Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.06.2012, Qupperneq 12

Fréttatíminn - 08.06.2012, Qupperneq 12
Meira í leiðinniWWW.N1.IS | N1 ÁRTÚNSHÖFÐA | OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN FÍ T O N / S ÍA FÍ T O N FÍ T O N FÍ T O N FÍ T O N FÍ T O N FÍ T O N FÍ T O N FÍ T O N FÍ T O N FÍ T O N FÍ T O N FÍ T O N FÍ T O N FÍ T O NN ÍT O N FÍ T O NN FÍ T O N OO TÍTFÍ TT FÍÍÍÍFF / SÍ A / SÍ A / SÍ A / SÍ A / SÍ AA / SÍ A / SÍ A / SÍ A / SÍ A / SÍ AA / SÍ AA / SÍ AA / SÍ A / SÍ / SÍÍSS / S // NÝR OG SPENNANDI MATSEÐILL Á N1 ÁRTÚNSHÖFÐA TILKYNNING TIL SÆLKERA Komdu og smakkaðu úrval af nýjum og ferskum réttum og heitum og köldum kaffidrykkjum! KOMDU Á N1 ÁRTÚNSHÖFÐA OG FÁÐU ÞÉR EITTHVAÐ FERSKT OG NÝMALAÐ þeirra kemur fram að atvinnulausir eru hluti af vinnumarkaðnum og eiga rétt á bótum ef þeir hafa áður verið útivinnandi. „Atvinnuleysisbætur eru hugsaðar fyrir viðkomandi til fram- færslu þangað til að hann kemst aftur til vinnu,“ segir þær. „Einstaklingur- inn hefur ekki einungis ávinning af því að hafa vinnu heldur nýtur öll þjóðin góðs af, sem og hið opinbera í gegnum skatttekjur. Því er ákaflega mikil- vægt að atvinnustigið sé sem hæst. Til þess að hinn atvinnulausi geti bætt við færni sína og viðhaldið starfsgetu sinni þá eru atvinnuleysisbætur hugs- aðar fyrir einstaklinginn sem áunninn réttur hans og einnig sem fjárfestingu samfélagsins þar til hinn atvinnulausi hefur fengið starf á ný.“ Markmið kerfisins að koma fólki í vinnu Atvinnuleysistryggingakerfið gerir ráð fyrir því að þeir sem eru án vinnu kom- ist aftur út á vinnumarkaðinn og er það einnig markmið kerfisins.“ Hins vegar er önnur leið út úr kerfinu og hún er sú að atvinnulausir verði að öryrkjum. Af- leiðingar kreppu hjá nágrannaþjóðum okkar hafa verið miklar og hátt hlutfall þeirra sem misst hafa vinnuna og orðið atvinnulausir til langs tíma hafa minni virkni og enda oftar en ekki sem ör- yrkjar,“ segja Erla og Sigrún jafnframt. Einnig kemur fram í ritgerð þeirra að í löndum þar sem mikið og langvar- andi atvinnuleysi hefur verið, er hætta á að atvinnuleysið verði „ættgengt“, það er, börn sem eiga foreldra sem eru atvinnulausir eru líklegri en önnur börn að verða sjálf atvinnulaus þegar þau eldast. Grunnatvinnuleysisbætur eru 167.176 krónur. Útborgað, eftir skatt, eru bæturnar um 150 þúsund, að sögn Þrastar. Skiptir þar engu máli hvort atvinnuleitandinn býr í foreldrahúsum eða er að leigja. „Kerfið okkar hefur verið gagnrýnt af kollegum okkar erlendis. Hér geta ungmenni verið komin með 100 prósent bótarétt 18 ára og fá sömu upphæð og foreldrar sínir sem hafa ef til vill stundað vinnu í 30 ár – og búa jafnvel heima hjá þeim,“ segir Þröstur. Á Norðurlöndunum er tekju- tenging atvinnubóta allan atvinnu- bótatímann, hér varir tekjutenging einungis í þrjá mánuði og er 70 prósent af meðallaunum síðustu sex mánaða að hámarki 270 þúsund. Atvinnuleysið hentar ágætlega Hólmfríður Ingvarsdóttir lýkur meist- aranámi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands nú í vor. Lokaritgerð hennar fjallaði um líðan, reynslu og viðhorf ungra atvinnuleitenda. Hún ræddi við átta atvinnuleitendur sem höfðu verið atvinnulausir frá fjórum mánuðum upp í tvö og hálft ár. Þeir bjuggu allir á höfuðborgarsvæðinu, ýmist í foreldra- húsum eða í leiguíbúð, þeir voru allir einhleypir nema einn og tveir áttu börn. Þrír viðmælenda Hólmfríðar töluðu um að atvinnuleysið hentaði þeim ágætlega. Einni fannst henni líða betur eftir að hún missti vinnuna „Líðanin hefur breyst til hins betra hjá mér. Mér finnst þetta ekki hafa verið leiðinlegt.“ Annar sagðist hafa farið í sjálfskoðun við atvinnumissinn og honum liði bet- ur núna en fyrir tveimur árum. „Miklu betur.