Fréttatíminn - 04.10.2013, Blaðsíða 84
lifandi lífsstíll 2. árgangur 2. tölublað október 2013 4
Lífræn kryddlína
Yggdrasill heildsala | www.yggdrasill.is
• 1 vistvænt egg
• 1 msk chia-mjöl frá NOW
• 1/2 tsk. Pizzakrydd frá
Himneskri hollustu
• 1/4 tsk. hvítlauksduft
Smurðu kökurnar með rjómaosti.
Veldu þitt uppáhalds meðlæti,
t.d. avocado, tómata, kál og
kjúklingabita og toppaðu með
36% sýrðum rjóma.
Flatbrauð/tortilla með eggja-
hvítu – aðeins þykkari tortillur
• 3 eggjahvítur úr vistvænum
eggjum
• 1 msk. chia-mjöl eða möluð
chia-fræ frá NOW
• 1 tsk. husk-trefjar frá NOW
• 1/4 tsk. vínsteinslyftiduft
• 1/2 tsk. Pizzakrydd frá
Himneskri hollustu
• 1/4 tsk. hvítlauksduft
Þeyta með töfrasprota eða písk,
þynna með vatni ef þarf. Deigið
er svo steikt á heitri pönnu í
stuttan tíma þar til brauðið
er tilbúið.
Basilíka
Basilíka hefur verið notuð
við magakrampa, uppsölu,
hita, kvefi, inflúensu, hósta,
tíðarverkjum og til að draga úr
magasýru. Sem áburður hefur
hún verið talin nýtileg við flugna-
biti, olía úr jurtinni hefur m.a.
verið notuð í ilmvötn og til að
draga úr höfuðverk.
• Klassískt í ítalska matargerð,
s.s. tómat- og pastarétti og á
pítsuna.
• Gott í grænmetisrétti, súpur,
salöt, kryddsmjör, paté,
hrísgrjóna-, fisk-, lamba-,
kálfakjöts- og kjúklingarétti.
Sædögg / Rosemary
Áður fyrr var keimur af sædögg
tákn vináttu og kærleika. Hún
hefur gjarnan verið notuð í
fegurðarskyni, fyrir hár og til
að viðhalda ferskleika húðar.
Þá hefur hún verið talin góð
við mígreni, magakveisu,
bakteríudrepandi og örvandi
fyrir blóðrásina.
• Á einkar vel við á lambakjötið
en góð með öllu kjöti og hvers
kyns villibráð.
• Einnig viðeigandi á skelfisk,
í kjötsúpur, stráð á steikt egg
eða grillaðan fisk, í eggja-,
grænmetis-, pasta-
og spagettírétti.
• Gefur skemmtilegt bragð í
brauðbakstri.
Kóríander
Sætur ilmur kóríander er með
örlitlum sítrónu/appelsínukeim.
Notkun þess í matreiðslu og
til lækninga má rekja aftur um
árþúsundir á Indlandi og í Kína.
Ríkt af C-vítamíni, er talið gott
fyrir meltinguna og hreinsandi
fyrir líkamann.
• Á mjög vel við með nautakjöti
og villibráð, algengt í ostarétti,
súpur, sósur, grænmetis- og
fiskrétti.
• Víðast hvar talið ómissandi
í karrýblöndur og er ein
algengasta kryddjurtin í
mexíkóskri og austurlenskri
matargerð.
• Einnig gott í sæta ábætisrétti.
Engifer
Eitt elsta og þekktasta krydd
mannkynsins og hefur verið
notað sem krydd og lyf í
þúsundir ára. Hefur meðal
annars verið talið gott við flensu
og kvefi, til að örva og bæta
meltingu, slá á bólgur og lina
verki.
• Vinsælt í austurlenskri,
arabískri og norður-afrískri
matargerð, s.s. í súpur, sósur,
grænmetis-, kartöflu-, fisk-
og kjötrétti.
• Einnig upplagt í bakstur,
s.s. brauð, kökur og sæta
ábætisrétti.
Einstaklega fersk kryddlína frá Himneskri Hollustu
Uppskrift:
Lágkolvetna
tortilla-brauð
Sögur af kryddi