Fréttatíminn - 13.09.2013, Síða 58
58 skák og bridge Helgin 13.-15. september 2013
Skákakademían Það er mikið að geraSt í Skákheimum, innan landS og utan...
Í skákfréttum er þetta helst...
h eimsmeistaraeinvígi kvenna hófst í vikunni í kínversku borginni Ta-
izhou. Þar takast á Anna Ushen-
ina frá Úkraínu, sem óvænt náði
heimsmeistaratitlinum í fyrra, og
Hou Yifan sem var heimsmeistari
2010-12. Hou Yfan, sem er aðeins
18 ára, býr að mikilli reynslu og er
næststigahæsta skákkona heims
(á eftir Judit Polgar) með 2609
skákstig. Heimsmeistarinn Us-
henina, er 28 ára, og með 2500
skákstig sem dugar henni aðeins
í 17. sætið á lista yfir stigahæstu
skákkonur heims. Flestir spá því
að kínverska skákdrottningin
endurheimti krúnuna á heimavelli.
Í fyrstu skákinni malaði Hou Yifan
gestinnn frá Úkraínu með svörtu.
Alls verða tefldar 10 skákir í heims-
meistaraeinvíginu...
Fjórir kóngar í Saint Louis
Skákáhugamenn á okkar tímabelti
verða máske vökubleikir næstu
dagana: Nýverið hófst í Saint Louis
mikið ofurmót og þar fara skák-
klukkurnar í gang þegar klukkan
er ellefu að kvöldi hérlendis. Kepp-
endur á „The Sinquefiled Cup“ eru
hvorki meira né minna en tveir
stigahæstu skákmenn heims og
tveir bestu Bandaríkjamennirnir
– Carlsen, Aronian, Nakamura og
Kamsky. Þeir tefla tvöfalda um-
ferð, alls sex skákir hver. Þetta er
síðasta mótið í bili þar sem Carlsen
leikur listir sínar, framundan er
heimsmeistaraeinvígið við Anand
í nóvember. Nakamura stal sen-
unni í upphafi með sigrum gegn
Aronian og Kamsky, meðan Carl-
sen gerði jafntefli við Aronian, og
sigraði lánlítinn Kamsky. Mótinu
lýkur 15. september...
Haustmót TR öllum opið
Haustmót Taflfélags Reykjavíkur
2013 hefst sunnudaginn 15. sept-
ember kl.14. Mótið er eitt af aðal-
mótum vetrarins í reykvísku skák-
lífi og jafnframt meistaramót TR.
Það er áratuga gömul hefð fyrir
hinu vinsæla Haustmóti og er það
flokkaskipt. Mótið er öllum opið og
fer fram í félagsheimili Taflfélags
Reykjavíkur, skákhöllinni að Faxa-
feni 12. Teflt er tvisvar í viku. Alls
eru níu umferðir í hverjum flokki.
Lokuðu flokkarnir eru skipaðir tíu
keppendum hver þar sem allir tefla
við alla, en í opna flokknum er teflt
eftir svissnesku kerfi. Skráning fer
fram á skak.is og heimasíðu Tafl-
félags Reykjavíkur...
Friðrik enn í víking fer
Friðrik Ólafsson varð Norður-
landameistari í skák árið 1953 –
fyrir sextíu árum. Hann endur-
tók afrekið árið 1971 – og vann
reyndar á glæsilegum ferli marga
miklu stærri sigra. Friðrik lagði
heimsmeistarana Tal, Petrosjan
og Fischer alla tvívegis, og hann
sigraði Anatoly Karpov þegar
rússneski heimsmeistarinn stóð á
hátindi. Með afrekum sínum kom
Friðrik Íslandi rækilega á kortið í
skákheiminum, og hér voru haldin
vegleg alþjóðleg mót og viðburðir.
