Fréttatíminn - 13.09.2013, Side 40
40 bílar Helgin 13.-15. september 2013
AldArAfmæli Sá fyrSti innflutti Settur SAmAn á AuSturvelli
S aga Ford á Íslandi spannar heila öld. Fyrsta Ford bifreiðin kom til landsins 20. júní 1913, að því er fram kemur á síðu Brimborgar, um-
boðsaðila Ford. Þar segir að hópur fólks hafi þá komið
saman á Austurvelli og fylgst með þegar bifreiðin var
sett saman um nóttina. Strax daginn eftir var áhuga-
sömum boðið upp á stuttan rúnt gegn vægu gjaldi,
eða 10 aurum.
„Á þessu afmælisári,“ segir enn fremur, „hefur
margt spennandi verið kynnt til sögunnar hjá Ford
á Íslandi. Nýr bíll, Ford B-MAX, var kynntur en um
er að ræða tímamótabíll með engum burðarbita milli
hurða. Hann hefur hlotið frábærar móttökur, var til
að mynda valinn fjölnotabíll ársins 2013 af virta bíla-
blaðinu Auto Express.
Í febrúar var nýr Ford Fiesta kynntur. Ford Fiesta
var vinsælasti bíllinn í sínum flokki í heiminum árið
2012 og hefur fengið mikið lof bílablaðamanna. Hann
var valinn besti smábíll ársins 2013 af bílablaðinu
Auto Express og nýjasta rósin í hnappagatið er titill-
inn Women´s World Car of the Year.
Ekki má gleyma nýjum Ford Kuga sem var kynntur
hér á landi í júní en hann var valinn öruggasti bíllinn í
sínum flokki í árekstrarprófi EuroNCAP.
Eins er vert að nefna að Ford hlaut þann heiður að
eiga vél ársins en Ford EcoBoost vélin var valin Eng-
ine of the year 2013 annað árið í röð.
Sendibíll ársins 2013 Ford Transit Custom var frum-
sýndur hér á landi í febrúar og hafa viðtökur verið
frábærar. Nýr Ford Transit Connect sendibíll verður
kynntur í lok ársins og stærri og breyttir Transit bílar
í byrjun næsta árs.“
Fyrsti Fordinn var
fluttur til landsins fyrir
einni öld. Meðal arftaka
þess bíls er Ford Fiesta
sem kynntur var í
febrúar síðastliðnum.
Ford í hundrað
ár hérlendis
HondA vinSæll bíll fæSt á ný
Accord aftur til Íslands
Eftir nokkurra ára bið er Honda
Accord kominn aftur til Íslands, að
því er fram kemur á síðu Bern-
hard, umboðsaðila Honda hér á
landi, en Accord hefur verið ein
vinsælasta bifreið Honda út um
allan heim ásamt CR-V.
Accord kemur bæði sem hlað-
bakur og skutbíll og fáanlegur
með 2.0i-VTEC bensínvél eða 2.2i-
DTEC dísilvél.
Hinn nýi Accord er breiðari
og lægri en forverinn með meiri
straumlínulögun og stöðug-
leika. Farþegarýmið er hljóðlátt.
„Þar vinna saman þættir eins og
straum-línulöguð yfirbygging og
hágæða hljóðeinangrandi efni í
innra sem ytra byrði bílsins. Það er
einmitt þetta jafnvægi og samræmi
milli útlits, afkastagetu, tækni og
öryggis sem gerir nýjan Accord að
jafn þróuðum bíl og raun ber vitni,“
segir á síðu umboðsins. „Í nýjum
Honda Accord,“ segir enn fremur,
„sameinast nokkrar af þróuðustu
tækninýjungum okkar, allt frá
endurbættum undirvagni til nýrra
aflmikilla véla, sjálfvirkra öryggis-
þátta og nákvæmari fjöðrunar.“
Honda Accord fæst að nýju hér á landi.
rAfbílAr AuknAr vinSældir
Verðlækkun á Chevrolet Volt
Vinsældir rafbíla fara vaxandi í
heiminum og að sama skapi hefur
samkeppnin aukist til muna á raf-
bílamarkaðnum. General Motors,
framleiðandi Chevrolet Volt rafbíls-
ins, lækkaði verð á rafbílnum um
sem nemur hálfri milljón íslenskra
króna, að því er fram kemur á síðu
Chevrolet umboðsins, Bílabúðar
Benna.
„Við höfum gert ráðstafanir
sem gera okkur kleift að láta við-
skiptavini okkar njóta 500 þúsund
króna lækkunarinnar,“ segir Björn
Ragnarsson, framkvæmdastjóri
Bílasviðs hjá Bílabúð Benna, um-
boðsaðila Chevrolet á Íslandi. „Við
finnum fyrir vaxandi áhuga hér-
lendis, enda er Volt, flaggskip raf-
bílanna, eins og skapaður fyrir ís-
lenskan markað,“ bætir hann við á
síðu umboðsins.
Chevrolet Volt rafbíllinn kostar
nú 6.990 þúsund krónur.
Chevrolet Volt rafbíllinn frá General Motors. Framleiðandinn lækkaði verð hans um
hálfa milljón króna.
Brimborg kynnir
XC60 og aðra bíla
af 60 línu Volvo.
Volvo 60 línan frumsýnd
Nýja Volvo 60 línan verður
frumsýnd formlega á morg-
un, laugardaginn 14. septem-
ber, en menn hafa getað tekið
forskot á sæluna undanfarnar
vikur í sýningasal Brimborg-
ar, Bíldshöfða 6. Um er að
ræða Volvo S60, Volvo V60 og
Volvo XC60 sportjeppann. Öll
línan hefur tekið breytingum
að innan sem og að utan,
að því er fram kemur á síðu
fyrirtækisins.
„Breytingin að utan,“ segir
þar, „er sérlega vel heppnuð,
bílarnir eru allir mun kraft-
legri í útliti en þó fágaðir.
Meira er um samlitun og
einnig er meira um króm.
Breytingin að innan er m.a.
ný hönnun á sætum, digital
umhverfi í mælaborði og nýtt
efnisval innréttingar.
Borgaröryggið (City Sa-
fety) hefur einnig verið upp-
fært og bregst núna við að-
stæðum upp að 50 km hraða
(var 30 km hraði).“
– fyrst og fre
mst
ódýr!
tilboð!
dúndur-
986
Verð áður 1896 kr. 8 pak
kar
Floridana epla-, appels
ínu- og
heilsusafi, 3x250 ml í
pakka
kr.
8 pakkar
48%afsláttur
Hámark
3 kassar
á mann meðan birgðir endast!
Eftirlitsmyndavél fyrir sumarbústaði og heimili
· Tekur venjulegt GSM SIM kort
· Hægt að panta mynd eða hlusta svæði.
· SMS og MMS viðvörun í síma og netf.
· Lætur vita ef rafmagn fer af og hiti breytist.
· Hægt er að tengja allt að 15 auka skynjara.
· Vöktun á heitum potti, raka, þrýstingi o..
S. 699-6869 · rafeindir@internet.is · www.rafeindir.is