Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.06.2012, Side 64

Fréttatíminn - 08.06.2012, Side 64
V itaskuld er fátt eitt gott um þetta hrun að segja og vonbrigðin í kjölfar þess, hvað varðar endur- skoðun á kolbrengluðu verðmætamati, eru sár. En, þeir sem til þekkja hafa reyndar haldið því fram í mín eyru að kenningin þess efnis að menning eflist þegar skóinn kreppir standist. Ég er far- inn að hallast að því að svo sé. Leikárinu ætti að vera lokið en samt eru frumsýn- ingar vikulegur viðburður þetta vorið, af- bragðs leiksýningar og fyrir viku var ein slík – Trúðleikur í Frystiklefanum á Rifi á Snæfellsnesi, af öllum stöðum. Á Rifi hefur verið komið upp bráð- skemmtilegu leikhúsi í gömlu frysti- húsi af fádæma myndarskap og dugnaði. Prímusmótor í því ævintýri er Kári Við- arsson sem fagnar nú Grímutilnefningu: Sprotinn 2012 er veittur fyrir frumleika og framúrskarandi nýbreytni á árinu. Sannarlega vel að því kominn og rétt að segja það strax hér í upphafi að þetta framtak er út af fyrir sig aðdáunarvert. Menningartengd ferðaþjónusta er nokkuð sem menn vilja tala mikið um en kannski verður minna úr efndum en efni standa til. Menn skulu aldrei gleyma litlu gulu hænunni. Atvinnuleikhús á Rifi er djörf hugmynd, einstök og það sem meira er; henni hefur verið hrint í framkvæmd og er sannarlega nokkuð sem Snæfellsbær allur má vera stoltur af. En, að sýningunni, uppfærslu á verki Hallgríms Helgasonar – Trúðleik. Verk- efnaval sem er snjallt miðað við allar aðstæður. Byrjað er með látum, reyndar hvelli og trúðarnir Skúli og Spæli, sem leiknir eru af Kára og Benedikt Gröndal, missa aldrei tempó né kraft. Sýningin einkennist af uppátækjasemi og mikilli leikgleði. Leikstjórinn er á heimavelli - Halldór Gylfason lék einmitt í sýningunni þegar Trúðleikur var fyrst settur á svið fyrir tólf árum. Leikurinn gerist í litlum bæ, og fer vel á því þegar kliður í mesta kríuvarpi heims, sem er steinsnar frá leikhúsinu, kveður við; yfirstandandi eru „Finnskir Dagar“. Á dagskrá er: Þjónustu- miðstöð opnar í Grunnskólanum, Guðfub- aðskeppni er í íþróttahúsinu, Idolkeppni með Lordi-þema á stóra sviði, Gói og Fel- ix skemmta á stóra sviði, Brekkusöngur á stóra sviði, Hljómsveitin Sólblóma leikur fyrir dansi fram á rauða nótt og ... trúðar á tjaldstæðinu. Áhorfendur eru staddir við tjald trúð- anna þar sem getur að líta sjoppulega um- gengni. Það er nefnilega (að sjálfsögðu) tár í auga trúðsins. Þetta er kannski ekki alveg staðurinn sem menn vildu vera staddir á í lífinu og tilverunni. Eða hvað? Án þess að farið sé nánar í atburðalýs- ingu þá fjallar verkið, sem er ljómandi vel skrifað, um samskipti trúðanna. Annar er sáttur við sitt hlutskipti en hinn stefnir hærra; vill takast á við eitthvað starf sem veitir honum virðulegri blæ og viðurkenn- ingu. Og hann mátar sig við ýmsar hug- myndir í því sambandi. Hugvitsamleg leið til að bregða ljósi á að það eru kannski ekki fötin sem skapa manninn, eins og gamla auglýsingaslagorðið segir, heldur öfugt: Maðurinn skapar fötin. Eða þann- ig; spurningin er hvort menn sætti sig við stöðu sína? Kannski er ekkert einhlítt svar við þeirri spurningu, sjálfsagt getur afstaða hvers og eins, í hvora átt sem er, reynst jafn hamlandi eða tragísk en snjallt af höfundi að spyrja þessara sígildu spurninga í trúðsskóm. Hvorugur getur trúðurinn án hins verið og þannig skín í, að baki öllu sprellinu, sögu af mikilli vináttu – sem er hugsanlega ekkert svo holl þegar allt kemur til alls? Eins og áður sagði er um atvinnuleik- hús að ræða og þess getur að líta í stóru sem smáu. Lýsing, leiksvið, leikmunir og búningar eru til fyrirmyndar. Kári og co mega sannarlega