Fréttatíminn - 08.06.2012, Blaðsíða 46
38 bílar Helgin 8.-10. júní 2012
N ýr og sportlegur Mercedes-Benz A-Class var kynntur á bílasýningunni í Genf
í mars. Þessi nýja kynslóð bílsins
er mikið breytt frá fyrri gerð hvað
varðar hönnun og aksturseigin-
leika. Bíllinn hefur vakið mikla
athygli nú þegar fyrir hönnun, að
innan jafnt sem utan. Nýtt grillið
að framan er fallega hannað sem og
straumlínulagaðar hliðar bílsins og
sportlegur afturhluti hans. Mikið er
lagt upp úr vönduðu efnisvali í inn-
réttingunni.
Nýjar bensín- og dísilvélar verða
í boði í nýjum A-Class sem eru af-
kastamiklar en einnig eyðslugrann-
ar og umhverfismildar. Þannig
verður koltvísýringslosunin aðeins
um 99 g/km í umhverfismildustu
vélinni. A-Class verður í boði með
tveimur bensínvélum, 1,6 og 2,0
lítra. Vélin í A 180 mun skila 122
hestöflum, í A 200 verður 156 hest-
afla vél og vélin í A 250 skilar 211
hestöflum. Úrval aflmikilla dísilvéla
er einnig í boði í nýju kynslóðinni. A
180 CDI verður með 109 hestafla vél
sem togar 250 Nm, A 200 CDI verð-
ur með 136 hestafla vél sem togar
300 Nm og A 220 CDI er með 2,2
lítra, 170 hestafla dísilvél sem togar
alls 350 Nm. Allar vélarnar í nýjum
A-Class verða með ECO start/stopp
búnaði. Hægt verður að fá A-Class
með nýrri sex gíra beinskiptingu
eða 7G-DCT sjálfskiptingu.
Í hinum nýja A-Class Mercedes-
Benzen verður meðal annars að-
gengi fyrir snjallsíma. Ökumaður
og farþegar geta því tengt iPhone
við tæknibúnað bílsins. Hvað örygg-
isbúnað varðar má nefna árekstrar-
vara en búnaðurinn greinir þegar
fjarlægð frá bíl eða kyrrstæðri mót-
stöðu er of lítil og lætur ökumann
vita með mynd- eða hljóðmerki.
Þessi búnaður hefur hingað til að-
eins verið í boði í mun stærri og
dýrari bílum. Þá er A-Class einnig
búinn Pre Safe kerfinu sem er fyr-
irbyggjandi öryggisbúnaður fyrir
ökumann og farþega. Greini búnað-
urinn varasamar akstursaðstæður
strekkjast bílbeltin í framsætunum
á broti úr sekúndu og hliðarrúður
og sóllúga lokast sjálfkrafa. Þannig
næst full virkni öryggisbelta og ör-
yggispúða sem veita hámarksvörn
ef til áreksturs kemur.
KynslóðasKipti Nýjar dísil- og beNsíNvélar í boði
Nýr A-Class frá Mercedes-Benz er mun straumlínulagaðri en fyrri kynslóðir.
Kia bílar fyrir framan knattspyrnuleikvanginn í Varsjá þar sem leikið
verður á EM.
Bílar Kia teKur þátt í fótboltaveislu
Kia Motors styrktaraðilil
EM í knattspyrnu 2012
K ia Motors er einn aðal styrktaraðili EM í knattspyrnu 2012 sem hefst í dag. Keppnin fer fram í Úkraínu og Póllandi. Suður-kóreski bílaframleiðandinn hefur
undanfarin ár verið mjög öflugur styrktaraðili við íþrótta-
hreyfinguna og er opinber samstarfsaðili UEFA og FIFA.
Þannig var Kia einn aðalstyrktaraðili HM í knattspyrnu
fyrir tveimur árum.
„Kia vinnur stöðugt að því að efla ímynd sína og þekkingu
á vörumerkinu með samstarfssamningum við íþróttahreyf-
inguna,“ segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Öskju.
Kia Motors heldur áfram mikilli sókn í Evrópu en suður-
kóreski bílaframleiðandinn jók söluna á fyrsta ársfjórðungi
um 24,6 prósent miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta er tíundi
mánuðurinn í röð sem Kia eykur sölu á bílum sínum í Evrópu á
sama tíma og sala á nýjum bílum í álfunni hefur dregist saman
um 7,5 prósent á fyrsta ársfjórðungi. Kia hefur einnig styrkt
stöðu sína mjög á Íslandi, er með 9,1 prósenta markaðshlut-
deild á þessu ári og er önnur söluhæsta bílategundin á landinu
fyrstu fimm mánuði ársins.
