Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.04.2013, Qupperneq 20

Fréttatíminn - 05.04.2013, Qupperneq 20
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@fretta- timinn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfu- stjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. F Fyrir réttu ári síðan skrifaði ég úttekt á stöðu for- manna flokkanna þar sem fram kom að eini for- maðurinn sem sátt ríkti um innan flokks hans var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Fram- sóknarflokksins. Sá hinn sami og virðist standa með pálmann í höndunum ef marka má niðurstöður skoðanakannana undanfarnar vikur. Strax fyrir ári voru miklar efasemdir um að Jóhönnu Sigurðardóttur tækist að leiða flokk sinn farsællega inn í kosningabaráttuna þó svo að ákveðin sátt hefði ríkt um hana innan flokksins fram að því. Hún tók við for- ystu flokksins með litlum fyrirvara á erfiðum tímum og sinnti vanþakklátu starfi með stolti og reisn. Stuðnings- fólk Árna Páls Árnasonar gagn- rýndi ákvörðun hennar um áramótin 2011-12 þegar hún lét hann víkja úr ráðherrastóli og taldi ástæðu til að flýta væntanlegum formannsskiptum svo nýr formaður mætti setja mark sitt á pólitíkina áður en kosningabaráttan hæfist. Sá hópur lét í minni pokann og var ekki kosið um nýjan formann fyrr en í janúarlok, of seint að margra mati, enda hefur það komið í ljós að nýjum formanni hefur ekki tekist að auka fylgi flokksins frá því að hann tók við. Innan raða Vinstri-grænna var fyrir ári lítil en hávær klíka fólks sem var ósátt við forystu Stein- gríms J. Sigfússonar. Minnkandi fylgi flokksins og æ háværari gangrýnisraddir urðu til þess að í febrúarlok tilkynnti hann um að hann gæfi ekki kost á sér í formannsstól að nýju. Við tók Katrín Jak- obsdóttir sem hefur, líkt og Árna Páli, ekki tekist að hífa upp fylgið. Sjálfstæðisflokkurinn er þriðji af fjórflokknum sem er í miklum vandræðum með að fá kjósendur til liðs við sig. Aðkoma Bjarna Benediktssonar að Vafningsmálinu hefur reynst honum erfiður ljár í þúfu og niðurstaða landsfundarins í febrúar í ýmsum málefnum stuðaði marga. Stöðug umræða í fjölmiðlum frá árinu 2009 um aðkomu Bjarna að þessu vafasama máli og hörð gagnrýni sam- flokksmanna hans sem og pólitískra andstæðinga varð samt sem áður ekki til þess að Hönnu Birnu Kristjánsdóttur tækist að fella hann í formannsslag í nóvember árið 2011, né heldur ákvað hún að fara gegn honum á landsfundinum nú. Of seint þykir að grípa til róttækra aðgerða nú þó svo að fáeinir hafi viðrað þær hugmyndir að Bjarni víki nú þegar og Hanna Birna taki við. Einn helsti styrkleiki Sjálfstæðisflokksins í gegn- um tíðina er sú innbyrðis samstaða sem flokksmenn hafa alltaf getað talað sig inn á. Þeim er eiginlegt að fylgja formanni sínum og stefnu hans, nánast gagn- rýnislaust. Þó svo að andstæðingar Bjarna hafi eftir formannssigurinn 2011 reynt að tala sig inn á að styðja hann hefur það ekki gerst. Þeir sem studdu hans í formannsslagnum sjá nú að ef til vill var það ekki það besta fyrir flokkinn, að kjósa Bjarna áfram. Sú mistök séu hins vegar dýru verði keypt og verði ekki aftur tekin. Þau kjörorð sem flokkurinn ætlaði að nýta innbyrðis í kosningabaráttuna, „sam- staða er lykillinn að árangri“ hafa dugað skammt. Enda samstaðan ekki til staðar - sem sést ekki síst í klofningnum sem orðið hefur innan flokksins í stórum málum á