Fréttatíminn - 08.06.2012, Blaðsíða 41
19,1
prósent var aukning í
fasteignaviðskiptum á milli
maí á þessu ári og maí í fyrra.
211,5
Vikan í tölum
milljónir er heildarupphæðin sem fram-
bjóðendurnir sex til forseta mega verja til
framboðsmála.
Hagsmunahópar deila um
kvótann
Tugir fiskiskipa voru í Reykjavíkurhöfn
vegna samstöðufundar útgerðarmanna
sem fram fór á Austurvelli. Á sama stað á
sama tíma mættu þeir sem mótmæla vildu
framgöngu útgerðarmanna.
Sakaði þingmann um ölvun
Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri
grænna, sakaði Jón Gunnarsson, þingmann
Sjálfstæðisflokksins, í ræðustóli Alþingis
um að vera drukkinn. Hann dró ummæli sín
til baka og baðst afsökunar.
Einar Örn gagnrýndur
Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi
Besta flokksins, hlaut gagnrýni fyrir að
hafa þegið boðsferð flugfélagsins WOW til
Parísar. Einar Örn sagðist ekki hafa farið
sem borgarfulltrúi heldur einstaklingur.
FOKK YOU LÍÚ var
sennilega slagorð
dagsins í mótmælum
sjómanna gegn nýjum
fiskveiðistjórnunar-
frumvörpum sem
ríkisstjórnin stefnir að
því að koma í gegnum
þingið fyrir sumarfrí.
Um tvö þúsund manns
mættu á Austurvöll
ýmist til að mótmæla
ríkisstjórninni eða
mæla með henni.Ljós-
mynd/Hari
Helgin 8.-10. júní 2012 fréttir vikunnar 33
Þverganga Venusar
Sá sjaldgæfi viðburður átti sér stað í vikunni
að reikistjarnan Venus gekk þvert fyrir sólu.
Þetta gerist næst árið 2247.
Íslendingur fær tónlistar-
verðlaun
Anna Þorvaldsdóttir hlaut tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs í ár fyrir verk sitt Dreymi.
Hún er fimmti Íslendingurinn sem hlýtur
þessi virtu verðlaun.
Lögreglan fær 50 milljónir
Innanríkisráðherra tilkynnti að lögreglan
fengið 50 milljóna aukafjárveitingu til að
berjast gegn skipulagðri glæpastarfsemi.
Nýtt fangelsi
Kynntar voru niðurstöður um nýtt fangelsi
á Hólmsheiði sem gert er ráð fyrir að verði
tekið í notkun árið 2015. Áætlað er að fram-
kvæmdir hefjist vorið 2013.
kapp í kappræðum
Einn af hápunktum vikunnar
var kappræður forsetafram-
bjóðendanna á Stöð 2 þar sem
helmingur frambjóðendanna
gekk út í beinni útsendingu.
Og ekki skorti viðbrögðin á
Facebook við þessum heims-
sögulega viðburði.
Guðmundur Andri
Thorsson
Á meðan þið horfðuð á
kappræður sem voru víst
frekar skrýtnar fórum við út og
gróðursettum Litla tré. Enda
gróðursetning alltaf betri iðja
en rifrildi.
Heiðar Ingi Svansson
Það hefur greinilega verið
rétt ákvörðun að standa úti
við grillið heldur en að horfa
á þetta forsetaframboðskl-
úður á Stöð 2. Kannski komin
full ástæða til að endurvekja
Smekklausu verðlaunin, Einar
Örn ?
Helga Vala Helgadóttir
Missti af kappræðum en á yfir-
ferð minni hér á FB sýnist mér
að sjaldan hafi einni þjóð leiðst
jafn mikið ein kosningabarátta.
þetta eru nú meiri leiðindin
alltaf hreint. Þetta sagði ég í
vikulokum fyrir 2 - 3 vikum... og
það hefur hreint ekkert batnað.
Tóm leiðindi og lítil gleði... en
... aftur... ég sá ekki heildina og
ætti því ekkert að vera að tjá
mig... er meira svona að tjá mig
um fílinginn á fb í kjölfar sirkus
stöðvar tvö
Golli. Kjartan Þorbjörns-
son
missti af “The Biggest Loser” á
Stöð 2 í kvöld.
