Fréttatíminn - 13.09.2013, Síða 70
TónlisT sTærri lisTamenn vænTanlegir á sónar-háTíðina
Sónar haldin samtímis í
Reykjavík og Stokkhólmi
Tónlistarhátíðin Sónar verður eftirleiðis haldin samtímis í Reykjavík og Stokkhólmi. Margir lista-
menn munu koma fram á báðum stöðum. Þetta ætti að tryggja að hingað komi stærri nöfn en ella.
Systurnar í Sísý Ey heilluðu marga á fyrstu Sónar Reykjavík-hátíðinni í febrúar. Ljósmynd/Hari
v ið munum strax sjá samlegðaráhrif fyrir okkur að gera þetta svona. Það verða stærri listamenn sem koma
fram. Við verðum með færri plötusnúða en
stærri og fleiri „live“-atriði í staðinn. Svo verð-
ur hátíðin þriggja daga en ekki tveggja daga,“
segir Björn Steinbekk, fram-
kvæmdastjóri Sónar Reykjavík.
Gengið hefur verið frá því
að samhliða Sónar Reykjavík í
febrúar verður Sónar sett upp í
Stokkhólmi. Um er að ræða tvær
aðskildar hátíðir en einhverjir
listamenn munu koma fram á báð-
um hátíðunum. Hátíðin í Stokk-
hólmi er í meirihlutaeigu Sónar
Reykjavík.
„Við erum með rúmlega þrjú
þúsund manna hús, Hörpu, sem
er frábært og við viljum hvergi annars staðar
vera. Fyrsta hátíðin var harður skóli en það
varð til reynsla sem á að geta skilað okkur,
Hörpu og fyrst og síðast gestum Sónar
Reykjavík betri hátíð á næsta ári. Þessi tryggð
okkar við Hörpu þýðir hins vegar að við
getum ekki fjölgað áhorfendum en um leið
er erfitt að byggja upp arðbæra tónlistarhátíð
þar sem Íslendingar eru kröfuharðir gestir.
Þeir eru ekki vanir því miðaverði sem þekkist
fyrir hátíðir sem þessa annars staðar í Evr-
ópu. Það var því tvennt í stöðunni, að hækka
miðaverðið all verulega til að geta náð í stærri
listamenn eða að samnýta helstu listamenn
með annarri hátíð. Við erum því að byrja
rekstur Sónar í Stokkhólmi til að efla hátíðina
hér heima,“ segir Björn. Björn segir að eftir
að Sónar Reykjavík var haldin í fyrsta sinn í
byrjun þessa árs hafi komið upp áhugi víða
í Skandinavíu að fá Sónar til sín. „Hinsvegar
var mín stefna ávallt að sanna okkur fyrir
eigendum Sónar og skoða aðrar borgir í fram-
haldinu. Niðurstaðan varð sú að eigendur
Sónar vildu efla samstarfið við okkur frekar
en að vinna með öðrum aðilum í öðrum borg-
um. Það er mikil viðurkenning fyrir okkur og
alla þá sem komu að síðustu hátíð, Hörpu, Ice-
landair og okkar frábæra starfsfólk.“
Af hverju Stokkhólmur?
„Stokkhólmur er álíka fjölmenn borg og
Barcelona og Svíar eru á topp fimm yfir gesti
á Sónar í Barcelona. Þeir eru með þróaðan
heimamarkað í tónlistinni og sterka kaupgetu
þeirra sem vilja fara á svona hátíðir. Okkar
framtíðarsýn er að Sónar í Stokkhólmi geti, ef
allt gengur eftir, á næstu þremur árum orðið
frekar stór hátíð,“ segir Björn.
Hversu stór?
„Við byrjum með tvö þúsund manna hátíð
þar á næsta ári. Markmiðið er að eftir tvö
til þrjú ár verðum við komin í rúmlega tíu
þúsund manna hús.“ Við erum í samstarfi við
sterka aðila í Stokkhólmi, annars hefði þetta
ekki geta gengið upp.“
Og því stærri sem hátíðin í Stokkhólmi
verður, þeim mun betri hátíð fáum við í
Reykjavík?
„Já, þetta skilar betri dagskrá hér á næstu
árum. Þetta mun gefa okkur tækifæri á að
koma með listamenn hingað sem venjulega
eru kannski að spila í 3-9 þúsund manna
sölum og fá þá til að spila í 1.500 mann sal.
Það er hátíðin sem viljum búa til og munum
búa til, eina hátíð í einu.“
Sónar Reykjavík og Sónar Stokkhólmur
verða haldnar dagana 13.-15. febrúar á næsta
ári. Búast má við að fyrstu tilkynningu um
listamenn á hátíðunum á næstu vikum.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Björn Stein-
bekk hefur
gengið frá
samningum
um að Sónar
verði haldin
samtímis í
Reykjavík og
Stokkhólmi.
