavík - Heildsöludreifing: Ræstivörur ehf.
Tónagull
Tónlistarnámskeið
fyrir ung börn
hefjast 21. september
www.tonagull.is
Netskráning á