Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.04.2013, Side 50

Fréttatíminn - 05.04.2013, Side 50
50 skák og bridge Helgin 5.-7. apríl 2013  Áskorendamót UngUr norðmaðUr gæti orðið heimsmeistari Carlsen nálgast krúnuna! Áskorendamótið í skák var gríðarlega spennandi og skemmtilegt - 22 ára Norð- maður, Magnus Carlsen, gæti orðið næsti heimsmeistari en hann teflir við Vishy Anand um heimsmeistaratitilinn síðar á árinu. n orski snillingurinn Magnus Carlsen stóð uppi sigurveg-ari á æsispennandi áskor- endamóti sem lauk í vikunni, og mun því tefla við Vishy Anand um heimsmeistaratitilinn síðar á árinu. Á mótinu í Lundúnum mættust átta ofurstórmeistarar og tefldu tvöfalda umferð. Áður en mótið hófst, var sagt í þessum dálki að það væri skrifað í stjörnurnar að Carlsen færi með sigur af hólmi – en tæpara gat það varla orðið. Carlsen byrjaði vel en lengi framan af fylgdi Lev Aronian honum eins og skugginn. Eftir sjö umferðir af 14 voru þeir efstir og jafnir með 5 vinninga og voru komnir með dágott forskot á keppinauta sína. Rússneski björninn vaknaði af dvala Seinni hálfleikurinn varð hinsveg- ar ævintýralegur. Aronian missti flugið og tapaði gegn Boris Gelf- and frá Ísrael og Rússunum Vla- dimir Kramnik og Peter Svidler. Og okkar norski frændi lenti líka í hremmingum – þurfti að berjast fyrir jafntefli oftar en einu sinni og tapaði fyrir Ivanchuk. Kramnik sýndi hinsvegar allar sínar bestu hliðar í seinni hálf- leiknum. Eftir að hafa gert jafntefli í sjö fyrstu umferðunum(!) var líkt og rússneski björninn vaknaði úr dvala. Kramnik, sem um aldamótin náði heimsmeistaratitlinum af sjálf- um Kasparov, ætlaði greinilega að standa við stóru orðin og endur- heimta krúnuna af Anand. Fyrir síðustu umferðina voru Carlsen og Kramnik efstir og jafn- ir með 8,5 vinning af 13. Kram- nik mátti kljást við Ivanchuk með svörtu, en Carlsen hafði hvítt gegn Svidler. Þegar hér var komið sögu var áhuginn slíkur að vefsíður sem sendu út beint hrundu hver á fæt- ur annarri, meðal annars vefsíða Verdens gang, sem er vinsælasta fréttasíða Noregs. Örlagavaldurinn Ivanchuk Carlsen sem er annálaður fyrir stáltaugar lenti snemma í bullandi tímahraki gegn Svidler. Eftir 29. leik sinn átti hann aðeins eftir 1 mínútu og 20 sekúndur til að klára 11 leiki! Hann náði tímamörkun- um, en þá var staða hans í rúst og draumurinn um heimsmeistaratign virtist að engu orðinn. Kramnik dugði nú jafntefli gegn Ivanchuk til að sigra á mótinu. Iv- anchuk er mistækur snillingur með viðkvæmt taugakerfi, en í skákinni gegn Kramnik sýndi hann allar sín- ar bestu hliðar, saumaði að honum jafnt og þétt, og sigraði í 47 leikjum. Carlsen og Kramnik urðu þannig jafnir að vinningum, en sigurinn féll í hlut Norðmannsins þar sem hann vann fimm skákir á mótinu en Kramnik fjórar. Lokatölur í Lund- únum: 1.-2. sæti: Kramnik og Carl- sen 8,5 vinningar. 3.-4. sæti: Svidler og Aronian 8 v. 5.-6. sæti: Gelfand og Grischuk 6,5 v. 7. sæti: Ivanchuk 6 v. 8. sæti: Radjabov 4. v. skákþRautIn Svartur mátar í 3 leikjum! Hér er sótt á báða bóga. Burt hafði svart gegn Riley og fann þrumuleik til að gera út um taflið. Sveit Lögfræðistofu Íslands virðist vera að ná öruggri forystu í aðal- sveitakeppni Bridgefélags Reykjavík- ur. Eftir 10 umferðir af 12 og spiluð 5 kvöld af 6 er sveitin með 20 stiga for- ystu á næstu sveit. Verður að teljast líklegt að sveit Lögfræðistofunnar nái því að verða sigurvegari í aðalsveita- keppni Bridgefélags Reykjavíkur. Staða efstu sveita í aðalsveitakeppni Bridge- félags Reykjavíkur er nú þannig: 1. Lögfræðistofa Íslands ................................. 206 2. Málning ......................................................... 186 3. Garðs apótek ................................................ 174 4. Karl Sigurhjartarson ................................... 