Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.06.2012, Page 17

Fréttatíminn - 08.06.2012, Page 17
LEIÐIN TIL HOLLUSTU www.skyr.is Norræna matvælamerkið Skráargatið auðveldar þér að velja holla matvöru. Vörur með Skráargatinu verða að uppfylla ákveðin næringar- viðmið og teljast hollastar í sínum fæðuflokki. Skyr.is drykkirnir standast þessar ströngu kröfur, þú getur því treyst á hollustu Skyr.is. lega óheimilt að hafa slík afskipti. Regluverkið er einfaldlega orðið það strangt þegar kemur að bank- anum. Það fer ekkert mjög mikill tími í það verkefni lengur.“ En það hefur ekki alltaf verið farsælt að reka bæði banka og flug- félag. Gæti þér þótt gott að eiga banka til að nota sem skjól fyrir flugreksturinn? „Alls ekki. Eitt af því sem ég lagði til og er algjörlega skýrt er að mér er með öllu óheimilt að fá fyrirgreiðslu eða lán hjá MP banka og er með viðskipti Títans (fjárfestingafélagsins á bakvið flugfélagið) og minna félaga við annan banka, og erlendan banka að sjálfsögðu líka. Það er öll önnur viðskipti en bara hefðbundinn inn- lánareikning og kreditkort. En ég er ekki með nein lán, hvorki persónulega né Títan, hjá MP banka og fjarri lagi að fjárfestingin í bankanum hafi verið hugsuð sem slík. Það er sem betur fer útilokað að misnota aðstöðu sína í dag.“ En óttastu ekkert um ímynd þína, þar sem ímynd bankamanns þarf kannski að vera önnur en flugrek- anda? „Ég hef nú bara ekki hugsað út í þetta. Ég verð að vera sam- kvæmur sjálfum mér og trúr því sem ég geri og stend fyrir. Ég tel að ég hafi alltaf verið heiðarlegur, hreinn og beinn í viðskiptum mín- um. Þetta hefur nú ekki allt gengið sem dans á rósum. Stundum gengur eitthvað mjög vel og annað ekki. Það er eðli viðskipta. Eng- inn fjárfestir leggur eingöngu fé í velheppnuð verkefni. Þú nefnir að það hafi ekki alltaf verið án áhættu að fjárfesta í bönkum. Það er rétt þegar litið er til síðustu ára, en sé litið til lengra tímabils er banka- starfsemi mjög traust, örugg, langtímafjárfesting. Það á að vera hægt að reka banka á skynsam- legum, traustum forsendum. Sú er áherslan mín.“ En, þau eru nú ekki mörg vel rekin flugfélög? „Nei, en þau eru nokkur. Við höfum tekið þau okkur til fyrir- myndar. Áður en við fórum af stað höfðum við skoðað fjölda fyrirtækja. Það hefur orðið endur- nýjun mjög víða í heiminum. Þessi gömlu, oft á tíðum ríkisrekin flug- félög – sem voru fyrsta kynslóð flugfélaga – hafa þurft að víkja fyrir nýrri kynslóð lággjalda flug- félaga, sem hafa litla yfirbyggingu og hafa nýtt sér nettæknina. Það er ekki langt síðan að flugfélög og bankar þurftu söluskrifstofur og útibú út um allt. Það er einfaldlega liðin tíð. Núna byggist flugrekstur annars vegar á netverslun og net- viðmóti og svo öflugu og traustu rekstararsviði. Yfirbyggingin og starfsmannafjöldi er miklu minni en var og á meðan þau gömlu þurfa að laga sig að nýjum tímum með dýrum, flóknum og sársauka- fullum hætti höfum við þar for- skot.“ Lítur þú á það sem heppni að hafa náð að selja OZ hugbúnaðar- fyrirtækið Nokia korteri í hrun? „Ég held að það hafi verið Arnold Palmer golfari sem átti ágætis frasa. Hann sagði: Það er merkilegt. Því meira sem ég æfi mig því heppnari verð ég. Ég held að heppni sé þáttur í öllu sem við gerum. En hún byggist á því að vera vakandi, vera gerandi og sjá tækifæri í hlutunum. Maður býr því til sína eigin heppni. Við vorum búin að vera lengi í rússíbananum sem Oz var. Við vorum búin að læra mikið og engin tilviljum að við skyldum allt í einu selja. Það var meðvituð ákvörðun æðstu stjórnenda fyrirtæksins. Við seld- um ekki af því að við bjuggumst við að hagkerfi heimsins væri að hrynja. Við seldum af því að verk- efni okkar hafði heppnast vel.“ Margir líta á flugrekstur sem happdrætti, rússneska rúllettu kannski. Þykir þér ekki vænt um þessa peninga sem þú átt? „Mig minnir að það hafi verið Bacon sem sagði: Peningar eru eins og mykja. Það þarf að dreifa þeim til að þeir geri gagn.“ Á fréttavefnum Vísi stóð fyrir ári síðan að þið hjónin ættuð átta millj- arða í hreina eign. Hvað ætlið þið að nota mikið í flugreksturinn? „Það kemur í ljós.“ Hvað eigið þið mikið í dag? „Ég hef ekki hugmynd um það! En ég hef svo mikla trú á ferða- þjónustunni og Íslandi sem áfanga- stað að ég set mjög stóran hluta í þessa fjárfestingu. Einfaldlega af því að ég trúi því að tækifærið sé svo stórt. Ferðamannaiðnaðurinn skilaði 158 milljörðum í gjaldeyris- tekjur fyrir okkur Íslendinga 2011 og ferðaþjónustan er núna um það bil 12 prósent af þjóðarfram- leiðslu,“ segir hann. „Ég skil að fólk furði sig á þessari fjárfestinu horfi það eingöngu til flugsins. En ef það horfir á það hvernig við þróum hugmyndina áfram á næsta einu til tveimur árum þá held ég að það sjái ljósið, eins og við höfum gert. Þetta er einungis byrjunin.“ En af hverju ertu svona opinn með fjárfestingar þína á sama tíma og aðrir pukrast með sínar eða koma jafnvel ekki með fé til lands- ins? „Það var nú ekki svo að ég hafi sóst eftir einhverri umfjöllun. Hins vegar vildi þjóðin gegnsæi og spurði margra spurninga um það hvaðan peningarnir komu þegar ég kom heim; sérstaklega þegar við fjárfestum í MP banka. Ég held að það hafi verið nauðsynlegt að verða við þessum eðlilegu kröfum. Og í kjölfarið á því að skattaskrár Íslendinga eru opinberar og ég kaus að koma heim og greiða mína skatta og gjöld, var upplýst um eignir mínar. Ég hefði hæglega getað verið skráður erlendis, því ég er það mikið þar, og þannig forðast að borga skatta hér og þá umfjöllun. En aftur; mér finnst sjálfsagt, þar sem þetta er orðinn minn helsti vettvangur og þar sem ég vil taka þátt í uppbyggingunni, að ég greiði mína skatta og skyld- ur eins og allir aðrir. Þess vegna svara ég þessu kalli.“ Það hvarflaði að mér að setjast í helgan stein [eftir söluna á Oz]. En ég er þannig gerður að ég á erfitt með að sitja rólegur eða spila golf. viðtal 17 Helgin 8.-10. júní 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.