Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.06.2012, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 08.06.2012, Blaðsíða 6
... er verðhækk- unin á bensíni frá áramótum til dagsins í dag. Verðið var 228 krónur á lítra í sjálfsafgreiðslu 30.12.2011 en 249 þann 6.06.2012. Heimild: FÍB 8,4% Ásta í formennsku Ásta Jóhannsdóttir var á dögunum kjörin formaður samtakanna NFMM, Norrænna samtaka um rannsóknir á körlum og karl- mennsku. Ásta hefur lokið framhaldsnámi við Félags- og mann- vísindadeild Háskóla Íslands og leggur nú stund á doktorsnám við sömu deild. Markmið NFMM, samtaka sem stofnuð voru í janúar árið 2009, er að auka þekkingu og rannsóknir á sviði karlafræða. Mikilvægur liður í starfsemi samtakanna er útgáfa NORMA - tímarits á fræðasviði karla og karlmennsku. Tímaritið er leiðandi á sviði karlafræða á Norðurlöndum. Hafa þrjár vikur til að fjarlægja hjólhýsi Skipulags- og byggingafulltrúi Hafnarfjarðar- bæjar hefur gefið húseigendum við Hamrabyggð 7 þrjár vikur til að fjarlægja hjólhýsi sem stendur fyrir utan húsið, en kvörtun barst frá íbúum vegna þess á hverfafundi bæjarstjóra í síðasta mánuði. Ástæða umkvartana var einkum sú að hjólhýsið truflaði umferð um götuna. Þetta kemur fram í fundargerð skipulags- og bygg- ingarfulltrúa. í fundargerðinni er vísað til 20. greinar lögreglusamþykktar bæjarins. -óhþ Málþing um heilsu á Landsmóti Málþing undir yfirskriftinni Bætt heilsa, betra líf – hvað þarf til?, verður haldið í tengslum við 2. Landsmót UMFÍ 50+ sem fram fer um helgina í Mosfellsbæ. Málþingið fer fram í hátíðarsal Varmárskóla í dag og hefst klukkan 13 og er á vegum Heilsuvinjar í Mosfellsbæ, sem er klasi aðila í heilsutengdri þjónustu í Mosfellsbæ. Geir Gunnlaugsson landæknir setur málþingið en fluttir verða ellefu fyrirlestrar sem hver um sig stendur yfir í 15 mínútur. Fyrirlestrarnir verða um flest sem viðkemur heilsu svo sem; hreyfingu, næringu og andlega heilsu. -sda Ásta Jóhanns- dóttir N ú átta árum eftir fyrstu og reglu-legar umkvartanir leikskóla-kennara við leikskólann Dal í Kópavogi vegna of margra barna, of mikils hávaða og flóðlýsingar hyggjast bæjaryfirvöld „leita lausna“ við kvört- unum. Þau stefna á að laga lýsingu og minnka hávaðann. Börnunum verður þó ekki fækkað úr 94 í 87 eins og leik- skólastjórinn fer fram á. Leikskólanefnd bæjarins barst fyrsta skriflega kvört- unin í mars 2004, svo í apríl 2007, loks tvisvar 2010 og nú í apríl 2012. „Það stríðir gegn lögunum að það sé gripið fram fyrir hendurnar á leikskóla- stjórum af pólitíkusum hvað varðar ákvarðanir um fjölda barna,“ segir Ingibjörg Kristleifsdóttir, talsmaður leikskólastjórnenda. „Það er hrikalega erfitt að neita börnum um leikskólavist en það má samt ekki bjóða þeim upp á umhverfi sem getur í versta falli verið skaðlegt heilsu þeirra og þroska,“ segir Ingibjörg og telur brýnt að leikskóla- stjórnendur, kennarar og ekki síst for- eldra standi vörð um aðbúnað barna í leikskólum. Hún bendir á að með breyttum reglu- gerðum, þar sem hætt var að miða við ákveðinn fermetrafjölda á barn, hafi það verið markmiðið að bæta starfsum- hverfi þeirra og fullorðinna í leikskólum landsins. „Það er enginn betur til þess fallinn að meta hver fjöldi barna á að vera en leikskólastjóri í samráði við sitt samstarfsfólk.“ Hún segir Samband ís- lenskra sveitarfélaga sammála leikskóla- stjórnendum í þeirri túlkun. Í bréfi leikskólastjórans, Sóleyjar Gyðu Jörundsdóttur, segir að undanfar- in ár hafi bæði börn og starfsmenn glímt við tíð veikindi og telur hún hluta skýr- ingarinnar mega rekja til þess að þau séu í samskiptum við of marga á hverj- um degi. Börnin verji löngum skóla- dögum í erilsömu umhverfi þar sem foreldrar vinni flestir fulla vinnu. Þeir fái upphaflega ekki fulla vistun fyrir börnin en sæki strax og plássið er fengið um framlengingu á vistuninni – jafnvel áður en börnin mæta í fyrsta sinn. Í samtali við Fréttatímann segir Sóley að hún hafi öll árin fengið svör við bréf- um sínum en alltaf á þann veg að ekki sé hægt að verða við beiðnum hennar. „Hvað get ég gert?“ Hún bendir á að fyrir kreppu hafi ekki verið mannskapur í framkvæmdirnar en eftir kreppu ekk- ert fé. Staða bæjarins sé slæm, því hann geti ekki leyft sér að neita börnum um leikskólavist: „Kannski verður hægt að fækka á næsta ári.“ Starfsmennirnir hafi sjálfir teppalagt veggi og skrúfi aðra hvora peru úr ljósastæðum til að minnka áreitið. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is  LeikskóLar Fyrst Nú brugðist við kvörtuNum stjórNeNda „Það stríðir gegn lög- unum að það sé tekið fram fyrir hend- urnar á leik- skólastjórum af pólitíkinni hvað varðar ákvarðanir um fjölda barna.“ Kvörtuðu í átta ár án úrbóta Þrátt fyrir átta ára kvartanir leikskólakennara við Dal í Kópavogi vegna hávaða, fjölda barna og sífelldra veikinda hefur ekki verið gripið til aðgerða. Bæjaryfirvöld ætla í sumar „að leita leiða“ til að lappa upp á lýsingu og laga hljóðeinangrun á leikskólanum en vilja ekki fækka börnum. „Það stríðir gegn lögum,“ segir talsmaður leikskólastjórnenda. Börnin í leikskólanum Dal á miðvikudag. Hávaði og flóðlýsing hefur truflað starfsemina og leikskólastjórinn telur bæði börnin og starfsmenn glíma við tíð veikindi vegna þrengsla. Ljósmynd/Hari Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is Tilboðsverð: 23.900 kr. stgr. (fullt verð: 28.900 kr.) Ryksuga VS 06G2001 Kröftug 2000 W ryksuga með 4 lítra slitsterkum poka. Vinnuradíus 10 metrar. 17juni.is Skemmtun fyrir alla fjölskylduna -17juni.is 67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann* *konur 25 – 80 ára á höfuðborgarsvæðinu. Capacent okt.-des. 2011 6 fréttir Helgin 8.-10. júní 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.