173 5. Grant Thornton ............................................ 167 6. Chile .............................................................. 162 Jöfn keppni er um bötlerárangur spilara eða árangur þeirra reiknaður við borðið. Staða efstu manna í þeirri keppni er nú þannig: Nafn ................................................spilaðir leikir skor 1.Hermann Friðriksson ...................................4 1,14 2.Aðalsteinn Jörgensen-Bjarni Einarsson .....8 1,11 3.Stefán Jóhannsson-Kjartan Ásmundsson ..8 1,06 4.Sævar Þorbjörnsson ....................................6 0,80 5.Helgi Sigurðsson ...........................................8 0,78 Fjörug spil voru á síðasta spilakvöldi félags- ins. Mikil skipting spila var í spili 7 í níundu umferð. Slemma í spaða stendur á AV hend- urnar, þó að vörnin geti tekið einn slag á tígul. Allir sagnhafanna fengu hins vegar 13 slagi, sem voru í boði eftir hjartaútspil. En það reyndist hins vegar pörunum í AV erfitt að ná að segja sig í spaða slemmu, suður var gjafari og allir á hættu: Blönk laufadrottning austurs er gulls ígildi þó hennar sé varla þörf í þægilegri laufalegu og háspil vantar í spaðann þó að enginn tapslagur sé þar. Spilið var spilað á 16 borðum og spaðaslemma náðist „aðeins“ á 4 þeirra. Á 11 borðum var samningurinn 4 spaðar og eitt par í AV lenti í því „slysi“ að spila þrjá spaða og vinna sjö. Ef suður opnar á einu hjarta, virðist sem vestur geti notað sagnvenju sem kölluð er „Michaels“ og sagt 2 hjörtu. Hún lofar að minnsta kosti 5 spöðum og 5 í öðrum hvorum láglitanna. Sumir spilara nota Michaels-sagnvenjuna sem veika eða sterka hönd. Austur á ekki mikil spil en hann á 5 spaða og með stökki í 4 spaða myndi hann leggja grundvöllinn fyrir spaðaslemmu. Það kemur austri að miklu gagni ef vestur kýs þá að melda fyrirstöðu með 5 hjarta sögn og slemmuáhuga með þeirri sögn. Vestur getur líka einfaldlega látið bara vaða í spaðaslemmu ef austur gefur stökksögn í 4 spaða. Gunnlaugur Karlsson og Kjartan Ingvarsson í sveit Sölufélags garðyrkjumanna þurftu að glíma við fjögurra hjarta opnun suðurs. Gunnlaugur var með spil vesturs, doblaði og náði slemmu í spaða eftir fjögurra spaðasögn Kjartans. Íslandsmót í tvímenningi Íslandsmótið í tvímenning verður haldið dagana 13.-14.apríl næstkomandi. Spilað verður í húsnæði Bridgesambands Íslands að Síðumúla 37. Íslandsmeistarar frá 2012 eru Páll Þórsson og Stefán Stefánsson. Mótsgjald er 10 þús. á parið.  bridge aðalsveitakeppni bridgefélags reykjavíkUr Sveit Lögfræðistofu Íslands með góða forystu Lausn: 1 Dxa2+!! 2.Kxa2 Ha4+ 3.Kb1 Ha1 mát. Einvígi Anands og Carlsens er mikið tilhlökkunarefni – indverski tígurinn hefur verið full friðsamur síðustu miss- erin, en hann er sýnd veiði en ekki gefin. Carlsen. Teflir um heimsmeistaratitilinn við Anand. Kramnik. Missti naumlega af sigri í Lundúnum. Landmark leiðir þig heim! * Starfsemi Landmark byggir á öflugum mannauði sem veitir afburðaþjónustu! Okkur er sönn ánægja að sjá um þín fasteignaviðskipti – þú hringir við seljum! 100% þjónusta = árangur* Sími 512 4900 landmark.is Magnús Einarsson Löggiltur fasteignasali Sími 897 8266 Sigurður Samúelsson Löggiltur fasteignasali Sími 896 2312 Sveinn Eyland Löggiltur fasteignasali Sími 690 0820 Íris Hall Löggiltur fasteignasali Þórarinn Thorarensen Sölustjóri Sími 770 0309 Kristberg Snjólfsson Sölufulltrúi Sími 892 1931 Eggert Maríuson Sölufulltrúi Sími 690 1472 Haraldur Ómarsson sölufulltrúi sími 845 8286 Sigurður Fannar Guðmundsson Sölufulltrúi Sími 897 5930 ♠G2 ♥853 ♦D10842 ♣972 ♠D ♥ÁKDG109 ♦Á63 ♣1062 ♠ K9873 ♥ - ♦ K9 ♣ ÁKG853 ♠ Á10654 ♥ 7642 ♦ G75 ♣ D n s V a Gunnlaugur karlsson og kjartan Ingvarsson úr sveit Sölufélags garðyrkjumanna spila gegn Jóni Bjarka stefánssyni og Bergi Reynissyni í sveit Seldalsbræðra.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.