Hann segir
að það tryggi
að stærri
listamenn sæki
Ísland heim en
ella. Ljósmynd/
Tristan Steinbekk
Hasler Björnsson
Sýningar hefjast
á nýju um
helgina á verkinu
Rautt í leikstjórn
Kristínar Jó-
hannesdóttur en
verkið var sýnt
við miklar vin-
sældir á síðasta
leikári. Jóhann
Sigurðarson
leikur mynd-
listarmanninn
Mark Rothko
í sýningunni
og Hilmar
Guðjónsson fer
með hlutverk
aðstoðarmanns
hans. Leikararnir
brugðu sér til
London í sumar
sjónvarp sTefán pálsson gerir breyTingar á ÚTsvari
Rassaköstin aflögð
Spurningaljónið Stefán Pálsson er orð-
inn aðalspurningahöfundur Útsvars og
boðar ýmsar breytingar á þættinum sem
hefur göngu sína á ný á föstudagskvöld
með stórslag Reykjavíkur og Akureyrar.
„Við áskiljum okkur svosem alveg rétt
til að hræra í forminu eftir því sem líður
á og á milli umferða sérstaklega,“ segir
Stefán og bendir á að í þáttum sem þess-
um sé ekkert nýtt undir sólinni og því
sé meðal annars horft til góðra erlendra
fyrirmynda. „Við erum ekkert að reyna
að halda því fram að við séum að reyna
að finna upp hjólið.“
Látbragðsleikurinn verður ekki með,
í það minnsta ekki til að byrja með og
bjölluhlaupið hefur verið aflagt. „Við
hættum að láta fólk hlaupa í bjöllu.
Enda má í rauninni segja að þetta hafi
verið orðið hættuspil. Menn voru farnir
að setja þarna skriðþunga karlmenn
sem feyktu öllum frá með rassaköstum
og látum og af þessu hlutust rifbeins-
brot og annað slíkt. Þannig að það má
kannski segja að tryggingafélag Sjón-
varpsins hafi farið þessa á leit við okkur.
Þannig að hættan á íþróttameiðslum
hefur minnkað. Allverulega.“
Stefán segir sósíalistann í sér hafa
fengið í gegn kerfisbreytingu sem gefur
minni sveitarfélögum séns á að vera
með. Þannig mæti nú Hvalfjarðarsveit,
Seyðisfjörður, Tálknafjörður og Sand-
gerði til leiks en Hafnarfjörður situr til
dæmis hjá í ár.
En verður Stefán sjálfur aldrei leiður á
því að snúast í kringum spurningaþætti?
„Þetta er bara vinna. Ef einhver hefði
sagt mér það þegar ég var í menntó að
ég mundi sjá mér farborða með því að
kenna mönnum að drekka bjór á kvöldin
og semja spurningar að deginum þá
hefði ég bara hætt í skóla. Séð það að
ég væri þegar kominn með þetta,“ segir
hann og hlær.
Stefán Pálsson, sagnfræðingur og spurningaljón, boðar ýmsar
breytingar á Útsvari í Sjónvarpinu.
Blaðamaðurinn Sigurjón
M. Egilsson, sem tekur
sína vikulegu þeysireyð
yfir pólitíkina og þjóð-
málin í útvarpsþættinum
Sprengisandi á Bylgjunni,
er ekki par ánægður
með Jón Gnarr, borgar-
stjóra. Frétt á mbl.is um
að borgarstjóri hafi veitt
hátt í 500 erlendum fjöl-
miðlum frá því hann tók
við embætti gaf Sigurjóni
tilefni til þess að vekja
athygli á því á Facebook
að það væri þrautin
þyngri að ná Jóni í viðtal
við íslenskan fjölmiðil:
„Bauð þessum að koma á
Sprengisand á sunnudag.
Afþakkaði. Leiðin að
honum er lengri en ég hef
áður kynnst. Ég hef verið
blaðamaður í bráðum
30 ár og mörgu kynnst í
samskiptum fjölmiðla og
ráðafólks.“
Gnarr vill ekki á Sprengisand
Hilmir og Jóhann sáu rautt
og skoðuðu verk
Rothko í Tate Modern-
safninu og stóðu að
sögn agndofa and-
spænis verkum aðal-
persónu leikritsins.
Hilmar hreifst svo af
verkunum að hann
var lengi að jafna sig
eftir heimsóknina á
safnið og kemur því
væntanlega aftur til
leiks núna, innblásinn
sem aldrei fyrr.
Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum N1 um land allt
HELGARBLAÐ
70 dægurmál Helgin 13.-15. september 2013