Sparneytnir og umhverfismildir
„Þetta eru auðvitað mjög ánægjulegar fréttir en koma raunar
ekkert mjög á óvart, þar sem Kia hefur verið að koma fram
með spennandi og fallega endurhannaða bíla á síðustu mán-
uðum. Nú munu tveir nýir Kia bílar bætast í flóruna í sumar,
Optima og cee‘d, sem báðir hafi fengið góða dóma bílablaða-
manna,“ segir Þorgeir.
Hann segir að það sé einnig mjög ánægjulegt að sjá að sölu-
aukningin á Íslandi sé vel yfir 160 prósent ef hún er borin sam-
an við sama tímabil í fyrra. „Við erum að verða komnir í sama
fjölda nýskráðra Kia bíla á árinu miðað við allt árið í fyrra. Kia
er með 339 nýja selda bíla fyrstu fimm mánuði ársins en á öllu
árinu í fyrra voru þeir 374,“ segir Þorgeir ennfremur.
Honda Nýr CiviC
Nýr Honda Civic var frumsýndur í vor af
bílaumboðinu Bernhard. Bílnum hefur
verið vel tekið í Evrópu og hefur hann
fengið lof bílagagnrýnenda, að því er
fram kemur á síðu umboðsins. Hægt er að
velja um 1.4 og 1.8 lítra i-VTEC bensínvélar
eða 2.2 lítra i-DTEC dísilvél. Vélarnar eru
allar hannaðar með lága eldsneytiseyðslu
í huga, kraftmikla eiginleika og hreinni
útblástur. Til þess að draga úr eldsneyt-
iseyðslunni enn frekar er beinskiptur Civic
útbúinn með Idle Stop-tækni, sem slekkur
á vélinni um leið og numið er staðar og
ræsir hana um leið og ökumaður færir
fótinn af bremsunni.
Innrétting bílsins er endurhönnuð. Bíllinn
er vel búinn í Comfort- og Sport-útgáfu
með margvíslegum aukabúnaði. Com-
fort-útgáfan er á 16 tommu álfelgum en
Sport-útgáfan á 17 tommu álfelgum.
Honda Civic með 1.4 lítra bensínvél kostar
3.490.000, að því er fram kemur á síðu
Bernhard. Sjálfskipur Civic með 1.8 lítra vél
kostar 3.790 þúsund krónur.
Toyota Yaris Hybrid var fyrst kynntur á bílasýningunni í Genf í ár og kemur til
Íslands í þessum mánuði.
Toyota Yaris Hybrid væntanlegur nú í júní
Toyota Yaris Hybrid er væntanlegur
hingað til lands nú í júní, að því er fram
kemur á síðu Toyota-umboðsins. Þar
segir að bíllinn hafi fyrst verið kynntur
á Genf-bílasýningunni 2012. „Þetta er
lipur og skemmtilegur borgarbíll sem
byltir hugtakinu um mengunarlítinn
akstur. Með útblástur upp á aðeins
79g/km er Yaris Hybrid með minnsta
útblásturinn sem fyrir finnst í bíl með
hefðbundinn sprengihreyfil og á verði
sem oftast væri í boði á venjulegum
dísilbílum. Full hybrid tæknin er einstök
að því leyti að geta náð þetta litlum
útblæstri en samt afkastað 100 DIN hp,“
segir þar og enn fremur: „Batteríin eru
nógu lítil til að geta verið staðsett undir
aftursætunum og er því sama pláss í
Yaris hybrid og er í bensín- og dísilút-
gáfunum af Yaris.“
Unnið hefur verið að því að lengja þann
tíma sem hægt er að aka án þess að
notast við bensínvélina en fram kemur í
umsögn að prufuferðir sem gerðar voru
á Yaris Hybrid sýni að allt að 66 prósent
af tíma og 58 prósentum af vegalengd
ferðanna var hægt að aka eingöngu á
rafmagni.
Bernhard kynnti nýjan Honda Civic í vor.
Þrjár sparneytnar vélar í boði
Sportlegur A-Class frá
Mercedes-Benz
Mikið breyttur bíll að innan og utan og mun straumlínulagaðri en fyrri gerðir.
-þegar gæði verða lífsstíll
Höfðahöllin er flutt
að Funahöfða 1 við
hliðina á Bílalind
Við seljum bílinn þinn
meðan þú slappar af
Mikil sala!
Vilt þú selja bílinn þinn?
Settu hann á skrá
hjá okkur frítt!
Funahöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | hofdahollin@hofdahollin.is
Funahöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 580 8900 | bilalind.is
Fylgstu með
okkur á Facebook
17juni.is
Samfellda dagskrá kl.10-19 má sjá á 17juni.is