“ Þriðja viðmælandanum sem líkaði atvinnuleysið ágætlega segir kostinn vera að hann hefur meiri pen- ing milli handanna en hann hafði áður, þegar hann var í skóla. Hann sagðist nú geta farið út að borða þrisvar á dag, sem hann hafði ekki getað þegar hann var í skóla. Einni sagðist líka vel að geta haft tíma fyrir sjálfa sig á meðan dóttir hennar er í leikskólanum og að hennar mati væri það ekki þess virði í mörgum tilfellum að taka að sér vinnu. Hún sagði það ekki muna svo miklu fjárhagslega að vera á atvinnuleysis- bótum og í vinnu: „Eins og er breytir það ekkert rosalega miklu í mörgum vinnum hvort þú ert atvinnulaus eða í vinnu. Það eru kannski bara svona tveir-þrír tíuþúsundkallar í viðbót svona með flest störf.“ Aðrir þátttakendur lýstu því hvernig atvinnuleysið hefur haft slæm áhrif á líðan þeirra þannig að þeir fyndu veru- lega breytingu. Þeir lýstu meiri kvíða, depurð, leiða og jafnvel þunglyndi. Allir höfðu upplifað erfiðleika við að halda rútínu. „Rannsóknir sýna að menntun hefur jákvæð áhrif á vinnumarkaðsstöðu einstaklinga og minni líkur eru á lang- tímaatvinnuleysi hjá einstaklingum sem hafa meiri menntun en þeim sem aðeins hafa grunnmentun að baki,“ segir Hólmfríður. Hér á landi hefur um 65 prósent ungra atvinnulausra einungis lokið grunnskólanámi, 26 prósent hafa lokið stúdentsnámi, iðnnámi eða starfstengdu námi á fram- haldsskólastigi og 9 prósent hafa lokið háskólaprófi. Háskólamenntaðir fá strax vinnu Að sögn Þrastar er nokkuð auðvelt fyrir háskólamenntað fólk að fá vinnu og stoppar það ekki lengi við á atvinnuleysisskrá. Undanfarin ár hefur Vinnumálastofnun verið að þjálfa upp ómenntaða atvinnuleitendur og gera það fólk hæfara til þess að fara út á atvinnumarkaðinn. „Þetta eru oft krakkar með enga menntun og nánast enga starfsreynslu og höfum við því lagt okkur fram við að gera þennan hóp samkeppnishæfari við eldri hópinn, sem hefur meiri reynslu. Við höfum boðið upp á ýmis námskeið, svo sem vinnuvélanámskeið, tölvunám- skeið, meiraprófsnámskeið, námskeið í hönnun og handverki, námskeið sem tengjast iðn- og tæknigeiranum, svo fátt eitt sé nefnt. Fólk fékk oft vinnu í E rla Jóhannesdóttir og Sigrún Ásdís Sigurðardóttir gerðu lokaverkefni á Hug- og félagsvísindasviði, Há-skólanum á Akureyri árið 2010 sem fjallaði um áhrif atvinnuleysis á líðan ungs fólks á aldrinum 18-22 ára. Þær ræddu við átta atvinnulaus ungmenni sem öll áttu það sam- eiginlegt að hafa hætt í námi. Þau tjáðu sig meðal annars um skoðun sína á námi og ástæður fyrir því að þau hættu. Gígja „...æi ef maður dettur út úr skóla eða vinnu eða eitthvað þá festist maður svo í þessu og það er svo erfitt að komast upp úr þessu og (þögn) já maður svona til dæmis ég þori varla að fara í skóla aftur vegna þess að þá missi ég nottlega peninginn og ég er komin í svo djúpa skuld þannig að get ekkert tekið séns á að missa bæturnar...“ Björk „...fólki finnst bara sjálfsagt þá að ég fari bara í skóla en þá nottlega missi ég bæturnar og þar ekki alveg eða ég veit ekki alveg hvernig það á að ganga.“ Darri „...maður þarf helst að vera lærður til þess að gera eitt- hvað bara spurning um að fara aftur í skóla sko...en hvað á maður þá að gera í peningamálum...þú getur nottlega farið í hálfan skóla og fengið hálfar atvinnuleysisbætur eða eitt- hvað maður fær nottlega ekkert það mikinn pening maður er nottlega með hús og ábyrgð.“ Heimir „Ég var nottlega hérna í Verkmenntaskólanum en svo hérna féll ég úr honum en ég er svona að spá í að koma mér í eitthvað nám núna. Mér fannst ég ekki vera að læra á réttu áhugasviði sko þá var ég líka í áfengisneyslu og svo- leiðis kannski þess vegna sem maður féll úr skóla...Þetta er sérstaklega leiðinlegt af því að mig langar að verða stúd- ent sko en nottlega bý ekki lengur hjá mömmu og pabba og ég mun aldrei eiga pening til þess á atvinnuleysisbótum til þess að geta framfleytt mér í gegnum allt námið...“ Áhrif atvinnuleysis á líðan ungs fólks 12 fréttaskýring Helgin 8.-10. júní 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.