Án Friðriks hefði Reykjavík aldrei
komið til álita sem vettvangur fyrir
einvígi aldarinnar 1972. Land-
kynningargildi þess viðburðar er
nú reiknað í stjarnfræðilegum upp-
hæðum. En það er semsagt gaman
að segja frá því að okkar eini sanni
Friðrik Ólafsson situr nú að tafli
á Norðurlandamóti öldunga, sem
fram fer í Danmörku og er ætlað
skákmönnum eldri en 60 ára. Sjálf-
ur er Friðrik nú 78 ára, og er tap-
laus eftir fimm með umferðir, með
3,5 vinning. Skæðustu keppinautar
Friðriks eru Jens Kristiansen, sem
í fyrra vann það frækilega afrek
að verða heimsmeistari 60 ára og
eldri, og fékk fyrir vikið síðbúinn
stórmeistaratitil. Finnska kempan
Heikki Westerinen er líka alltaf til
alls líklegur. Tveir aðrir Íslendinga
keppa á Norðurlandamótinu, Ás-
kell Örn Kárason og Sigurður E.
Kristjánsson, og er árangur þeirra
í samræmi við væntingar. Megi
okkar fyrsti stórmeistari, goðsögn-
in Friðrik Ólafsson, gleðja okkur
lengi enn með snilld sinni...
í bikarleik sveita Hvar er Valli? og SFG í þriðju umferð stóð Ómar Olgeirsson fyrir erfiðri ákvörðun í sögnum. Hann
var með 853, ÁKD105, 6, Á975 í norður.
Allir utan hættu og suður gjafari. Opnun
félaga var 1 tígull, komið inn á einum
spaða og sögð tvö hjörtu í norður sem er
krafa um hring. Opnari sagði 3 tígla, Ómar
valdi 3 spaða og félagi sagði 4 lauf. Nú var
komið að Ómari að velja sögn. Allt spilið
var svona:
♠ 853
♥ ÁKD105
♦ 6
♣ Á975
♠ G10
♥ 4
♦ ÁKG1095
♣ K1084
♠ KD9764
♥ G3
♦ 42
♣ D62
♠ Á2
♥ 98762
♦ D873
♣ G3
N
S
V A
Þó að 13 punktar væru til reiðu, þá leist
Ómari ekki á blikuna og valdi pass. Það
reyndist ágætis ákvörðun miðað við hvern-
ig spilið var. Ekkert geim stendur á hendur
NS og græddust nokkrir impar á ákvörðun
Ómars, því geim var spilað á hinu borðinu,
einn niður. Hætt er við að flestir með hönd
norðurs myndu ekki gefast upp og melda
annaðhvort 4 hjörtu eða 5 lauf. Það leiðir
hvorugt til vinnings ef vörnin tekur slagi
sína. Jafnvel 5 tíglar vinnast ekki heldur,
því drottning fjórða austurs verður óhjá-
kvæmilega slagur.
Lokasprettur sumarbridge hafinn
Sumarbridge er að ganga sitt skeið og
óhætt er að segja að aðsóknin hafi verið
góð. Miðvikudagskvöldið 4. september
mættu 36 pör til leiks. Lokastaða 5 efstu
para varð þannig:
1. Halldór Ú. Halldórsson – Hermann Friðriksson 61,9%
2. Árni Hannesson – Oddur Hannesson 58,6%
3. Haukur Ingason – Helgi Sigurðsson 58,3%
4. Þorvaldur Pálmason – Jón Viðar Jónmundsson 58,3%
5. Halldór Þorvaldsson – Magnús Sverrisson 57,9%
Mánudagskvöldið 9. september var mætingin 25
pör. Lokastaða 5 efstu para varð þannig:
1. Guðmundur Snorrason – Ragnar Magnússon 59,7%
2. Gabríel Gíslason – Sigurður Steingrímsson 59,6%
3. Gunnlaugur Karlsson – Kjartan Ingvarsson 59,3%
4. Hrund Einarsdóttir – Dröfn Guðmundsdóttir 57,6%
5. Helgi Bogason – Sverrir Þórisson 55,4%
Lokamót Sumarbridge 13. september –
Silfurstig
Lokamót Sumarbridge fer fram föstudaginn
13. september og hefst klukk-
an 18. 40 spil verða spiluð,
4 spil verða á milli para og
verða veitt silfurstig. Keppnis-
gjald er 1500 kr. á spilara og
verða verðlaun fyrir 5 efstu
sætin. Jafnframt verða veitt
verðlaun fyrir bronsstiga-
hæstu kven-og karl spilara
sumarsins.
