Fréttatíminn - 05.04.2013, Side 6
A lgengast er að fólk missir stjórn á sér við barnið og grípur
til hirtinga, hristir barnið
eða rassskellir og sér síðan
mjög eftir því,“ segir Halldóra
Dröfn Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Barnaverndar
Reykjavíkur. 29 tilkynningar
vegna líkamlegs ofbeldis
gegn börnum frá fæðingu
og til sex ára aldurs bárust
þangað á síðasta ári. Um er að
ræða grun um ofbeldi gegn
27 börnum.
Gjarnan eru það nágrann-
ar sem hafa samband við
barnavernd eftir að hafa heyrt
háreysti, dynki og barnsgrátur. „Síðan
fáum við líka tilkynningar frá leik-
skólum vegna þessara yngstu barna.
Þá er haft samband þegar barn er með
marbletti eða aðra sjáanlega áverka sem
taldir eru af mannavöldum. Þau börn
sem eru byrjuð að tala segja líka jafnvel
sjálf frá ofbeldinu,“ segir Halldóra.
Alvarlegasta líkamlega ofbeldið, þeg-
ar litið er til líkamlegs skaða barnsins,
segir Halldóra vera þegar ungbörn eru
hrist með harkalegum hætti og getur
slíkt hreinlega leitt til dauða. „Síðan
eru það bókstaflega beinbrot, brot á
handleggjum eða fótleggjum. Þegar svo
alvarleg tilvik koma upp kallar það hik-
laust á lögreglurannsókn,“ segir hún.
Barnaverndarnefnd reynir annars í
hvert skipti að meta hvers konar við-
brögð þarf. „Stundum finnst okkur að
gerandinn, sem er oftar en ekki faðir
eða stjúpi, fari af heimilinu í stað þess
að barnið sé tekið. En það gerist ekki
nema samstaða sé um það innan fjöl-
skyldunnar. Við höfum dæmi
um að faðir fari af heimili og
leiti sér aðstoðar. Það kemur
þó einnig til þess að barnið er
tekið af heimilinu,“ segir Hall-
dóra. Þá eru dæmi um að ung
börn verði fyrir skaða eftir
að hafa orðið á milli í líkam-
legum átökum foreldra. „Á
hverju ári eru einhver tilvik
þar sem börn eru svo nálægt
deilum foreldra að þau skadd-
ast. Í hatrömmum forsjár-
deilum og skilnuðum kemur
líka fyrir að fólk reynir að rífa
ung börn frá hvort öðru, bók-
staflega. Þetta er sorglegt,“
segir hún.
Birtingarmyndir líkamlegs ofbeldis
gegn börnum er einnig mismunandi
eftir því hvort forráðamenn koma frá
öðrum heimshlutum. „Íslendingar slá
frekar börnin eða rasskella en þess verð-
ur oftar vart hjá fólki annars staðar frá
að það slær börnin með belti, priki eða
herðatré. Skaðinn er samt yfirleitt sam-
bærilegur enda hægt að slá barn mjög
fast með hendinni,“ segir Halldóra og
leggur áherslu á að foreldrar fái fræðslu
um afleiðingar líkamslegs ofbeldis.
Kannski má segja að ljósið í myrkrinu
í þessari umræðu sé sú staðreynd að
dæmi eru um að fólk hafi sjálft samband
við Barnaverndarnefnd. „Fólk hringir
til okkar, segist vera að gefast upp, er
hrætt við að meiða börnin sín og vill
hjálp,“ segir Halldóra. Í slíkum tilfellum
er fólki bent á að hringja í 112 og fá sam-
band við barnavernd.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Við Viljum Vita
möguleg innganga Íslands Í
eVrópusambandið snýst um hagsmuni
almennings – um lÍfskjör – um framtÍð.
klárum Viðræðurnar og sjáum
samninginn.
jaisland.is
Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t
KjúKlingamáltíð fyrir 4
Grillaður kjúklingur – heill
Franskar kartöflur – 500 g
Kjúklingasósa – heit, 150 g
Coke – 2 lítrar*
*Coca-Cola, Coke Light
eða Coke Zero
1990,-
Verð aðeins
+ 1 flaska af
2 L
PÁSKATILBOÐ
Er frá Þýskalandi
www.grillbudin.is
Hannað fyrir
Ísland
ÞETTA ER AÐEINS BROT
AF ÞEIM VÖRUM SEM
ERU Á TILBOÐI
Yfir 10 ára
reynsla á
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
FULLT VERÐ
109.900
89.900
Íslandi
13,2
kw/h
Lokað skírdag
Opið laugardag til kl. 16
Í hatrömmum for-
sjárdeilum kemur
líka fyrir að fólk
reynir að rífa börn
frá hvort öðru,
bókstaflega.
BArnAvernd líkAmlegt ofBeldi gegn ungum Börnum
Koma með marbletti
í leikskólann
Líkamlegt ofbeldi gegn ungum börnum er vissulega til staðar í samfélaginu þó að umræðan um
það hafi ekki farið hátt. Í alvarlegustu tilfellunum eru þau beinbrotin eftir að hafa verið misþyrmt
af sínum nánustu. Sumir leita sér sjálfir aðstoðar af ótta við að meiða börnin sín.
Halldóra Dröfn
Gunnarsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Barnaverndar
Reykjavíkur.
Starfsfólk leikskóla og nágrannar eru yfirleitt þeir sem tilkynna um líkamlegt ofbeldi gegn yngstu börnunum.
Ljósmynd/Nordic photos/Getty
Líkamlegt ofbeldi gegn börnum undir 6 ára
Tilkynningar til Barnaverndar Reykjavíkur
Ár Fjöldi barna Fjöldi tilkynninga
2008 23 24
2009 43 48
2010 28 34
2011 38 44
2012 27 29
Fjöldi tilkynninga eftir aldri barna
Árið 2012
Aldur 0 1 2 3 4 5 ára
Fjöldi 1 2 6 5 4 9
6 fréttir Helgin 5.-7. apríl 2013