Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.09.1929, Blaðsíða 8

Læknablaðið - 01.09.1929, Blaðsíða 8
134 LÆKNABLAÐIÐ nokkra sjúklinga, sem hafa verið búnir að liggja eitt ár eða meira í gibs- rúmi, og verið eða virst vera friskir, og farið á fætur keikréttir; en hálfu til heilu ári seinna voru þeir orðnir svo bognir, að það hefir orðið að taka til að að rétta þá á ný, og hefir þaS tekið jafn langan tima. Síðan fixatio a. m. Alhee, og það hefir haldið. Minnisstætt mun flestum, er fyrir nokkrum árum síðari, á læknafundi í Stokkhólmi sáu Waldenström leiða fram í fylkingu 20 sveina, er hann hafði op. a. m. Albee, sem allir voru þráðbeinir; jafnframt sýndi hann myndir af því, hverjir vesalings krypplingar þeir höfðu vcrið, þegar hann tók við þeim. Fyrir 9 mánuðum síðan kom til mín sjúkl., sem fjórum árum áður fór frá mér, eftir að hafa legið á annað ár með spondylitis i 3 neðstu hrjóst- liðum. Var hún vel bein úr gibsrúminu. og spengd (Albee). Nú var hún með berldaveiki í 3 lumballiðum og farin að kikna þar síðustu mánuði (en bein um brjóstliði og vinnufær undanfarin ár). Hún hefir legið i gibs- rúmi síðan, og liggur enn. Fyrir 2 mánuðum spengdi' eg lumballiðina a. m. Allice. Gamla spöngin náði niður á I. lumballið og sú nýja þurfti að ná þangað upp. Varð eg þvi að raufa upp í gömlu spöngina, og fella þá nýju í hana. Var þetta sterkt lifandi bein, samgróið procc. spin., ca. 1 )4 cm. á breidd. Til þess að hryggur, sem svona er frá gengið, geti kiknað, verður spöngin að hrotna. Sjúkl., sem hér er um að ræða, liggur enn i gibsrúmi, og gerir það næstu mánuði, svo að beinið grói saman og spöngin styrkist sem hest. Fyrgreind ummæli StcingrUns Matthíassonar lýsa eiginlega hálfgerðum fataUsmus. Þau virðast skapast við það, að op. Albee mistekst alveg í seinna skiftið, þar eð infectio komst í sárið og spöngin losnaði (eg geri ráð fyrir að hún hafi losnað öll, en ekki mestöll). En það má ekki leggja aðferð Albee’s til lasts: hún er jafngóð fyrir því. Fatalismus er læknum ekki hollur — (að vísu eykur hann þeim ekki sjálfsálit, — og náttúrlega getur það orðið of mikið) — en hann veldur því, að þeir grafast ekki cins fyrir orsakir að misfellum, sem stundum vilja á verða, og leita þvi síður umbóta á þeim. Og hætta er á, fyrir sjúkliugana, ef mikið Lveður að slíkum fatalismus, að eigi verið eins til þess ýtrasta reynt að leita þeim hjálpar. Þuría sjúklingar með lungnasjúkdóma meira loft en aðrir? Út af tillögum landlæknis að ætla meira loftrými i sjúkrahúsum handa sjúklingum með lungnasjúkdóma heklur en sjúkl. með aðra sjúkdóma, lang- ar mig til að gera nokkrar athugasemdir. Mcr finst að í lwcrju sjúkrahúsi ectti að gcra ölluin sjúklingum jafnf undir h'ófði svona yfirlcilt. Gott loft er eins sjálfsagt eins og gott drykkjar- vatn og fæði. Hinsvegar ber að líta á það, að gott loft er líklega það dýr- asta af þessu þrennu, því að með því útheimtist mikið og dýrt rúm og

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.