Fréttatíminn - 05.04.2013, Side 4
fyrir fullorðna og
börn eldri en 2 ára
án rotvarnarefna
ódýrt
Stíflað nef?
Naso-ratiopharm
fæst án lyfseðils í apótekum
Nefrennsli?
xylometazolin hýdróklóríð
Naso-ratiopharm nefúði inniheldur xylometazolin sem minnkar þrota í slímhúðum í ne og hálsi, dregur úr aukinni
slímmyndun og auðveldar einstaklingum með kvef að anda í gegnum neð. Lyð er ætlað til skammtíma meðferðar við
stíu í ne, t.d. vegna kvefs. Skammtar eru 1 úðun í hvora nös, eftir þörfum, mest þrisvar á dag. Lyð má nota í mest 7 daga
í senn. Naso-ratiopharm 0,5 mg/ml: Lyð er ekki ætlað börnum yngri en 2 ára. Tíminn á milli skammta skal ekki vera
styttri en 8 klst. Naso-ratiopharm 1 mg/ml: Lyð er ekki ætlað börnum yngri en 10 ára. Tíminn á milli skammta skal ekki
vera styttri en 6 klst. Algengustu aukaverkanir eru sviði og ofþornun í slímhúð í ne. Einstaklingar sem m.a. nota
MAO-hemla, eru með þrönghornsgláku eða hafa ofnæmi fyrir xylometazolini eða einhverju hjálparefnanna skulu ekki
nota lyð, sjá nánar í fylgiseðli. Lesið vandlega fylgiseðlinn sem fylgir lynu. Nóvember 2012.
Grænn fyri
r
börnin
Klífur fjöll til styrktar
sjúkum börnum
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Rigning S-landS, einKum SíðdegiS, en annaRS
fRemuR SólRíKt.
HöfuðboRgaRSvæðið: Bjart framan af.
rigning undir kvöld.
HeiðRíKja um noRðanveRt landi, en
væta SyðRa. KólnaR
HöfuðboRgaRSvæðið: rigning eða
slydda með köflum.
ÚRKomulauSt að meStu og HægviðRi.
víða fRoSt.
HöfuðboRgaRSvæðið: Él eða slydduÉl
um morguninn.
Kólnar heldur
um helgina
fremur hæglátt veður og í sjálfu sér eru ekki
verulegar breytingar í veðri hér hjá okkur
næstu daga, nema að það fer heldur kólnandi
frá því á laugardag. aðfararnótt sunnudags-
ins verður þannig frost um
mest allt land, en talsverður
hitamunur dags og nætur
þar sem sólin nær víða að
skína, einkum n- og a-til.
suðvestanlands er spáð
vætu, en éljum snemma á
sunnudag suðvestanlands.
5
2 1
-1
4
1
-2 -4 -5
2
0
-3 -3 -5
1
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Átak í málefnum
hælisleitenda hafið
tímabundið átak til að stytta málsmeðferðar-
tíma hælisumsókna, sem ríkisstjórnin samþykkti
að ráðast í 12. mars síðastliðinn, er hafið og hafa
verkefnastjórn og verkefnisstjóri tekið til starfa.
Hólmfríður sveinsdóttir stjórnsýslufræðingur
er verkefnisstjóri átaksins. Útlendingastofnun
hefur ráðið í tvö tímabundin stöðugildi og unnið
er að ráðningu í tvö stöðugildi hjá innríkisráðu-
neyti. verkefnisstjórnin fundaði með bæjar-
stjóra og félagsmálayfirvöldum í Reykjanesbæ
20. mars og var þá samþykkt að veita innanríkis-
ráðuneyti frest til 1. júlí til að vinna að varanlegri
lausn á fyrirkomulagi á móttöku hælisleitenda.
ferðamönnum á austur-
landi fjölgar mest
gistinætur á hótelum í febrúar
voru þriðjungi fleiri en í sama
mánuði í fyrra, alls tæplega 140
þúsund. Þeim fjölgaði hlutfalls-
lega meira úti á landi en á höfuð-
borgarsvæðinu og mest á austur-
landi þar sem fjöldi gistinátta
rúmlega tvöfaldaðist. næstmesta
fjölgunin var á vesturlandi og vestfjörðum,
tæplega 90 prósent. aukningin var hlutfallslega
minnst á norðurlandi, tæp 20 prósent. -sda
gréta ingþórsdóttir
framkvæmdastjóri skB
Þorsteinn jakobsson
ætlar að klífa 12 bæjarfjöll
á næstu 12 mánuðum og
safna um leið áheitum fyrir
styrktarfélag krabbameins-
sjúkra barna. „samstarfs-
verkefnið hefur hlotið
nafnið saman klífum bratt-
ann en baráttu krabba-
meinsveikra barna má oft
og tíðum líkja við fjallgöngu
sem stundum er erfið vegna
bratta og klungurs en svo
koma tímar og svæði inn á
milli sem ekki eru jafnerfið
yfirferðar,“ segir Gréta Ing-
þórsdóttir framkvæmda-
stjóri félagsins.
Samstarfið hefst form-
lega með göngu á bæjarfjall
Hafnfirðinga, Helgafellið,
næstkomandi laugardag, kl.
10. gangan tekur um tvær
klukkustundir og er öllum
heimil þátttaka án greiðslu
þátttökugjalds en þátt-
takendum sem og öðrum
bent á að hægt er að styðja
verkefnið með frjálsum
framlögum inn á reikning
skB. næstu tvær
göngur verða síðan
laugardaginn 13. apríl á
akrafjall við akranes kl.