Deilt um kvótann
Útgerðarmenn söfnuðu skipum
sínum saman í Reykjavíkurhöfn
til að móta kvótafrumvarpi
ríkisstjórnarinnar þar sem
skipin þeyttu flautur sínar
við mismikinn fögnuð íbúa
miðbæjarins sem tjáðu sig um
gjörninginn, á Facebook að
sjálfsögðu.
Guðmundur Pálsson
Minnist þess þegar lögreglan
stöðvaði lúðraþyt Sturlu vöru-
bílstjóra á Austurvelli. Hann var
einn. Með einn lúður.
Heiða B Heiðars
Herlúðrar úgerðarmanna eru
alla að æra í 101 - eins gott að
það er fullt af latte til að hugga
sig við
Bryndis Isfold Hlodvers-
dottir
Ekki nóg með að maður hafi
þurft að hlusta á ríkustu stétt
landsins væla í hverjum frétta-
tíma í marga mánuði yfir því
að þurfa að borga fyrir það
sem þeir hafa hingað til fengið
ókeypis, heldur á maður að
þurfa að sitja undir hávaða
og látum heima hjá sér líka?!
Á ekkert að stöðva þetta væl
og flaut? Eða ætla menn að
leggjast kylliflatir niður í ótta
við að forréttindastéttin geri
hvað? Haldi áfram að hræða
líftóruna úr fólki, um að ef
hlutirnir verða ekki eins og þeir
vilja þá muni allt hrynja eins og
spilaborg..
Linda Vilhjálmsdóttir
grátkór LÍÚ er með stórtónleika
á Austurvelli í dag klukkan
fjögur! Missið ekki af þessu
frábæra tækifæri til að berja
kórinn augum!
Ólöf Nordal
Glæsileg skip í höfninni í
Reykjavík, hvað skyldi sam-
eiginlegt aflaverðmæti þeirra
vera?
Guðmundur Andri
Thorsson
Hálfkvíði því alþingi götunnar
sem í vændum er á Austurvelli.
Góð Vika
fyrir Ólaf Ragnar Grímsson,
forsetaframbjóðanda
Slæm Vika
fyrir Einar Örn Benediktsson,
borgarfulltrúa
Besta boðsferðin
Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi Besta flokksins, hefur
legið undir ámæli og harðri gagnrýni fyrir að þiggja boð í
jómfrúarferð íslenska flugfélagsins Wow Air til Parísar í síðustu
viku. Aðrir borgarfulltrúar segja
hann ekki skilja siða-
reglur borgarfulltrúa og
bloggarar skora á
hann að segja af
sér. Sjálfur segist
Einar Örn vera
æskuvinur Skúla
Mogensen og hann
hafi greitt 5900
krónur fyrir sætið.
Hvað sem öðru líður
hefur kusk fallið á
hvítflibba stjórn-
málamannsins Einars
Arnar Benediktssonar.
HeituStu kolin á
Besta vikan
Ólafur Ragnar Grímsson, forsetaframbjóðandi og forseti Íslands,
átti sérdeilis góða viku – sjálfsagt þá bestu í langan tíma. Hann er
kominn með yfirburðaforystu í könnunum, talaði þrefalt meira en
bæði Herdís Þorgeirsdóttir og Þóra
Arnórsdóttir í frægum kapp-
ræðum forsetafram-
bjóðendanna á Stöð 2
á sunnudaginn þar
sem helmingur
frambjóðenda
gekk út og eftirlét,
þar af leiðandi,
Ólafi Ragnari
sviðið. Ekki spillir fyrir
Ólafi Ragnari að hans
helsti keppinautur er
nýrisin af fæðingarsæng
og getur því ef til vill ekki
beitt sér sem skyldi.
37,5
prósent allra liða á EM í
fótbolta spila í búningum
frá þýska íþróttavörufram-
leiðandanum Adidas. Það
eru Rússland, Grikkland,
Þýskaland, Úkraína, Spánn
og Danmörk.
110
ár eru frá því að SÍS, Sam-
band íslenskra samvinnu-
félaga, var stofnað. Það
fór reyndar á hausinn fyrir
tuttugu árum en lifir engu að
síður góðu lífi.
100
prósent hlutfall marka ís-
lenska U-21 árs landsliðsins
í undankeppni EM í fótbolta
hefur framherjinn Björn
Bergmann Sigurðarson
skorað.