Fréttatíminn - 05.04.2013, Blaðsíða 32
V erkefnið Heimsins konur á Íslandi miðar að því að gera framlag kvenna af erlendum
uppruna til íslenskrar menningar
og samfélagsins sýnilegt. Að verk-
efninu standa þær Kristín Rannveig
Vilhjálmsdóttir, Ania Wozniczka,
Kristín Viðarsdóttir og Letetia B.
Jónsson í samvinnu við Söguhring
kvenna, sem er samstarfsverkefni
Borgarbókasafns Reykjavíkur
og Samtaka kvenna af erlendum
uppruna. Þær stöllur leita nú til al-
mennings og vinnustaða um allt
land eftir ábendingum um hugsan-
lega viðmælendur, 18 ára eða eldri.
Hægt er að senda inn ábendingar
fram til 26. apríl næstkomandi í
gegnum heimasíðu Borgarbóka-
safns, www.borgarbokasafn.is, en
á síðunni er sérstakur hnappur
fyrir ábendingar. Áætlað er að
bókin komi út vorið 2014 og stefna
aðstandendur hennar að opnun
vefsíðu og ljósmyndasýningar við
það tilefni.
Verkefnið hefur hlotið stuðning
frá Mannréttindaskrifstofu Reykja-
víkur, Hlaðvarpanum og Reykjavík
Bókmenntaborg UNESCO.
Styrkja fjölmenningu á Íslandi
Aðstandendur bókarinnar telja
framlag þeirra fjölmörgu kvenna
sem hafa af ýmsum ástæðum kosið
að gera Ísland að heimili sínu vera
ómetanlegt og að búseta þeirra á
Íslandi auðgi íslenska menningu og
samfélag, ásamt því að opna augu
fólks fyrir ólíkum hugsunarhætti
og menningu og skapa þannig nýja
möguleika. Með því að gera fram-
lag þessara kvenna sýnilegt og
fagna því vilja þær styrkja fjölmenn-
ingu á Íslandi sem og sjálfsmynd
kvenna af erlendum uppruna, enda
hafi framlag þeirra ekki alltaf verið
metið sem skyldi.
Hugmyndin að gerð bókarinnar
vaknaði þegar Söguhringur kvenna
var settur á stofn í Borgarbókasafn-
inu fyrir fimm árum en markmið
hans er að skapa vettvang fyrir
Voltaren 11,6 mg/g, hlaup. Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar:
Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af
hlaupi borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun,
nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi
skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn
ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi
fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum
(NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum
asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið.
Síðustu 3 mánuðir meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri.
Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir eða
augu. Getur valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi
lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar
hjá öldruðum eða astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð
ef útbrot koma fram eftir notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á almennum
aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði
við lækni. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem
börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á
Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
Fæst án lyfseðils
Verkjastillandi
bólgueyðandi
ÁNÆGJA
EÐA END
URGREIÐSLA!
Gildir frá 1. apríl - 30. júní 2013
Fjársjóður í reynslusögum
kvenna af erlendum uppruna
„Það eru margar staðalímyndir í samfélaginu, bæði um fólk af erlendum uppruna og þar með
líka um konur af erlendum uppruna og okkur finnst þetta bara mjög gott tækifæri til að skapa
umræðu,“ segir Kristín Rannveig Vilhjálmsdóttir, ein þeirra fjögurra kvenna sem vinna nú að gerð
viðtalsbókar við konur af erlendum uppruna sem ber vinnuheitið Heimsins konur á Íslandi.
Kristín Viðarsdóttir, Kristín Rannveig Vilhjálmsdóttir og Ania Wozniczka vinna nú að gerð viðtalsbókar við konur af erlendum
uppruna á Íslandi. Ljósmynd/Hari
konur til að deila menningarlegum
bakgrunni sínum með öðrum.
„Maður sá að það mættu á bóka-
safnið konur af ýmsum uppruna og
það var svo mikill fjársjóður hérna
í hvert einasta skipti sem maður
fékk svona smá brot af lífsreynslu
og sögu þeirra kvenna sem mættu.
Svo maður var alltaf að spá í að skrá
og hvernig það væri nú hægt. Líka
til þess að fá aðra til að fá innsýn í líf
þessara heimskvenna, eins og við
köllum þær,“ segir Kristín Rann-
veig sem er verkefnastjóri fjölmenn-
ingar hjá Borgarbókasafni og um-
sjónarmaður Söguhringsins. Í fyrra
bættist svo Letetia B. Jónsson í hóp
aðstandenda bókarinnar og þá fóru
hjólin að snúast.
Dætur tilnefna mæður sínar
„Okkur finnst fallegt að sjá að dætur
séu að tilnefna mæður sínar og að
nágrannar sendi inn tilnefningar.
Það er einnig von okkar að ein-
hverjar þeirra kvenna sem komu
hingað fyrst verði tilnefndar af að-
standendum. Það er mikilvægt að
líta á komur og framlag erlendra
kvenna til Íslands í sögulegu ljósi,“
segir Ania.
Kristín Rannveig segir að þó mik-
ilvægt sé að gera framlag kvenna
af erlendum uppruna sýnilegt þá sé
ekki síður mikilvægt skapa umræðu
í samfélaginu og því mikilvægt að
virkja samfélagið til að tilnefna.
Það skapi líka athygli og fólk fari að
tala saman um hugsanlega viðmæl-
endur. Að sögn Aniu er alltaf hægt
að gera framlag erlendra kvenna á
Íslandi sýnilegra og hún vonar að út-
gáfa bókarinnar sé aðeins byrjunin.
„Við fáum nú þegar góð viðbrögð,
bæði frá Íslendingum og erlendu
fólki hér,“ segir Ania og ítrekar mik-
ilvægi þess að Íslendingar tilnefni
konur til viðtals í bókina. „Frekar
að tilnefna en ekki,“ sagði Kristín
Rannveig að lokum í léttum dúr.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Okkur finnst
fallegt að sjá
að dætur séu
að tilnefna
mæður sínar og
að nágrannar
sendi inn til-
nefningar. Það
er einnig von
okkar að ein-
hverjar þeirra
kvenna sem
komu hingað
fyrst verði
tilnefndar af
aðstandendum.
Það er mikil-
vægt að líta á
komur og fram-
lag erlendra
kenna til Ís-
lands í sögu-
legu ljósi.
32 viðtal Helgin 5.-7. apríl 2013