10.00 og 20. apríl á keili
við voga kl. 10.00. -sda
framsókn fengi
helming lands-
byggðarþingmanna
Framsóknarflokkurinn fengi þrettán
af tuttugu og sex kjördæmakjörnum
alþingismönnum landsbyggðarkjör-
dæmanna þriggja, ef úrslit kosning-
anna 27. apríl yrðu í samræmi við
niðurstöður nýjustu skoðanakönnun-
ar Capacent. samkvæmt könnuninni
fengi Framsóknarflokkurinn 28,3%
atkvæða, Sjálfstæðisflokkurinn
22,4%, Samfylkingin 15%, Björt
framtíð 12,7 og Vinstri græn 8,5%.
önnur framboð ná ekki að rjúfa
5% múrinn en Píratar eru með rúm
4% og Lýðræðisfylkingin rúm 3%.
Framsóknarflokkurinn fengi fimm af
níu kjördæmakjörnum þingmönnum
í norðausturkjördæmi og suðurkjör-
dæmi og þrjá af átta í norðvestur-
kjördæmi, samkvæmt niðurstöðum
könnunarinnar.
g eðheilsustöð Breiðholts er sú fyrsta sinnar tegundar á Ís-landi þar sem geðheilbrigðis-
þjónusta er færð til íbúa í stað þess
að þeir þurfi að leita beint til stærri
stofnana á borð við Landspítalann.
Innan geðsviðs spítalans hefur
síðustu ár orðið vart við að óvenju
stór hluti þeirra sem þurftu á bráða-
þjónustu að halda og komu ítrekað
á göngudeildir geðsviðs var fólk úr
Breiðholtinu. Við þessu var ákveðið
að bregðast og úr varð Geðheilsu-
stöðin sem er þróunarverkefni til
þriggja ára. Árangur verður metinn
að þeim tíma liðnum.
„Markmiðið er að fækka inn-
lögnum á geðsvið Landspítalans en
einnig að þjónusta nærsamfélagið,
að bjóða fólki geðheilbrigðisþjónustu
í sínu hverfi og auka vellíðan,“ segir
Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, geð-
hjúkrunarfræðingur og verkefnis-
stjóri Geðheilsustöðvarinnar. Þá er
þetta úrræði einnig ódýrara en inn-
lagnir á geðdeild.
Árið 2010 voru íbúar í Breiðholti,
með lögheimili í póstnúmerum 109
og 111, hlutfallslega flestir þeirra
sem lögðust tvisvar eða oftar inn á
legudeildir geðdeilda Landspítalans,
eða 13,6%. Árinu á eftir var hlutfallið
10,6%.
Þegar kemur að endurteknum
komum á dagdeildir, göngudeildir
og nýtingu bráðaþjónustu geðdeilda
Heilbrigðismál markmiðið að auka vellíðan í breiðHolti
Breiðhyltingar sækja
oftar á geðdeild
Hátt hlutfall íbúa í Breiðholti sem kom á bráðamóttökur geðdeilda landspítalans er ein ástæða
þess að sérstök Geðheilsustöð var opnuð í hverfinu. Einstaklingsviðtöl og fræðsla fyrir almenning
um geðheilbrigði eru meðal veittrar þjónstu.
Landspítalans voru íbúar í Breiðholti
12,3% af þeim sem komu fimm sinnum
eða oftar á árinu 2010. Hlutfallið var
10,9% árið 2011.
Geðheilsustöðin er rekin í samstarfi
við Þjónustumiðstöð Breiðholts og
Heimaþjónustu Reykjavíkur. Sigríður
var verkefnisstjóri geðteymis Heima-
þjónustunnar, sem nú heyrir undir
Geðheilsustöðina, og segir hún að þar
hafi tilfinnanlega orðið vart við aukna
sókn í þjónustu geðteymisins frá íbúum
í Breiðholti. Til stendur að stöðin fari
í samstarf við Heilsugæsluna í efra og
neðra Breiðholti.
Meðal þess sem Geðheilsustöðin
býður upp á er þjónusta geðteymis, ein-
staklingsviðtöl, fræðsla fyrir almenn-
ing og sérstakur ráðgjafasími. „Hver
sem er getur hringt í ráðgjafasímann,
án þess að gefa upp nafn. Þar getur fólk
rætt um sína andlegu líðan og fengið
ráðgjöf um hvaða úrræði hentar því
best,“ segir Sigríður. Símanúmerið er
411-9680 og gefur símsvari nánari upp-
lýsingar ef enginn er við símann. Geð-
teymið þjónustar einnig íbúa í Grafar-
vogi, Grafarholti og Árbæ.
Fyrirmyndin að Geðheilsustöðinni
er sótt erlendis frá. Hjá Reykjavíkur-
borg er litið á verkefnið sem hugsan-
lega fyrirmynd af svipuðu úrræði fyrir
fleiri borgarhluta.
erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
tíu prósent reykvíkinga búa í Breiðholti, með lögheimili í póstnúmerum 109 og 111. Þeir geta nú leitað til sinnar eigin geð-
heilsustöðvar. Ljósmynd/Hari
Sigríður Hrönn bjarnadóttir,
verkefnisstjóri geðheilsustöðv-
ar Breiðholts
Markmiðið er að
fækka innlögnum
á geðsvið Land-
spítalans …
4 fréttir Helgin 5.-7. apríl 2013