Fréttatíminn - 08.06.2012, Blaðsíða 8
Gistinóttum
fjölgar
um fjórðung
Gistinóttum Íslendinga á
íslenskum hótelum í apríl
fækkaði um 8 prósent
milli ára samkvæmt upp-
lýsingum frá Hagstofu Ís-
lands. Á sama tíma fjölgaði
gistinóttum útlendinga hins
vegar um 17 prósent. Á fyrsta ársfjórðungi fjölgaði gistinóttum
um fjórðung miðað við sama tímabil í fyrra og voru um 430
þúsund. Gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 32 prósent
samanborið við fyrsta ársþriðjung árið 2011 en gistinóttum Ís-
lendinga hefur fjölgað um 10 prósent. Gistinóttum í apríl fjölgaði
á milli ára á höfuðborgarsvæðinu og Norðurlandi. Í öðrum lands-
hlutum fækkaði gistinóttum milli ára, mest á samanlögðu svæði
Vesturlands og Vestfjarða eða um tæpan fjórðung.
Engin bók um Annþór
Sena hefur ákveðið
að hætta við útgáfu
á ævisögu síbrota-
mannsins Annþórs
Kristjáns Karlssonar
sem fjölmiðlamaður-
inn Sölvi Tryggvason
hugðist skrifa.
Þetta var ákveðið
eftir að Annþór var ákærður fyrir stórhættulega
líkamsárás og frelsissviptingu fyrir skömmu. Auk
þess leikur grunur á að hann hafi átt þátt í dauða
eins fanga á Litla-Hrauni fyrir skömmu. „Það var
lagt upp með að hann væri á beinu brautinni en þá
fórum við að heyra að svo væri ekki. Við ræddum
við höfundinn og var það sameiginleg ákvörðun
að hætta við útgáfu,“ segir Jón Þór Eyjólfsson hjá
Senu, í samtali við Fréttatímann. -óhþ
Einar Boom
laus úr haldi
Einar Boom Marteinsson, fyrrver-
andi leiðtogi Hells Angels, er nú
laus úr haldi eftir rúmlega fimm
mánaða gæsluvarðhald. Einar
Ingi bíður dóms ásamt fjórum
öðrum vegna ákæru um
nauðgun og stórhættulega
líkamsárás á ungri stúlku í
Hafnarfirði undir lok síðasta
árs. Eftir því sem næst
verður komist mun dómur
verða kveðinn upp í málinu á
næstu tveimur vikum. Á meðan
Einar var í gæsluvarðhaldinu var
hann sviptur leiðtogastöðunni
hjá mótorhjólasamtökunum Hells
Angels. -óhþ
V ið ætlum okkur að byggja upp ís-lenska framleiðslu,“ segir Ágúst Þ. Eiríksson, eigandi Icewear. Fyrir-
tækið er í mikilli sókn en Icewear og Vík-
urprjón sameinuðust í mars síðastliðnum.
Fyrirtækið fagnaði fjörutíu ára afmæli í
liðnum mánuði en Drífa, eitt elsta ullar-
fyrirtæki landsins, var stofnað á Hvamms-
tanga árið 1972. Í upphafi sérhæfði fyrir-
tækið sig í að framleiða jakka og peysur
úr íslenskri ull, vann að því, er Ágúst
segir, fyrir Álfoss og Hildu á þeim tíma en
framleiðslan hefur þróast á liðnum árum
yfir alhliða útivistarlínu.
Ágúst segir að Icewear hafi hætt fram-
leiðslu á Íslandi árið 2003 og flutt þá starf-
semi til Kína og Litháen. Með kaupunum
á Víkurprjóni sé fyrirtækið aftur komið
í framleiðslu hérlendis. Í Vík í Mýrdal
er fyrirtækið með 18 manns í vinnu, en
þar eru framleiddar peysur, sokkar og
fleira. Víkurprjón er annars vegar prjóna-
stofa þar sem vélprjónaðar eru peysur,
sokkar og fleira. Þar er einnig saumastofa
auk þess sem stór verslun er á staðnum,
einkum fyrir ferðamenn. Þá hefur Vík-
urprjón keypt handprjónaðar peysur af
íslenskum handprjónakonum en um 130
konur um land allt koma með handprjón-
aðar peysur og selja í verslunum Icewear
sem eru þrjár; í Bankastræti og Suður-
hrauni, auk fyrrnefndrar verslunar í Vík,
„alvöru handprjónaðar íslenskar peysur,“
segir Ágúst.