borð við aðildarviðræður. Sigmundur Davíð sigraði sterka frambjóðendur í baráttu um formannssætið árið 2009 eftir mikla óróatíma innan Framsóknarflokksins og uppgjör. Inn kom nýtt fólk og með þeim nýjar áherslur. Sigmundur hefur fært flokkinn til í afdrifaríkum málum á borð við afstöðu til Evrópusambandsað- ildar sem hann er nú andsnúinn og uppskar aðdáun langt út fyrir flokksraðir fyrir einurð sína í IceSave málinu þegar dómur féll Íslendingum í vil. Sigmundi Davíð hefur tekist það sem öðrum formönnum hefur mistekist: að skapa sátt um for- mennsku sína og mynda innbyrðis samstöðu í flokknum. Það er að skila sér í auknu fylgi þótt aðr- ar ástæður spili þar að sjálfsögðu einnig inn í, svo sem aðlaðandi kosningaloforð sem eru að ná í gegn. Of seint er að skipta um hest úti í miðri á Gömlu formennirnir viku of seint Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Margt er líkt með skyldum Jafnvægisleysið sem birtist í yfir- lýsingum og fari þessa nýja leiðtoga gera það að verkum að menn verða að vera við öllu búnir. Össuri Skarphéðinssyni, utan- ríkisráðherra, stendur ekki á sama um belginginn í Kim Jong- un, einræðisherra í Norður- Kóreu, sem hótar nú öllu illu og virðist ekki síður klikkaður en afi hans og faðir. Fannst hann suður í Borgarfirði? Nú er botninum náð. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðis flokksins, stappaði stálinu í sitt fólk í tölvupósti þar sem hann huggaði flokksfólk með því að neðar verði ekki komist. Og þá liggur eðli málsins samkvæmt allt upp á við. Vélin höktir Þetta er einhvern veginn ekki að gera sig, hvað svo sem mönnum finnst um Bjarna. Hann er ágætur, en þetta er bara ekki að virka. Guðjón Magnússon, formaður stjórnar Sjálfstæðisfélags Mosfellinga, er órólegur yfir gengi flokks síns í skoðanakönnunum en hefur vonandi róast við tölvuskeyti formannsins. Góð ferð! Er komin til NYC og allt gekk dásamlega vel. Lenti ekki í neinum vand- ræðum. Þetta verða magnaðir dagar. Þingkonan Birgitta Jónsdóttir er komin klakklaust til Bandaríkjanna en hún hafði búið fólk undir að hún yrði jafnvel tekin höndum á flugvellinum. Það taldi Ástþór líka Við teljum að RÚV sé að mis- nota aðstöðu sína fyrir fjór- flokkinn. Pétur Gunnlaugsson, formaður Flokks heimilanna, er fúll yfir að flokkurinn hafi ekki fengið inni í framboðsþáttum Ríkissjónvarpsins. Þó hlýtur að vera huggun harmi gegn að hann ræður því sem hann vill ráða á Útvarpi Sögu.  Vikan sem Var www.kia.com ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. Þú finnur „Kia Motors Ísland“ á Facebook H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 3- 03 67 Kia Rio 1,1 dísil, sex gíra, eyðir frá 3,6 lítrum á hundraðið í blönduðum akstri. Magn CO2 í útblæstri er mjög lítið eða aðeins 94 g/km og fær hann því frítt í stæði í Reykjavík í 90 mínútur í senn. Einnig fáanlegur sjálfskiptur með bensínvél. Eigum bíla til afgreiðslu strax! Komdu og reynsluaktu. Verð frá 2.660.777 kr. Rio 1,1 dísil *M.v. 50% útborgun eða uppítökubíl að sambærilegu verðmæti og grænan bílasamning ERGO í 84 mánuði. 9,7% óverðtryggðir vextir. Árleg hlutfallstala kostnaðar 10,72%. Aðeins 22.777 kr. á mánuði í 84 mánuði* Kaupau ki: Vetrar - dekkEinn sparneytnasti bíll í heimi! 7 ára ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum. 20 viðhorf Helgin 5.-7. apríl 2013
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.