Fréttatíminn - 08.06.2012, Side 16
í þessari mynd væri áhugavert.
Ég hef í fyrsta lagi horft til sviða
sem hafa möguleika á að vaxa.
Í öðru lagi hefur það alltaf verið
skilyrði fyrir fjárfestingum mínum
að vinna með áhugaverðu og
skemmtilegu fólki og hafa gaman
af hlutunum. Ferðaþjónustan er
frábært dæmi um geira hér á landi
sem hefur vaxið mjög ört og ég
tel að eigi ennþá mjög mikið inni,“
segir hann.
Nú getur verð flugfargjalda vart
verið lægra. Hvað endist þið lengi?
„Það sem skiptir mestu máli,
og við höfum sagt sem svo, er að
flugið er aðeins einn liður í því að
byggja upp öflugt ferðaþjónustu-
fyrirtæki.“
Sérðu þá ekki fram á að hagnast
á fluginu?
„Flugið er aðeins einn liður í
ferlinu, því við munum kynna til
leiks þjónustu gagnvart okkar við-
skiptavinum sem nær langt út fyrir
flugið. Það er lykilatriði að geta
boðið gestum okkar, farþegum,
upp á hótel, bílaleigubíl, afþrey-
ingu, veitingastaði, skemmtanalíf
og svo framvegis og framvegis.
Flestir sem kaupa sér ferðir leita
að annarri þjónustu um leið og
þeir bóka flugið. Hugmyndin er að
geta boðið okkar viðskiptavinum
heildarlausn.“
En hvað má verðið vera svona
lágt lengi? Hversu fljótt þarf kakan
að stækka?
„Það veltur alfarið á því hversu
dugleg við erum að bjóða upp á
heildarþjónustu.“
En í mánuðum, árum, vikum?
„Ég hef aldrei farið af stað nema
að hugsa fram í tímann. Ég sé fram
á að markaðurinn geti tvöfaldast á
næstu fimm til sex árum. Við erum
með grófa viðskiptaáætlun sem við
höfum út þann tíma. Ég lít á þetta
sem fjárfestingu sem mun taka
einhver ár að byggja upp. Það er al-
veg ljóst. Það er ekki hægt að setja
upp flugfélag á einni nóttu. Ekkert
frekar en annan rekstur. Ég er til-
búinn að tryggja rekstrargrundvöll
félagsins til margra ára, á meðan
við erum að byggja félagið upp.
Ég hef litlar áhyggjur af rekstaraf-
komunni næstu tvö árin. Það er
ekki markmiðið að skila hagnaði
næstu tvö árin heldur er markmið-
ið að búa til öflugt vörumerki, góða
þjónustu, safna saman viðskipta-
vinum, hlusta á þá, endurbæta og
fínstilla módelið okkar. Það mun
taka nokkur ár áður en reksturinn
skilar góðri afkomu. Þegar að það
gerist er ég viss um að við munum
nota hagnaðinn í áframhaldandi
uppbyggingu fyrirtækisins.“
En er pláss fyrir þrjú íslensk flug-
félög?
„Ég held það í ljósi þess að
nú eru einnig fimmtán erlend
flugfélög að fljúga til landsins.
Samkeppnin er miklu meiri en
milli þessara þriggja og því ekki
aðalatriðið hvort það eru eitt, tvö
eða þrjú flugfélög á Íslandi.“
Bæklingur ykkar um borð er á
ensku. Lítur Wow heldur til útlend-
inganna sem farþega og þá á Ís-
lendingana sem bónus?
„Nei. Við viljum tvímælalaust
þjóna Íslendingum vel, en eins og
áður sagði er vaxtarmöguleikinn
miklu meiri í að fjölga erlendum
farþegum til landsins. Við munum
sinna því vel ekki síður en Íslend-
ingunum.“
En þú hagnast á hugbúnaðarvið-
skiptum, kaupir banka og stofnar
flugfélag, ásamt fleiru, ertu ekki
kominn út fyrir þægindasvið þitt?
„Jú, og til þess er leikurinn gerð-
ur. Það hvarflaði að mér að setjast í
helgan stein (eftir söluna á Oz). En
ég er þannig gerður að ég á erfitt
með að sitja rólegur eða spila golf.
Ég hef í tuttugu ár verið í tölvu-,
tækni- og símageirunum. Þar leið
mér vel og er ennþá að fjárfesta í
þeim. En að sama skapi er ég hepp-
inn að komast í þá aðstöðu að geta
prófað eitthvað nýtt og þó að þetta
séu gjörólík svið eiga þau ýmislegt
sameiginlegt. Þótt ég setji ákveðin
skilyrði við fjárfestingar mínar, er
þetta vissulega ákveðin ævintýra-
mennska og þörf á að kynnast
nýjum hlutum. Auðvitað gæti ég
ekki gert þetta nema með öflugu
fólki.“
En óttastu ekkert að missa
yfirsýn?
„Jú, en til dæmis ef horft er til
MP banka erum við með öfluga
stjórn og mjög öfluga stjórnend-
ur... í framhaldi af því kem ég lítið
nálægt daglegum rekstri og við-
skiptum bankans. Mér er hrein-
Eigandi Wow við þjónustu í jómfrúarflugi flugfélagsins til Parísar á fimmtudag í síðustu viku. Mynd/Sigurjón fyrir Wow Air
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
2-
05
25
Við bjóðum þér að reynsluaka nýjum B-Class
Draumaferð á hverjum degi
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi
Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“
á Facebook
16 viðtal Helgin 8.-10. júní 2012