1. verðlaun: Keppnisgjald fyrir 1 par
í tvím. Bridgehátíð 2014. 2. verðlaun: Keppnisgjald
fyrir 1 par á Íslandsmótið í Butler tvímenningi 2013. 3-5.
verðlaun: Keppnisgjald fyrir 2 spilara á Íslandsmótið í
einmenningi 2013
Einnig verða 2 heppnir dregnir út og fá þeir frítt í
tvímenning Bridgehátíðar.
Félögin að hefja starfsemi
Félögin á höfuðborgarsvæðinu eru að hefja
næsta keppnistímabil. Stærstu félögin eru
BR, BH og BK.
Bridgefélag Reykjavíkur
Haustið 2013 hefst með Hótel Hamar 3
kvölda tvímenningi, 17.sept., 24. sept. og 1.
okt. Reykjavíkurmótið í tvímenningi verður
27. og 28. september. Á eftir verður hrað-
sveitakeppni 4 kvölda, 8. okt., 15. okt, 22.
okt. og 29. okt. Næst á dagskrá er Butler tví-
menningur 3 kvölda, 5. nóv., 12. nóv. og 19.
nóv. Á eftir honum er sveitakeppni Monrad,
3 kvölda, 26. nóv., 3. des. og 10. des. Spilað-
ur verður jólasveinatvímenn-
ingur 17. desember og Jólamót
BR 30. desember. BR hefur
ákveðið að bjóða upp á eins
kvölds tvímenning valda föstu-
daga í vetur. Annars vegar
kvöld sem einungis eru opin
fyrir konur en hins vegar
opin kvöld þar sem allir eru
velkomnir. Dömuklúbburinn
er 20. sept., 1. okt. og 13. des.
og föstudagsklúbburinn 11. okt. og 29. nóv.
Bridgefélag Hafnarfjarðar
Starfsemi félagsins hefst á eins kvölds
Monrad Barómeter, 16.9. Næst verður
eins kvölds Monrad Barómeter 23.9. Síðan
kemur þriggja kvölda Butler tvímenn-
ingur, 30.9., 7.10. og 14.10. Þar á eftir verður
hraðsveitakeppni tveggja kvölda, 21.10. og
28.10. Síðan verður Mitchell tvímenningur
tvö kvöld, 4.11. og 11.11. Aðalsveitakeppni
verður spiluð 18.11, 25.11., 2.12. og 9.12.
Bridgefélag Kópavogs
Dagskráin haustið 2013 hófst 12. september
með eins kvölds tvímenningi. Þann 19. sept-
ember hefst Monrad hausttvímenningur
og verður einnig spilað 26. september og 3.
október. Tvö bestu kvöldin gilda til verð-
launa í hausttvímenningi. Síðan hefst Butler
tvímenningur sem verður 10. október, 17.
október og 24. október.
Bridge næSta keppniStímaBil félaganna á höfuðBorgarSvæðinu er að hefjaSt
Ábatasöm ákvörðun
Ómar Olgeirsson stóð frammi
fyrir erfiðri ákvörðun í sögnum
í bikarleik BSÍ í þriðju umferð.
