Fréttatíminn - 13.09.2013, Page 46
46 heklað Helgin 13.-15. september 2013
Handavinna Hekl nýtur aukinna vinsælda
Garn: Satúrnus, eða annað
bómullargarn sem hæfir
nál.
Heklunál: Nr. 2,5
Heklfesta: U.þ.b. 30 ST og
12 umf.
= 10x10 sm (þarf ekki að vera
nákvæmt)
FL = fastalykkja,
KL = keðjulykkja,
LL = loftlykkja,
sl. = sleppa,
ST = stuðull,
Mittisband
Fitjið upp 11 LL, skiljið eftir
u.þ.b. 50 sm langan spotta
hér. Heklað fram og til baka.
1. umf. Heklið [1 ST, 1 LL,
sl. 1 L] x 2, 3 ST, [1 LL, sl. 1
L, 1 ST] x 2. Endurtakið 1.
umferð þar til bandið er
orðið u.þ.b. 180 sm – það
má að sjálfsögðu vera
lengra eða styttra eftir
magamáli hvers og eins, en
ég vil geta bundið slaufu
á mína.
Síðasta umferð: Heklið [3
LL, sl. 1 L, 1 FL] x 4, 3 LL, sl.
1 L, 1 KL. Heklið eins í hinn
endann á mittisbandinu,
yfir 1. umferð, þar sem var
skilinn eftir langur spotti
í byrjun.
Svunta
Svuntan er hekluð á mittis-
bandið, brjótið mittisbandið í
tvennt og finnið miðju, teljið
23 göt (götin sem mynduðust
á brún mittisbands) frá
miðju og byrjið á svuntu þar.
Svuntan er hekluð fram og
til baka.
1. umf. Í þessari umferð er
heklað í götin á mittisband-
inu: Heklið 3 ST í fyrsta gat,
[5 LL, sleppa 2 götum, 2
ST í næsta gat, 1 LL, 2 ST í
næsta gat] x 11, 5 LL sleppa
2 götum, 3 St í næsta gat.
2. umf. Heklið 3 ST, [5 LL,
sl. LB, 2 ST + 1 LL + 2 ST í
næsta LB, 5 LL, sl. LB, 3 ST
+ 1 LL + 3 ST í næsta LB] x
5, 5 LL, sl. LB, 2 ST + 1 LL
+ 2 ST í næsta LB, 5 LL, sl.
LB, 3 ST.
3. umf. Heklið 3 ST, [3 LL,
1 FL utan um miðjuna á
loftlykkjubogunum tveimur
sem voru gerðir í síðustu
tveimur umferðum, 3 LL, 2
ST + 1 LL + 2 St í næsta LB,
3 LL, 1 FL utan um tvo LB, 3
LL, sl. LB og 2 L, 1 ST, 2 ST +
1 LL + 2 ST í næsta LB, 1 ST,
sl. 2 L] x 5, 3 LL, 1 FL utan
um tvo LB, 3 LL, 2 ST + 1 LL
+ 2 ST í næsta LB, 3 LL, 1
FL utan um tvo LB, 3 LL, sl.
loftlykkjum, heklið 3 ST.
4. umf. Heklið 3 ST, [5 LL,
sl. LB, 2 ST + 1 LL + 2 ST í
næsta LB, 5 LL, sl. LB og
2 L, 1 ST, 2 ST + 1 LL + 2 ST
í LB, 1 ST, sl. 2 L] x 5, 5 LL,
sl. LB, 2 ST + 1 LL + 2 ST í
næsta LB, 5 LL, sl. LB, 3 ST.
5. umf. Heklið 3 ST, [5 LL,
sl. LB, 2 ST + 1 LL + 2 ST í
næsta LB, 5 LL, sl. LB og
2 L, 2 ST í næstu L, 2 ST
+ 1 LL + 2 ST í LB, 2 ST í
næstu L, sl. 2 L] x 5, 5 LL,
sl. LB, 2 ST + 1 LL + 2 ST í
næsta LB, 5 LL, sl. LB, 3 ST
(útaukningarumferð, aukið
út um 2 L).