vera ánægðir með sig. Jakob Bjarnar Grétarsson Að vera eða vera ekki ... trúður  FrystikleFinn riFi: trúðleikur ... sannar- lega nokk- uð sem Snæfells- bær allur má vera stoltur af. Kári og Benedikt í hlutverkum trúðanna, en þeir hafa verið fengnir til að skemmta á tjaldstæði bæjarfélags þar sem yfirstand- andi eru „Finnskir Dagar“. Ljósmynd/Hari Niðurstaða: Það er bara rugl, ef menn eiga leið um Snæfellsnes um það leyti sem Trúðleikur er til sýninga, að sleppa því að kíkja við í Frystiklefanum. Auðvitað ættu menn að gera sér ferð vestur. Kraftmikil, bráðskemmtileg og athyglisverð sýning.  trúðleikur Höfundur: Hallgrímur Helgason Leikstjórn: Halldór Gylfason Ljós: Friðþjófur Þorsteinsson Búningar: Hulda Skúladóttir Leikmynd: Hópurinn. Franski myndlistarmaðurinn Olivier Manoury opnar sýningu á vatnslita- myndum frá Íslandi í Þjóðmenningar- húsinu í dag klukkan 17. Á sýningunni verða landslagsmyndir sem hann hefur málað á ferðum sínum um Ísland undanfarin ár, auk mynda úr reykvísku borgarlandslagi. Sýningin stendur til loka ágúst og verður opin daglega frá 11 til 17. Olivier Manoury er fæddur árið 1953 í Tulle í Frakklandi. Hann er menntaður í bókmenntum og málara- list en stærstan hluta ævinnar hefur hann starfað sem tónlistarmaður. Hann er kunnur bandóneonleikari í Frakklandi og reyndar víðar um heim. Á opnuninni mun Olivier, ásamt eiginkonu sinni Eddu Erlendsdóttur píanóleikara, og fleirum, leika tónlist fyrir gesti og gangandi og eru allir boðnir velkomnir.  Myndlist VatnslitaMyndir í ÞjóðMenningarhúsi Olivier Manoury opnar sýningu MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS  CAFÉ/BAR, opið 17-23 VERTU FASTAGESTUR! Ódýrara í bíó með aðgangskortum! Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS SKÓLANEMAR: 25% afsláttur gegn framvísun skírteinis! SUMARDAGAR Í BÍÓ PARADÍS! “Létt og ánægjuleg.” -The Guardian “Einstök mynd.” -The New York Times JULIETTE BINOCHE ALLT Á SÉR SÍNA TÍÐ SUMARTÍÐ FRÁ 13. JÚNÍ 568 8000 | borgarleikhus.is Tengdó – HHHHH–EB Fbl Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið) Fös 8/6 kl. 20:00 aukas Lau 9/6 kl. 20:00 20.k Sun 10/6 kl. 20:00 lokas Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá Rómeó og Júlía (Stóra svið ) Fös 8/6 kl. 20:00 Sun 10/6 kl. 20:00 aukas Þri 19/6 kl. 20:00 aukas Ógleymanleg uppfærsla Vesturports. Allra síðustu sýningar! Tengdó (Litla sviðið) Fös 8/6 kl. 20:00 lokas Sönn saga. Í samstarfi við CommonNonsense. Síðustu sýningar! Beðið eftir Godot (Litla sviðið) Lau 9/6 kl. 20:00 lokas Tímamótaverk í flutningi pörupilta TRYGGÐU ÞÉR SÆTI! 4 sýningar á 11.900 kr. með leikhúskorti Allar kvöldsýningar hefjast kl. 19.30 Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið) Fös 8/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30 Fös 22/6 kl. 19:30 Lau 9/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30 Níu Grímutilnefningar! Allra síðasta sýning 22. júní. Dagleiðin langa (Kassinn) Lau 16/6 kl. 19:30 Allra síð.sýn. Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar. Allra síðasta sýning 16. júní. Afmælisveislan (Kassinn) Lau 1/9 kl. 19:30 Sun 2/9 kl. 19:30 Eitt vinsælasta verk Pinters. Sýningar í september komnar í sölu. Gamli maðurinn og hafið (Kúlan) Fös 8/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30 Lau 9/6 kl. 19:30 Fim 14/6 kl. 19:30 Brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Listahátíð 2012 Hringurinn - athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins (Kassinn) Fös 22/6 kl. 19:30 Aeðins þessi eina sýning! 17juni.is Skrúðgöngur frá Hlemmi og Hagatorgi kl.13 56 menning Helgin 8.-10. júní 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.