„Við erum síðan að bæta við nýrri
saumastofu á Suðurnesjum, í Ásbrú á
Keflavíkurvelli. Þar verða til um tíu árs-
verk. Við höfum fulla trú á því að það sé
hentugt að framleiða á Íslandi, ásamt því
að framleiða ytra. Við höfum áhuga á að
byggja upp iðnað hér, fyrirtækið hefur
vaxið og dafnað enda eru flestar verslanir
hér með okkar vöru,“ segir Ágúst. Hann
bætir því við að starfsmannafjöldi Icewear
í heild nálgist nú fimmtíu manns.
Mikið er lagt upp úr því að hönnuðir
fyrirtækisins hanni glæsilegan fatnað úr
nýstárlegum efnum og fylgi tískustraum-
um. Verði er stillt í hóf svo allir ættu að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Fyrirtækið er enn fremur með viða-
mikla starfsemi í Noreg. „Við eigum vöru-
merkið Norwear og okkar vörum er dreift
um allan Noreg, í á annað hundrað versl-
anir, meðal annars á flugvöllinn,“ segir
Ágúst.
Ágúst hefur langa reynslu í þessum
rekstri, eða frá árinu 1984. Fyrirtæki
hans sameinaðist Drífu árið 1993. „Þetta
gengur mjög vel,“ segir hann, „fyrirtækið
hefur vaxið og við höfum ákveðið að efla
íslenska framleiðslu. Viðskiptavinir okkar
eru jafnt innlendir sem erlendir.“ -jh
Icewear Fjörutíu ára aFmælI Fagnað
Við
höfum
áhuga á
að byggja
upp
iðnað hér.
Ætlum okkur að byggja upp íslenska framleiðslu
Með kaupum
Icewear á
Víkurpr-
jóni nýverið
er stefnan
sett á aukna
innlenda
framleiðslu.
Prjóna- og
saumastofa er
í Vík í Mýrdal
og bætt
verður við
nýrri sauma-
stofu á Suður-
nesjum.
Ágúst Þ.
Eiríksson, eig-
andi Icewear.
Með sam-
einingunni við
Víkurprjón var
stefnan sett á
að efla íslenska
framleiðslu.
Ljósmynd Hari
Meðaleyðsla aðeins
3,8 lítrar á hverja 100 km**
www.volkswagen.is
Sparnaðarráð
frá Þýskalandi
Volkswagen Golf BlueMotion
Komdu og reynsluaktu Volkswagen Golf
** Miðað við blandaðan akstur á beinskiptum
Volkswagen Golf BlueMotion 1.6
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d:
1
8”
á
lfe
lg
ur
Golf kostar aðeins frá
3.390.000 kr.
Sigurvegari
í sparakstri *
* Volkswagen Golf var sigurvegari í árlegri sparaksturskeppni Atlantsolíu 2012, í flokki dísilbíla 1.4-1.6 cc.
Íslendingar í úrslitum
tölvuleikjakeppni
Radiant, hópur tölvunarfræðinemenda í
Háskólanum í Reykjavík, er kominn í tíu liða
úrslit Imagine-keppninnar sem haldin er
af Microsoft er sú stærsta sinnar tegundar
heiminum. Nemendurnur hafa hannað
tölvuleikinn Robert́ s Quest um orkunotkun
og umhverfismál en í keppninni leggja
tölvunarfræðinemar hvaðanæva að úr heim-
inum fram hugmyndir sínar, en samkvæmt
forskrift keppninnar eiga liðin að nota tækni-
lausnir til að takast á við þau stóru vandamál
sem að heiminum steðja. Í hópnum eru
Axel Örn Sigurðsson, Guðmundur Valur
Viðarsson, Haukur Steinn Logason og Sveinn
Fannar Kristjánsson. -óhþ
8 fréttir Helgin 8.-10. júní 2012