Kristján Þór Júlíusson lék fyrsta leikinn fyrir Hörð Garðarsson á Bónus-Afmælis-
móti Vinaskákfélagsins, sem haldið var í Vin á mánudaginn. Tíu ára afmæli var vel
fagnað. Allir eru velkomnir í Vin, Hverfisgötu 47. Þar eru æfingar á mánudögum
kl. 13, og teflt alla daga.
F
R
U
M
Ég næ árangri í sölu fasteigna
Ég sýni eignina fyrir þig
Ég aðstoða þig við að finna eign
Enginn kostnaður
nema eignin seljist
Eggert Ólafsson löggiltur fasteignasali 893 1819
Pantaðu frítt
söluverðmat
893 1819
Opið hús laugard. 14. sept. kl. 13:30-14:00
Torfufell 9, raðhús, 111 Reykjavík
*MIKIÐ ENDURNÝJAÐ CA. 280 FM
RAÐ HÚS* Fallegt, 6 herb., ca. 280 fm
raðhús, ásamt bílskúr. Möguleiki á auka
íbúð í kjallara. Stór sólpallur. Fallegur og
rækt aður suðurgarður. Nýlega málað. Ný
legt járn á húsi og bílskúr. Gott viðhald.
Verð kr. 39.800.000
Allar nánari upplýsingar veitir:
Eggert, lögg. fasteignas., s: 893 1819
eggert@fasteignasalan.is
Bókið skoðun í síma: 893 1819
Naustahlein 26, endaraðhús,
210 Garðabæ
*FYRIR 60 ÁRA OG ELDRI * ENDA
RAÐHÚS* Fallegt 3ja herb., 89,2 fm enda
raðhús, fyrir 60 ára og eldri. Hátt er til lofts
í húsinu. Fallegur garður. Hiti er í stétt um
og bílaplani. Aðgangur er að þjón ustu hjá
Hrafnistu í göngufæri. Verð kr. 31.500.000
Allar nánari upplýsingar veitir:
Eggert, lögg. fasteignas., s: 893 1819
eggert@fasteignasalan.is
Bókið skoðun í síma: 893 1819
Akurhvarf 1, íbúð 402, 203 Kópavogur
*GLÆSILEGT ÚTSÝNI TIL ELLIÐA
VATNS* Rúmgóð og falleg 2ja herb. 75
fm íbúð á 4. og efstu hæð í litlu lyftu húsi.
Frábær staðsetning í nálægð við nátt úru
para dísina við Elliðavatn. Stutt í versl un,
skóla, leikskóla, góðar gönguleiðir og fleira.
Verð kr. 23.900.000
Allar nánari upplýsingar veitir:
Eggert, lögg. fasteignas., s: 893 1819
eggert@fasteignasalan.is
Bókið skoðun í síma: 893 1819
Vogagerði 18 , einbýli, 190 Vogar
*EINBÝLI Í NÁGRENNI HÖFUÐBORG
AR*
175 fm einbýlishús á einni hæð í Vogum
á Vatnsleysuströnd, þar af er bílskúr 41,6
fm. Eignin þarfnast verulegra endurbóta
að utan sem innan.
Verð kr. 18.000.000
Allar nánari upplýsingar veitir:
Eggert, lögg. fasteignas., s: 893 1819
eggert@fasteignasalan.is
Bókið skoðun í síma: 893 1819
Vogagerði 26, einbýli, 190 Vogar
*ÁGÆTIS EINBÝLI Í NÁGRENNI HÖFUÐ
BORG AR*
Ágætis 178,8 fm einbýlishús á einni hæð
í Vogum á Vatnsleysuströnd, þar af er bíl
skúr 47,2 fm.
Verð kr. 26.000.000
Allar nánari upplýsingar veitir:
Eggert, lögg. fasteignas., s: 893 1819
eggert@fasteignasalan.is
Opið
hús
Fasteignasalan Bær • Ögurhvarfi 6 • 203 Kópavogur • Sími 893 1819 • www.fasteignasalan.is
Fagleg og persónuleg þjónusta