Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.01.1934, Qupperneq 16

Læknablaðið - 01.01.1934, Qupperneq 16
ió Læknablaídið been repeatedly negative. All of these have shown strong positive reac- tions i—2 days after the injection. This phenomenon is considered as an evidence of passively transmitted anaphvlaxis, which in tliese cases has l)een obtained with an unusual constancy. j Framhaldsmentun — vidhaldsmentun. Nýjar tillögur. Eftir Gunnlaug Einarsson. Einangrunin er ísl. læknanna mesta mein. Tachycardia framfaranna í læknavísindum og hinar öru efnalDyltingar lyfjafræöinganna gera sívax- andi öröugleika fyrir staöbundna ísl. lækna, aö fylgjast meö, svo þeir sjálfir megi viö una. Þessi einangrun er engin ný bóla. Hún var um eitt skeiö viöurkend af stjórnarvöldunum, og úr henni bætt aö nokkru meö styrk til siglingar handa 2 héraðslæknum á ári. En fyrir nokkrum árum komst líka óreiöa á þann styrk. Eitt áriö var aöeins einum lækni veittur styrkur og næsta ár á eftir voru þeir læknar sviknir um styrk er lofað haföi verið' og þeim sagt að styrkurinn væri eyddur. Úr æöstu stööum fréttu þeir, aö þeir gætu ekki oröiö styrksins aönjótandi sökum þess, aö þeir væru í Læknafélagi íslands. Hliðstætt má teljast að útiloka þá bændur frá láni úr Kreppu- lánasjóði, sem eru í Búnaðarfélagi íslands og er það sama firran. Síöar hefir siglingastyrkur lækna veriö þurkaöur út af fjárlögunum og má af þvi marka skilning Alþingis á þörfum læknanna í þessu velferöarmáli lækna og sjúklinga þeirra, er oft eiga einu lífsvon sina undir góöri mentun læknanna. i Þaö má nú kannske segja, aö óþarft sé aö rifja upp svona óþægilega liöna atburði, en þar til er því að svara, að til þess er reynslan, aö læra af henni og er þá sérstaklega vond reynsla lærdómsrík. Þessi atvik, sem fram hafa verið dregin sýna ljóslega, aö islenskir lækn- ar geta ekki treyst stjórnendum landsins til þess aö sjá sér fyrir mögu- leikum til viöhaldsmentunar. Þaö er mál, sem læknarnir verða að taka í sínar eigin hendur. Hin fööurlega umhyggja landlæknis hefir heldur hvergi látiö á sér bóla í þessu efni, svo að vitað sé, enn þá sem komiö er. Og ekki virðist vera gert ráð fyrir siglinganauösyninni í nýja taxtanum. — Það er ólíkt skemtilegri tilhugsun, aö bjargast sjálfir af, án ríkisstyrks og vera óháður mlsmunandi ríkisvaldi, heldur en eiga alt sitt undir stjúpu- forsjá stjórnendanna, — sé annars kostur. Og vissulega er annars kostur. L. í. á nokkurt fé óráðstafað í sjóöi. Ef félagsmenn L. í. bindast al- mennum samtökum til sjóöstofnunar í framhalds eöa viöhaldsmentunar skyni, þá er strax komið nokkuö fé, enda þótt framlag hvers félagsmanns, stofngjaldið, væri ekki nema eitt hundraö krónur. Ef svo læknaþingið kysi stjórn sjóösins og gæfi henni leyfi til aö ávaxta hann á svipaðan hátt og sparisjóðir ávaxta sitt fé, þá myndu vextirnir þegar á fyrsta ári nægja

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.