Fréttatíminn - 08.06.2012, Page 4
GRILL OG GARÐHÚSGÖGN SEM ENDAST
YFIR 40 GERÐIR
GRILLA Í BOÐI
LANDMANN
eru frábær grill
fyrir íslenskar
aðstæður
44.900
Opið til kl. 16 á laugardögum
12734
Smiðjuvegi 2, Kóp, S. 554 0400
Michelsen_255x50_F_1110.indd 1 02.11.10 10:07
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
A-lægur vindur, skúrir sunnAnlAnds
AnnArs léttskýjAð. svAlt eystrA.
HöfuðborgArsvæðið: AustAngolA og
skýjAð með köflum, en þurrt.
léttskýjAð um mest Allt lAnd. fremur Hlýtt,
einkum norðAnlAnds.
HöfuðborgArsvæðið: Hægviðri eðA HAfgolA og
nokkuð Hlýtt í sólinni.
kólnAr Heldur norðAntil og á vest-
fjörðum. Að mestu léttskýjAð.
HöfuðborgArsvæðið: A-golA, þurrt og
sólríkt.
tími garðaúðunar
þeir eru orðnir 11 dagar samfellt sem ekkert
hefur rignt í höfuðborginni og þó svo að
nokkrir dropar hafi e.t.v. komið úr lofti seint
á fimmtudag eða í dag föstudag er áfram
spáð meira og minna þurru veðri vel fram í
næstu viku. sólríkt verður heilt
yfir á landinu, en hitinn ræðst
að mestu af því hvort blæs af
hafi eða ekki. Þar stendur
vestanvert landið betur en
austurhlutinn því búist er við
A-átt, hægum vindi reyndar.
sunnanlands verða síðdegis-
skúrir líklegir á sunnudag.
12
11 11
7
11 14
15 16 10
14
14
10 10
8
13
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
s afnaráð braut gegn safna-lögum þegar Veiðisafninu á Stokkseyri og Safnasafninu
á Svalbarðsströnd var synjað um
styrki árið 2011. Menntamálaráðu-
neytið úrskurðaði um þetta eftir
stjórnsýslukæru frá Veiðisafninu.
Veiðisafnið hefur hlotið rekstrar-
styrk frá Safnaráði frá árinu 2004
en Safnaráð hefur meðal annars
því hlutverki að gegna að úthluta
styrkjum úr Safnasjóði til byggða-
og minjasafna, listasafna og nátt-
úruminjasafna. Árið 2011 sótti Veið-
safnið um styrk líkt og sjö ár áður
en fékk þá synjun. Rökstuðningur
Safnaráðs var að launakostnaður
á vegum safnsins nái ekki viðmið-
unarupphæð vegna rekstrarstyrkja.
Ekkert hafði þó breyst í rekstri
safnsins frá fyrri árum og óskaði
Páll Reynisson á Veiðisafninu eftir
rökstuðningi Safnaráðs fyrir höfn-
uninni. Hann vildi þó ekki tjá sig
um málið við Fréttatímann þegar
eftir því var leitað.
Í rökstuðningi Safnaráðs kom
fram að samkvæmt safnalögum
skuli forstöðumaður vera í minnst
50 prósenta starfi. Í lögunum segir
þó að taka skuli tillit til ólaunaðrar
vinnu og sjálfboðastarfs. Safnaráð
beitti sérstakri aðferð við útreikn-
inga rekstrarstyrks sem byggt er á
launakostnaði safns. Í tilfelli Veiði-
safnsins, og reyndar einnig Safna-
safnsins á Svalbarðsströnd, eru
forstöðumenn safnanna í sjálfboða-
starfi.
Forstöðumaður Safnasafnsins,
Níels Hafstein, fékk einnig synjun
á styrkumsókn á sömu forsendum
og Veiðisafnið. Hann sendi Safnar-
áði bréf þar sem hann taldi synj-
unina ekki standast jafnræðisreglu
stjórnarskrárinnar, samkeppnislög
eða ákvæði EES-samningsins. Úr-
skurður menntamálaráðuneytisins
vegna kæru Veiðisafnsins mun að
öllum líkindum einnig gilda fyrir
Safnasafnið, að sögn Níelsar.
Þrátt fyrir úrskurðinn hefur Safn-
aráð ekki greitt út styrki fyrir árið
2011, að sögn Níelsar. „Við erum
að bíða eftir útdeilingu á rekstrar-
styrkjum Safnaráðs sem vanalega
berst í mars. Hún hefur hins vegar
ekki borist enn en ég geri ráð fyrir
því að seinkunin stafi af úrskurði
ráðuneytisins þar sem fram kem-
ur að ekki hafi verið staðið rétt að
málum,“ segir Níels. „Samkvæmt
reiknilíkani Safnaráðs fengu þau
söfn sem náðu að greiða forstöðu-
manni laun að tiltekinni upphæð
1,5 milljón, þeir sem náðu því ekki
fengu milljón og þeir sem greiddu
engin laun fengu ekkert. Það hefur
verið mjög erfitt, rekstrarlega, fyrir
þau söfn sem hafa verið hýrudreg-
in,“ segir Níels.