6. umf. Heklið 3 ST, [3 LL,
1 FL utan um tvo LB, 3 LL,
sl. LB, 2 ST + 1 LL + 2 ST í
næsta LB, 3 LL, 1 FL utan
um tvo LB, 3 LL, sl. LB og 2
L, 2 ST, 2 ST + 1 LL + 2 ST í
LB, 2 ST, sl. 2 L] x 5, 3 LL, 1
FL utan um tvo LB, 3 LL, 2
ST + 1 LL + 2 ST í næsta LB,
3 LL, 1 FL utan um tvo LB, 3
LL, sl. LB, 3 ST.
7. umf. Heklið 3 ST, [5 LL,
sl. LB, 2 ST + 1 LL + 2 ST í
næsta LB, 5 LL, sl. LB og
2 L, heklið ST í hverja L að
næsta LB, 2 ST + 1 LL + 2
ST í LB, heklið ST þar til 2
L eru eftir fyrir LB, sl. 2 L]
x 5, 5 LL, sl. LB, 2 ST + 1 LL
+ 2 ST í næsta LB, 5 LL, sl.
LB, 3 ST.
8. umf. Heklið 3 ST, [5 LL,
sl. LB, 2 ST + 1 LL + 2 ST í
næsta LB, 5 LL, sl. LB og 2
L, 2 ST í næstu L, heklið 1
ST í hverja L að næsta LB, 2
ST + 1 LL + 2 ST í LB, heklið
1 ST í hverja L þar til 3 L
eru eftir að næsta LB, 2 ST
í næstu L, sl. 2 L] x 5, 5 LL,
sl. LB, 2 ST + 1 LL + 2 ST í
næsta LB, 5 LL, sl. LB, 3 ST
(útaukningar umferð aukið
út um 2 L).
9. umf. Heklið 3 ST [3 LL,
1 FL utan um tvo LB, 3 LL,
sl. LB, 2 ST + 1 LL + 2 ST í
næsta LB, 3 LL, 1 FL utan
um tvo LB, 3 LL, sl. LB og
2 L, heklið ST í hverja L að
næsta LB, 2 ST + 1 LL + 2 ST
í LB, heklið ST í hverja L þar
til 2 L eru eftir að næsta
LB, sl. þessari L] x 5, 3 LL, 1
FL utan um tvo LB, 3 LL, 2
ST + 1 LL + 2 ST í næsta LB,
3 LL, 1 FL utan um tvo LB, 3
LL, sl. LB, 3 ST. Endurtakið
7.-9. umferð þar til komnar
eru 39 umferðir.
40. umf. Heklið [3 LL, 1 FL]
x 2, *[3 LL, sl. 3 L, 1 FL, 3
LL, sl. 3 L, 2 FL, 3 LL, 1 FL í
LB, 4 LL, 1 FL í sama LB, 3
LL, 2 FL, 3 LL, sl. 3 L, 1 FL,
3 LL, sl. 3 L, [2 FL, 3 LL, sl.
1 L] x 5, 1 FL í LB, 4 LL, 1
FL í sama LB, [3 LL, sl. 1 L,
2 FL]] x 5*, endurtakið frá
* til * alls fimm sinnum,
heklið 3 LL, sl. 3 L, 1 FL, 3
LL, sl. 3 L, 2 FL, 3 LL, 1 FL í
LB, 4 LL, 1 FL í sama LB, 3
LL, 2 FL, 3 LL, sl. 3 L, 1 FL,
3 LL, sl. 3 L, [1 FL, 3 LL] x
2, 1 KL.
Slítið frá og gangið frá endum.
Byrjaði 10 ára að hekla
Tinna Þórudóttir Þorvaldar hefur heklað frá því hún var 10 ára gömul og hélt lengi vel að allir
kynnu að hekla. Hún var að gefa út sína aðra heklbók þar sem finna má uppskriftir að peysum,
vettlingum, jólaskrauti og meira að segja er þar hekluð útgáfa af Maxímús Músíkús, og er því
meira um tæknilegar útfærslur en í fyrri bókinni.
