Fréttatíminn - 13.09.2013, Side 50
50 heilsa Helgin 13.-15. september 2013
Heilsa Þegar Hausta tekur eykst fjöldi umgangspesta
Eins og náttúran hafði í hyggju
Ertu með fótapirring
eða sinadrátt?
MagnesiumOil
Spray
Fæst í flestum apótekum, heilsubúðum, heilsuræktarstöðvum
og Fjarðarkaup.
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
og á Facebook síðunni Better You Ísland
PREN
TU
N
.IS
Original
• Borið á húð og virkar strax
• Slær á fótapirring og sinadrátt
• Bætir svefn
• Frábær upptaka
Glútenfrí og sykurlaus kökublanda með marga möguleika!
1. Borðaðu grænmeti
Aldrei verður lögð of mikil
áhersla á að neyta græn-
metis í öllum regnbogans
litum. Grænmeti inniheld-
ur mikið af vítamínum og
steinefnum og best er að
borða fjölbreytt – papr-
iku, spínat, rauðbeður,
gulrætur.
2. Haltu ró þinni
Streita gerir okkur ekkert
nema slæmt. Langtíma
streita getur haft mjög
skaðleg áhrif á ónæmis-
kerfið og jafnvel ýtt undir
ofnæmi og asma. Reyndu
að skipuleggja tíma þinn
þannig að minni líkur séu
á streitu, farðu í jógatíma,
hlustaðu á slakandi tónlist
eða lærðu að hugleiða.
3. Hreyfðu þig
Fjöldi rannsókna hefur
sýnt að þeir sem hreyfa
sig reglulega veikjast
sjaldnar en aðrir og fá
sjaldnar kvef. Ein þess-
ara rannsókna var gerð
á 115 konum í yfirvigt
sem komnar voru yfir
breytingaskeiðið. Helm-
ingur þeirra fór reglulega í
líkamsrækt en hinar ekki.
Þær sem stunduðu líkams-
rækt fengu sjaldnar kvef
en konur í samanburðar-
hópnum og þær sem voru
duglegastar í ræktinni
fengu síst kvef.
4. Sofðu nóg
Þegar við sofum endur-
nýjar líkaminn sig og
byggir sig upp aftur eftir
átök dagsins. Svefnleysi
eykur hins vegar streitu,
minnkar mótstöðu gegn
umgangspestum og
gerir okkur daprari í lund.
Niðurstöður rannsókna
benda til að þeir sem sofa
minna en sjö tíma á nóttu
fái frekar kvef.
5. Hittu fólk
Þeir sem lifa virku félags-
lífi búa almennt við betri
heilsu og lifa lengur en
einfarar. Sumir gætu
haldið að því fleiri sem
þeir hitta því meiri líkur
séu á að ná sér í pest. Það
er ekki svo. Vísindamenn
beinlínis sprautuðu kvefví-
rus á fólk og athuguðu út-
komuna. Partídýrin komu
betur út, urðu sjaldnar
veik og þegar þau veiktust
jöfnuðu þau sig fyrr en
þeir sem blönduðu síður
geði við aðra.
6. Njóttu ásta
Einhverjum finnst kannski
nógu gott í sjálfu sér að
elskast en þessum nánu
ástaratlotum undir sæng-
inni fylgja þær jákvæðu
aukaverkanir að ónæmis-
kerfið styrkist og líkur á
kvefi minnkar. Þeir sem
stunda kynlíf einu sinni
eða tvisvar í viku hafa mun
meira mótefni gegn um-
gangspestum en þeir sem
stunda kynlíf óreglulega.
7. Neyttu heilsujurta
Það er gömul saga og ný
að grípa til helstu heilsu-
jurta þegar særindi hálsi
og hor í nefi gera vart við
sig. Þetta eru jurtir á borð
við sólhatt, gingseng,
hvítlauk, engifer, ólífu-
laufsþykkni og fjallagrös.
Þessar jurtir er gott að
setja í te, taka í töfluformi
eða jafnvel neyta eintómra.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Ráð til að sleppa
við kvefpestir
Haustið er komið og haustpestirnar með. Þó sumarið hafi ekki verið upp á marga fiska er enn
verri tíð í vændum og því mikilvægt að styrkja ónæmiskerfið til að komast sem best í gegn um
veturinn. Forvarnir eru mun æskilegri heldur en lyfjakokteill þegar umgangspestirnar ná til þín.
Hér eru nokkur ráð fyrir þá sem hugsa um heilsuna:
Fékkstu ekki
Fréttatímann
heim?
Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu.
Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita með
tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is
Sjáðu blaðið líka á frettatiminn.is