Árið 2011 fékk eitt safnanna styrk
þótt það uppfyllti ekki þau skilyrði
sem Safnaráð tilgreinir í synjun
sinni á styrkumsókn Veiðisafnsins
en í rökstuðningi Safnaráðs segir
að ástæðan hafi verið sú að einung-
is vantaði 10 prósent upp á að lág-
markslaunakostnaður næðist.
Safnaráð mat starfshlutfall for-
stöðumanns út frá upplýsingum um
lágmarkslaun forstöðumanna hjá
Fræðagarði, félagi háskólamennt-
aðra um íslensk fræði. Í rökstuðn-
ingi Safnaráðs segir að aðferðin hafi
verið tekin upp árið 2008 og verið
innleidd síðastliðin fjögur ár í smá-
þrepum en afráðið hafi verið að árið
2011 hafi aðlögun verið lokið.
Í úrskurði menntamálaráðu-
neytisins kemur fram að Safnaráð
bresti heimild að lögum til að binda
rekstrarstyrk því skilyrði að launa-
kostnaður safnsins þurfi að ná við-
miðunarupphæð samkvæmt viðmið-
unartaxta frá Fræðagarði.
Margrét Hallgrímsdóttir for-
maður safnaráðs og þjóðminjavörð-
ur segir að fundað verði um málið
í næstu viku. „Ég er ekki endilega
sammála úrskurði ráðuneytisins í
öllum atriðum en að sjálfsögðu tök-
um við tillit til hans.Við förum yfir
öll gögn og tökum ákvörðun í næstu
viku um úthlutun og gerum það á
gagnsæjan og faglegan hátt, lögum
samkvæmt. Annað getum við ekki
sagt um málið.“
sigríður dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Safnaráð mismunar
söfnum í styrkveitingum
Safnaráð, sem úthlutar styrkjum úr safnasjóði til byggða- og minjasafna, listasafna og nátt-
úruminjasafna, hefur mismunað söfnum með úthlutun úr sjóðnum samkvæmt úrskurði mennta-
málaráðuneytisins.
Ísland BúFerlaFlutningar
margrét Hallgrímsdóttir formaður safnaráðs og þjóðminjavörður.
síminn skreppur saman á
farsímamarkaði
síminn hefur misst 6,5 prósentustig af markaðshlutdeild
sinni á farsímamarkaði á aðeins tveimur árum og þriðjung
alls frá árinu 2007 – árið sem Nova kom á markaði. Nú
skipta rétt rúm 39 prósent þeirra sem nota farsíma við
símann. góðærisárið 2007 voru 60 prósent farsímanotenda
hjá Símanum. Vodafone lætur einnig deigan síga. Þeir voru
með 31,5 prósent markaðshlutdeildar 2009 en eru nú með
tæp 29,5 prósent. Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans,
segir eftirlitsstofnanir hafa verið að meta símann sterkari
en hann sé á markaði. Keppinautarnir hafi notið jákvæðrar
mismununar sem verði að hluta aflétt í janúar á næsta ári.
„Við viljum einfaldlega fá að keppa af meiri krafti á þessum
markaði en okkur hefur verið heimilað.“ nova velgir öðrum
fyrirtækjum í þessum geira undir uggum. Ári frá opnun
mældist Nova með 8,2 prósenta hlutdeild og stendur nú í
tæplega 26 prósentum. - gag
6,5%
LæKKuN Á
mArkAðsHlut-
deild símAns
31. desember 2011
Skýrsla Póst- og
fjarskiptastofnunnar
sérstakur fær
bankamenn dæmda
Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi spari-
sjóðsstjóri, og Jón Þorsteinn Jónsson, fyrr-
verandi stjórnarformaður Byrs, voru í
gær dæmdir í fjögurra og hálfs árs
fangelsi í Hæstarétti. rétturinn
sneri þar með við dómi úr
héraði sem hafði sýknað þá og
Styrmi Bragason, fyrrverandi
forstjóra MP banka, en mál
hans var sent aftur í hérað.
Málið snýst um lán sem Byr veitti
exeter félaginu og var það nýtt til
kaupa á stofnfjárbréfum af MP banka og
stjórnendum Byrs á yfirverði.
þetta er annar þungur
dómur sem fellur á tiltölu-
lega skömmum tíma yfir
mönnum sem sýsluðu á
hlutabréfamarkaði en
Baldur Guðlaugsson
fyrrverandi ráðu-
neytisstjóra var
dæmdur í tveggja
ára fangelsi fyrir
innherjasvik og af-
plánar hann nú. - gag
4 fréttir Helgin 8.-10. júní 2012