F yrsta bókin mín, Þóra hekl-bók, var nefnd í höfuðið á Þóru langömmu minni
sem kenndi mér að hekla. Nýja
bókin er nefnd í höfuðið á dóttur
hennar, Maríu ömmu minni, sem
kenndi mér að prjóna,“ segir
Tinna Þórudóttir Þorvaldar sem
nýverið gaf út sína aðra heklbók
sem heitir einfaldlega María
heklbók. „Þær eru báðar farnar
frá mér, því miður, og ég valdi
nöfnin til að votta þeim virðingu. Í
raun er þetta líka virðingarvottur
um allar ömmur og langömmur
sem kenndu dætrum sínum að
sauma, prjóna, spinna og hekla.
Þetta hefur í gegn um tíðina verið
kvennalist og mikill menningar-
arfur,“ segir hún.
Tinna hefur heklað frá því hún
var 10 ára gömul og alltaf verið
mikil hannyrðakona. „Löngu
áður en þessi hannyrðavakning
varð hér á landi var ég að prjóna
ullarsokka á vini mína.“ Í raun var
það langþráður draumur að gefa
út heklbók en lengi vel stóð Tinna
í þeirri trú að allir kynnu að
hekla. „Ég var alin upp við hann-
yrðir og var sannfærð um að allir
kynnu að prjóna og hekla.“ Þegar
ljóst var að svo var ekki byrjaði
Tinna að halda heklnámskeið og
varð þá tilfinnanlega vör við að
engar íslenskar kennslubækur
voru til. Þegar Þóra heklbók kom
út í desember 2011 hafði ekki
komið út heklbók á Íslandi í ára-
fjöld. Bókin seldist upp endur-
tekið og fannst Tinnu nú kominn
tími á nýja bók.
Líkt og í fyrri bók Tinnu er í
Maríu heklbók að finna kafla með
öllum helstu leiðbeininingum
fyrir byrjendur. „Í Maríu er meiri
tækni en í Þóru því ég hef fundið
hvað áhugi á hekli er að aukast og
fólk vill prófa meira,“ segir Tinna.
Allar uppskriftirnar í Maríu hekl-
bók eru eftir Tinnu nema ein sem
er eftir Þóru langömmu hennar.
Það er uppskrift að svuntu sem
Þóra heklaði handa mömmu
Tinnu. „Það fer vel á að eina upp-
skriftin í bókinni minni sem er
ekki eftir mig hafi þessi tengsl
við ömmu,“ segir hún. Svuntan
heitir Tóta og deilir Tinna henni
með lesendum Fréttatímans.
„Þetta er svo fín svunta að hún
hentar eiginlega best þegar mað-
ur er búinn að baka,“ segir hún.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Ég var alin upp við
hannyrðir.
Svuntan Tóta
Tinna Þórudóttir Þorvaldar er ánægð með hannyrðavakninguna og finnst hún tilheyra virku samfélagi heklara. Ljósmynd/Hari
Uppskrift úr „María heklbók“
Svuntan Tóta
Mynd úr María Heklbók
Hvatningarverðlaun ÖBÍ verða veitt 3. desember nk. þeim
sem hafa stuðlað að jafnrétti, sjálfstæðu lífi fatlaðra og
einu samfélagi fyrir alla.
Verðlaun eru veitt í flokki:
1. Einstaklinga
2. Fyrirtækja/stofnana
3. Umfjöllunar/kynningar
Þekkir þú einhvern sem er
verðugur verðlaunahafi?
Sendu okkur tilnefningu fyrir 15. september nk. á þar til
gerðu eyðublaði sem nálgast má á www.obi.is.
Tilnefningar óskast!
Undirbúningsnefnd Hvatningarverðlauna ÖBÍ 2013
Bentu á þann ...
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
–
1
2
-1
6
9
7